Innlent

Ákveður sig í næsta mánuði

Gunnar Örlygsson
Gunnar Örlygsson

Gunnar Örlygsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, hefur ekki ákveðið hvort hann sækist eftir áframhaldandi þingmennsku. Ég mun taka ákvörðun í október um hvort ég velji pólitíkina eða þau verkefni sem bíða mín í sjávarútvegi á sviði sölu- og markaðsmála, sagði Gunnar í samtali við Fréttablaðið í gær.

Áður en Gunnar settist á þing stundaði hann ýmis störf á sviði sjávarútvegs, meðal annars sjómennsku, sölu og útflutning.

Gunnar var kjörinn á þing fyrir Frjálslynda flokkinn í kosningunum 2003 en gekk í Sjálfstæðisflokkinn á vordögum 2005.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×