Innlent

Aðferðir við val á lista ákveðnar

Málin rædd Samfylkingarmenn á fundi í júní.
Málin rædd Samfylkingarmenn á fundi í júní.

stjórnmál Fundir í kjördæmisráðum Samfylkingarinnar í fjórum kjördæmum standa fyrir dyrum en á þeim verður ákveðið með hvaða hætti valið verður á lista flokksins fyrir þingkosningarnar í vor.

Fundað verður í Norðausturkjördæmi á sunnudag, í Suðvesturkjördæmi miðvikudaginn 13. september, Norðvesturkjördæmi laugardaginn 16. september og í Suðurkjördæmi 17. september.

Fulltrúaráð Samfylkingarfélaganna í Reykjavík hefur þegar samþykkt að halda prófkjör í nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×