Innlent

Minnka þarf veiði

Góður fengur Fengur Ara Einarssonar rjúpnaskyttu í þessari ferð var sjö rjúpur en ráðlagt er að hver veiðimaður skjóti ekki fleiri en níu rjúpur á þessu hausti.
Góður fengur Fengur Ara Einarssonar rjúpnaskyttu í þessari ferð var sjö rjúpur en ráðlagt er að hver veiðimaður skjóti ekki fleiri en níu rjúpur á þessu hausti. MYND/GVA

Náttúrufræðistofnun Íslands (NÍ) hefur metið veiðiþol rjúpnastofnsins. Talningar sýna að stofninn er á niðurleið um allt land eftir aðeins tvö ár í uppsveiflu og lagt er til að dregið verði úr rjúpnaveiði í haust með því að takmarka veiðitíma og að sölubann gildi áfram.

NÍ metur stærð veiðistofnsins í ár um 500.000 fugla og að ásættanleg veiði, miðað við forsendur stjórnvalda um sjálfbærar veiðar, sé um 45.000 fuglar. Á síðasta ári er áætlað að skotveiðimenn hafi veitt um 80.000 rjúpur. Til að ná þessum markmiðum mælir NÍ með að veiðitímabilið verði takmarkað við þrjár vikur í nóvember auk áframhaldandi sölubanns og að griðland fyrir rjúpur verði áfram á Suðvesturlandi.

Að mati NÍ er ljóst að margir aðrir þættir en skotveiðar hafa haft áhrif á afkomu rjúpunnar. Talið er líklegt að óhagstætt tíðarfar sumar og haust 2005 hafi reynst rjúpunni skeinuhætt.

Ólafur K. Nielsen, vistfræðingur hjá NÍ, er þeirrar skoðunar að ekki skuli grípa til alfriðunar þrátt fyrir að afföll rjúpnastofnsins séu komin aftur í sama horf og fyrir friðun haustið 2003. „Ég vona að við náum markmiði okkar um að stofninn rétti úr kútnum með veiðum. Samfélag veiðimanna brást afar vel við í fyrra og dró verulega úr sínum veiðum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×