Innlent

48 brottfarir og komur í ágúst

Egilsstaðaflugvöllur. Tvöföldun hefur orðið á millilandaflugi um völlinn frá í fyrra.
Egilsstaðaflugvöllur. Tvöföldun hefur orðið á millilandaflugi um völlinn frá í fyrra.

Tvöföldun hefur orðið á millilandaflugi á Egilsstaðaflugvelli það sem af er ári miðað við allt árið í fyrra. Ingólfur Arnarson flugvallarstjóri á Egilsstaðaflugvelli segir fjölgunina mikið til komna vegna virkjunarframkvæmdanna á svæðinu. Mikill fjöldi fólks fari um völlinn vegna þeirra.

Ingólfur nefnir að tvívegis á árinu hafi einkaþotur lent á vellinum með forsvarsmenn Alcoa.

Í ágúst voru 48 brottfarir og komur um völlinn í millilandaflugi en vikulegar áætlunarferðir eru frá vellinum til Póllands og Kaupmannahafnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×