Innlent

Mikill verðmunur á pasta og frosinni ýsu

innkaupakarfa Samkvæmt nýrri verðlagskönnun ASÍ munar næstum fimmtungi á hæsta og lægsta verði innkaupakörfunnar.
innkaupakarfa Samkvæmt nýrri verðlagskönnun ASÍ munar næstum fimmtungi á hæsta og lægsta verði innkaupakörfunnar. MYND/Valli

Verðlagseftirlit Alþýðusamband Íslands kannaði verð í fjórum lágvöruverðsverslunum á þriðjudaginn og reyndist munurinn á lægsta og hæsta verði innkaupakörfunnar vera rúmar sautján hundruð krónur, eða átján prósent.

Ódýrasta karfan var í verslun Bónus, en hún kostaði 9.780 krónur. Dýrust var karfan í verslun Kaskó, upp á 11.504 krónur.

Innkaupakarfan samanstóð af fjörutíu almennum neysluvörum til heimilisins og átti hún að endurspegla dæmigerða verslunarferð hjá fjölskyldu. Í körfunni mátti meðal annars finna brauðmeti, sætabrauð, morgunkorn, smjör, ýmsar mjólkurvörur, álegg, lambalæri, fisk, ávexti, grænmeti, drykkjarvörur og þvottaefni.

Minnstur verðmunur milli verslananna á einstökum vörutegundum reyndist vera á smjöri, osti og mjólkurvörum ýmiss konar, um fimm prósent eða svo. Athygli vekur að oft reyndist yfir hundrað prósenta munur á hæsta og lægsta kílóverði af pasta og jarðarberjasultu. Þá var tæplega áttatíu prósenta verðmunur á kílóverði af frosinni ýsu og 46 prósenta munur reyndist á kílóverði af frosnu lambalæri.

Það er mikilvægt fyrir neytandann að horfa á alla körfuna í heild, því það munar oft mjög litlu á einstaka vöruflokkum milli verslana, segir Henný Hinz, verkefnisstjóri Verðlagseftirlits ASÍ. Það eru liðir í körfunni sem vega mjög þungt og getur verið mikill verðmunur á og veldur því að munað getur töluvert á heildarniðurstöðum.

Könnunin var gerð í Bónus Holtagörðum, Krónunni Langholtsvegi, Nettó í Mjódd og Kaskó í Vesturbergi. Verðlagseftirlit Alþýðusambandsins tekur fram að einungis var um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki var lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×