Innlent

Bryndís ráðin aðstoðarrektor

Bryndís Hlöðversdóttir
Nýráðinn aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst
Bryndís Hlöðversdóttir Nýráðinn aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst MYND/GVA

Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, hefur verið ráðin aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst í stað Magnúsar Árna Magnússonar sem lét af störfum fyrir helgi.

Bryndís gegnir áfram stöðu forseta lagadeildar skólans. Hún segir sín daglegu störf ekki breytast mikið við ráðninguna og staðan felist aðallega í að vera staðgengill háskólarektors í fjarvistum hans. "Mér þykir mikill heiður af því að stjórn skólans skuli treysta mér fyrir þessu starfi. Það verður erfitt að fylla skarð Magnúsar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×