Einvalalið í Áramótaskaupinu í ár 5. nóvember 2006 11:00 Reynir Lyngdal með Elmu Lísu eiginkonu sinni, en hún leikur einmitt í Skaupinu. „
Þetta gengur bara eins og í sögu. algjör draumur í dós,“ segir Reynir Lyngdal, sem stendur í ströngu þessa dagana við upptökur á Áramótaskaupi Ríkissjónvarpsins. Fyrsta vika upptakanna er nú að baki, fjórar eru eftir. Reynir fæst ekki til að upplýsa neitt um efni Skaupsins, segir að það verði einfaldlega að koma í ljós. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá skrifar teymi höfunda Skaupið í ár, Hugleikur Dagsson, bræðurnir Úlfur og Ari Eldjárn og Þorsteinn Guðmundsson. Þeir skiluðu inn fullbúnu Skaupi þó enn séu tæpir tveir mánuðir þar til það verður sýnt. „Þetta verður auðvitað fljótandi að hluta til ef eitthvað skemmtilegt kemur upp í þjóðfélaginu. Ég verð alla vega bundinn í þessu fram að áramótum. Út á það gengur djobbið.“ Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru mörg stór nöfn í leikarahópnum að þessu sinni. Má þar nefna Jón Gnarr, Helgu Brögu, Hörpu Arnardóttur, Elmu Lísu Gunnarsdóttur, Þór Tuliníus, Arndísi Hrönn Egilsdóttur, Ilmi Kristjánsdóttur og Árna Tryggvason. Reynir vill ekkert um leikarahópinn segja, aðeins að „nærri því annar hver grínleikari landsins,“ hafi ákveðið að vera með. Reynir viðurkennir að það fylgi því blendnar tilfinningar að leikstýra Áramótaskaupi, enda séu vonir og væntingar landsmanna aldrei meiri. „Ég heyrði því einhvern tímann fleygt, og ég held að þetta sé haft eftir Pálma Gests, að það sé tvennt sem maður ætti aldrei að gera. Annað væri að reka mötuneyti en hitt að leikstýra Áramótaskaupi. Tilfinning mín núna er sú að þetta sé ekki rétt, við skulum bara vona að það breytist ekki.“
Menning Mest lesið Lifir lífinu við óbærilegan sársauka Lífið Með stóra drauma og svarta beltið í taekwondo Lífið Fréttatía vikunnar: Landsfundur, körfubolti og geimferðir Lífið Dýrmætt að fá að hitta hetjurnar á hinum enda línunnar Lífið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lífið samstarf Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Lífið Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Fleiri fréttir Snerting, Ljósbrot og Ljósvíkingar bítast um Edduna Bezos bolar Broccoli burt frá Bond Næsti Dumbledore fundinn Bauð Bandaríkin velkomin í hóp konungsríkja Jóhannes Haukur fer mikinn í Marvel stiklu Svaraði kallinu frá Ben Stiller Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Sjá meira