ESB hækkar hagvaxtarspá 6. september 2006 11:50 Fáni Evrópusambandsins.
Evrópusambandið (ESB) hækkaði hagvaxtarspá sína fyrir sambandið í dag. Reiknað er með 2,7 prósenta hagvexti innan ESB á árinu og 2,5 prósenta hagvexti á evrusvæðinu en það er 0,4 prósentustiga hækkun frá fyrri spá. Verði þetta raunin hefur hagvöxtur aldrei verið meiri á evrusvæðinu. Til samanburðar jókst hagvöxtur innan ESB um 1,6 prósent á síðasta ári og er ljóst að um umtalsverða hækkun er að ræða á milli ára. Hagvöxtur á evrusvæðinu jókst hins vegar um 1,4 prósent í fyrra og var spáð 2,1 prósenta hagvexti á þessu ári. Þá er reiknað með 2,3 prósenta verðbólgu bæði innan ESB og evrusvæðisins á árinu þrátt fyrir nokkrar verðhækkanir á flestum þáttum. ESB reiknar með mismiklum hagvexti hjá einstökum aðildarríkja sambandsins. Ekki er búist við að hækkun virðisaukaskatts í Þýskalandi, stærsta hagkerfi ESB, hafi mikil áhrif á þýskt efnahagslíf en spáð að hagvöxtur þar aukist að meðaltali um 2,2 prósent næstu tvö árin. Af öðrum löndum er reiknað með því að hagvöxtur á Ítalíu verði einungis 1,7 prósent á árinu en heil 5 prósent í Póllandi, sem er methagvöxtur innan sambandsins. Hagvöxtur hjá öðrum aðildarríkjum sambandsins fellur innan þessa ramma en reiknað er með allt frá 2 til 2,7 prósenta hagvexti í þeim.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira