Microsoft og ESB í hár saman á ný 20. september 2006 09:00 frá kynningu á stýrikerfinu Microsoft segir svo geta farið að Windows Vista, nýjasta stýrikerfi fyrirtækisins, verði dreift síðar í Evrópu en annars staðar vegna deilna við ESB. MYND/Nordicphotos/Getty Images
Bandaríski hugbúnaðarrisinn Microsoft greindi frá því í síðustu viku að svo gæti farið að dreifing á Windows Vista, nýjasta stýrikerfi fyrirtækisins, drægist í Evrópu vegna tafa af hálfu samkeppnisyfirvalda Evópusambandsins (ESB), en það sakar Microsoft um að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína. Að sögn Microsoft sendi fyrirtækið greinargerð um stýrikerfið til framkvæmdastjórnarinnar og er þess beðið hvaða breytingar ESB vill sjá á kerfinu. Verði farið fram á miklar breytingar eru líkur á að stýrikerfið komi síðar út í Evrópu en annars staðar í heiminum. Í svari ESB segir hins vegar að það sé ekki stjórnarinnar að gefa Microsoft grænt ljós heldur sé það fyrirtækisins að fara að reglum sambandsins. Framkvæmdastjórn ESB og Microsoft hafa lengi eldað grátt silfur saman. Árið 2004 dæmdu samkeppnisyfirvöld ESB hugbúnaðarrisann til að greiða jafnvirði tæpra 46 milljarða íslenskra króna fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína. Þegar fyrirtækið hafði ekki framfylgt dómnum í júlí í fyrra voru 26,9 milljarðar króna lagðir ofan á fyrri upphæð.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira