Erlendur var þraut til að leysa 19. október 2006 19:00 Ingvar E. Sigurðsson Reyndi að gefa Erelndi þá vikt sem hann á skilið og þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að setja sig í spor þessa veðraða rannsóknarlögreglumanns.
Íslenska sakamálamyndin Mýrin í leikstjórn Baltasars Kormáks verður frumsýnd á Íslandi á morgun. Myndin byggir, eins og alþjóð sjálfsagt veit, á samnefndri skáldsögu Arnaldar Indriðasonar um rannsóknarlögreglumanninn Erlend. Þórarinn Þórarinsson ræddi við Ingvar E. Sigurðsson sem túlkar Erlend á hvíta tjaldinu. Glæpasögur Arnaldar hafa notið fádæma vinsælda á Íslandi síðustu ár og það er því óhætt að fullyrða að aðlögun Mýrarinnar að kvikmyndaforminu hafi verið beðið með talsverðri eftirvæntingu. Ingvar er meðvitaður um áhugann en lætur það ekki hræða sig þó vænn hluti þjóðarinnar hafi myndað sér skoðun á persónunni og fjöldi lesenda sé búinn að búa sér til ákveðna mynd af lögreglumanninum.Gæti verið Erlendurerlendur Rannsóknarlögreglumaðurinn hefur í nógu að snúast þegar lík finnst í Norðurmýrinni en líkfundurinn á eftir að vinda upp á sig þannig að Erlendur þarf að leysa flókna ráðgátu.„Mér fannst Erlendur vera þraut til að leysa,“ segir Ingvar. „Ég þekkti lítið til hans þegar þetta kom upp og byrjaði á því að lesa allar bækurnar. Ég sá alveg fyrir mér að ég gæti leikið mann sem er aðeins eldri en ég sjálfur enda er ég að verða 43 ára og Erlendur þarf ekki að vera mikið eldri en ég er. Það gengur líka alveg upp að maður á þessum aldri eigi langan feril í lögreglunni að baki og ég gæti alveg átt dóttur um tvítugt eins og Erlendur. Ég sannfærði mig því um að þetta væri ekkert mál og ég gæti alveg gert þetta.“Ingvar segist hafa reynt að gefa Erlendi þá vigt sem hann á skilið og hentar honum og það hafi ekki þurft átakanlegan undirbúning til þess. „Þetta var fyrst og fremst gott verkefni.“Stelst til að leika lifandi persónuVinsældir bóka Arnaldar um Erlend eru slíkar að framhaldsmyndir hljóta að koma til tals og Ingvar segist vel vera tilbúinn til þess að vinna áfram með persónuna. „Ef myndin verður vinsæl og Arnaldur samþykkir fleiri myndir þá er ég tilbúinn en við sjáum bara til. Ég er ekki einu sinni að hugsa um þennan möguleika,“ segir Ingvar og bætir því við að það sé að mörgu leyti sérstakt að leika persónu sem er enn í þróun eins og Erlendur. „Bækurnar um hann eiga kannski eftir að verða fleiri, hver veit, og það er svolítið skrýtið að leika svona persónu enda er þetta eins og maður sé nánast að stelast til að leika mann sem er á lífi og býr Reykjavík.“Fastur í LondonIngvar og Baltasar hafa oft unnið saman og Ingvar lætur ákaflega vel að samstarfinu við þennan gamla félaga sinn við gerð Mýrarinnar. „Þetta var æðislega gaman og andrúmsloftið á tökustað var mjög gott. Þetta var ekki stór hópur og við þekkjumst öll vel.“ Ingvar er staddur í London þar sem hann leikur á sviði í Hamskiptunum eftir Kafka og hann getur því ekki verið viðstaddur frumsýningu myndarinnar. „Því miður kemst ég ekki. Ég er búinn að reyna allt þannig að það er ekki af áhugaleysi sem ég verð fjarverandi og mér finnst þetta ferlega leiðinlegt.“Hamskiptin hafa gengið vonum framar í London en Ingvar er væntanlegur heim í lok mánaðarins. „Þetta hefur gengið rosalega vel og leikhússtjórinn er mjög ánægður með hvernig gengur í miðasölunni,“ segir Ingvar sem unir hag sínum vel í London þó hann geti ekki fagnað frumsýningu Mýrarinnar með félögum sínum.“
Menning Mest lesið Óöruggur eftir að kærastan stundaði hópkynlíf erlendis Lífið Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Gagnrýni Baunar á kókaða söngkonu fyrir baktal Tónlist Þessi litla breyting breytti í raun öllu! Lífið samstarf Sama hvað öllum finnst, nema mömmu og pabba Tónlist „Ákvað að skilja hana eftir þar og athuga hversu langt ég kæmist“ Lífið „Rétturinn sem fjölskyldan þín mun elska og biðja um aftur og aftur“ Lífið Fréttatía vikunnar: Play, fiskbúðingur og stjörnuskilnaður Lífið Markmiðið að græða ekkert og „helst tapa pening“ Menning Flugfreyja, íþróttakona og ráðherra breyttu leiknum Lífið Fleiri fréttir Rússar meina kvikmyndagerðarmanni að koma til Íslands Weerasethakul og Corbijn hlutu heiðursverðlaun RIFF Simpsons-fjölskyldan snýr aftur á hvíta tjaldið Nextar og Sinclair sýna þætti Kimmels aftur Hanna Björk verðlaunuð af leikstjórum á Norðurlöndum Vaða beint í aðra bók eftir Sigríði Hagalín Baywatch aftur á skjáinn Fluttur á spítala eftir mislukkað áhættuatriði Bestu hlutverk Roberts Redford: Sjarmatröll og skilgreiningin á kvikmyndastjörnu Tjáir sig um erfiðar tökur: Engir meðleikarar og enginn leikstjóri Konráðs-bækur Arnaldar á leið á skjáinn Tjáði sig um ástarsambandið sem splundraði tveimur hjónaböndum Sophie Turner verður Lara Croft Strax búinn að tilkynna Ofurmenni morgundagsins Kim Novak heiðursgestur RIFF Barðist við tárin yfir fimmtán mínútna lófataki Langþráður draumur að halda hinsegin kvikmyndahátíð Sjá meira