Innlent

Þriggja vikna gæsluvarðhald

Hnífur
Hnífur

 Sextán ára piltur hefur verið úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald. Hann er grunaður um að hafa stungið 25 ára gamlan karlmann í bakið með hnífi í Laugardal aðfaranótt þriðjudags. Honum er einnig gert að sæta geðrannsókn.

Lögreglan greindi frá því að fórnarlambið og árásarmaðurinn hefðu verið kunnugir og svo virðist sem árásin hafi verið tilefnislaus. Þeim særða tókst að aka á slysadeild og reyndust meiðsl hans ekki eins alvarleg og fyrst var talið. Pilturinn hefur játað verknaðinn.

Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn hefur verið kærður til Hæstaréttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×