Innlent

Dró sér rúm 150 þúsund

Ákæra yfir fertugri konu vegna fjárdráttar var þingfest fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Konan er sökuð um að hafa á tímabilinu september til desember árið 2003, er hún starfaði sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri hjá ónefndu fyrirtæki, dregið sér rúmar 150 þúsund krónur af meðlagsgreiðslum. Konan mun hafa dregið sér tæpar fjörutíu þúsund krónur í fjögur skipti á fjögurra mánaða tímabili.

Ákæruvaldið fer fram á refsingu yfir konunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×