Innlent

Fangelsismálastjóri á fundinn

Valtýr Sigurðsson
Valtýr Sigurðsson

Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins, verður gestur á fundi Allsherjarnefndar Alþingis í dag. Málefni fangelsa verða til umræðu á fundinum en þau hafa verið til umfjöllunar í samfélaginu síðustu daga.

Fulltrúar Samfylkingarinnar í nefndinni óskuðu eftir að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sæti fundinn en varð ekki að þeirri ósk sinni. Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, mun hins vegar sitja hann fyrir hönd ráðuneytisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×