Innlent

Dagsbrún verði skipt í tvö félög

Þórdís Sigurðardóttir. Formleg ákvörðun stjórnar liggur ekki fyrir.
Þórdís Sigurðardóttir. Formleg ákvörðun stjórnar liggur ekki fyrir.

Áformað er að skipta Dagsbrún upp í tvö félög; Og Vodafone, sem er fjarskiptahluti félagsins, og 365 miðla, sem heldur utan um fjölmiðlarekstur og gefur meðal annars út Fréttablaðið. Þriðja stoð félagsins, sem er á sviði upplýsingatækni, mun fylgja fjarskiptastarfseminni, samkvæmt heimildum. Félögin tvö verði skráð í Kauphöll Íslands en Dagsbrún afskráð.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa miklar fjárfestingar og þungur rekstur gert stöðu Dagsbrúnar erfiða. Ráðgert sé að gefa út nýtt hlutafé til að styrkja eiginfjárstöðu félaganna og selja ákveðna hluta starfseminnar. Með skiptingu félagsins verði stefnan skýrari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×