Innlent

Braut rifbein og tvær tennur

Tuttugu og sex ára karlmaður var í gær ákærður fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir grófa líkamsárás á veitingahúsinu Boomkikker í Hafnarstræti í maímánuði í fyrra.

Honum er gert að hafa ráðist á annan karlmann, slegið höfuð hans í barborð og ítrekað með hnefahöggum í andlitið auk þess sem hann lét spörk dynja á manninum, í andlit hans og líkama. Hann dró fórnarlambið á hárinu eftir gólfi skemmtistaðarins og misþyrmdi.

Fórnarlambið tvírifbeinsbrotnaði og hryggjarliðir hans brákuðust. Hann nefbrotnaði, hlaut skurð á höfði og tognun á hægri úlnlið. Auk þess brotnuðu í honum tvær tennur.

Ákæruvaldið fór fram á refsingu og fórnarlambið krafðist bóta fyrir rúma milljón króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×