Innlent

Hlaut þriggja mánaða dóm

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi 83 ára gamlan mann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals í gær.

Hinum dæmda var gefið að sök að hafa falsað undirskrift eiginkonu sinnar á skuldabréfi, að fjárhæð tæpar átta milljónir króna með veði í fasteign þeirra.

Maðurinn játaði brot sitt fyrir rétti en hann hafði ekki gerst brotlegur við lög áður og því var refsing hans ákvörðuð með hliðsjón af því.

Fullnustu refsingarinnar var frestað og mun hún falla niður eftir tvö ár ef hinn dæmdi heldur skilorð í tvö ár frá dómsuppkvaðningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×