Innlent

Afurðastöðvar valda hækkun á kjötverði

Verð frá sláturleyfis­höfum til kjötúrvinnslustöðva hefur hækkað mikið í öllum flokkum kjötvara á síðastliðnu ári. Þessar hækkanir skila sér ekki til bænda nema að takmörkuðu leyti.

Leifur Þórsson, framkvæmdastjóri hjá Ferskum kjötvörum, segir að verð frá birgjum hafi hækkað mikið frá júní á síðasta ári. Hækkunin sé sautján prósent á ungnautakjöti í heilum skrokkum, um sautján prósent fyrir lambahrygg og læri og um tuttugu prósent fyrir svínakjöt. Þessar hækkanir skila sér að sjálfsögðu í hækkandi verði til neytenda.

Sigurður Ólafsson, framkvæmdastjóri kjötvinnslunnar Esju, staðfestir þessar verðhækkanir. Sauðfjárafurðastöðvarnar hafa verið að hækka verð mikið á síðasta ári.

Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir að þessar hækkanir skili sér ekki allar til bænda. Hækkun í dilkakjöti er um tólf prósent að meðaltali og minna í nauta- og svínakjöti. Hagrætt hefur verið í slátrun og vinnslu á síðustu árum og neytendur ættu að njóta þess. Haraldur segir að skýringarnar á hækkunum sláturleyfishafa séu líklega launaþróun og hækkandi fjármagnskostnaður, auk almennra hækkana í rekstri fyrirtækja.

Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, segir fyrirtækið hafa verið í vandræðum frá síðustu áramótum vegna skorts á dilkakjöti. Við höfum þurft að neita mörgum um kjöt og þeir sem hafa fengið kjötið hafa þurft að kyngja hækkunum. Þeir hefðu þó væntanlega farið annað ef þeir hefðu fengið kjötið ódýrar annars staðar. Það verður samt að hafa í huga að við vorum áður að selja kjötið frá okkur undir markaðs­verði.

Ágúst Andrésson, forstöðu­maður Kjötafurðastöðvar Kaup­félags Skagfirðinga, er ósammála formanni Bændasamtakanna og segir hækkanir úti á markaðnum í takt við hækkanir til bænda. Hann segir að jafnframt skuli haft í huga að vægið á allt heildarverðmæti skrokksins sé að færast yfir á gæðakjötið, sem sé bara helmingurinn af skrokknum. Verð á læri og hrygg segi því aðeins hálfa söguna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×