Flugvöllum lokað í hvassviðri 6. nóvember 2006 05:00
Aftakaveður olli miklu tjóni um allt land í gær. Millilanda- og innanlandsflug lá niðri fram eftir degi og má búast við seinkunum á millilandaflugi í dag. Þrjú skip slitu landfestar, tvö í Hafnarfirði og eitt á Skagaströnd. Rúður brotnuðu í bílum í grjótfoki á Möðrudalsöræfum. Ekki er vitað til þess að nein teljandi slys hafi orðið á fólki. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu náðu vindhviðurnar allt að fjörutíu metrum á sekúndu við Snæfellsnes og á Grundarfirði og slöguðu upp í þrjátíu metra á sekúndu víðs vegar um landið. Hringveginum var lokað um nokkra stund við Blönduós vegna ofsaveðurs. „Þessi lægð er búin að vera í spánum í allmarga daga og það er strax á miðvikudag sem maður fór að sjá að það yrðu einhver tíðindi um helgina,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur á NFS. „Sem betur fer hefur veðrinu slotað en þetta er atburður sem maður setur í bækurnar.“ Að sögn Ólafar Snæhólm Baldursdóttur, upplýsingafulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar, höfðu björgunarsveitarmenn sinnt hátt í tvö hundruð útköllum um hádegisbil í gær.
Innlent Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Sjá meira