Hagnaður ástralska verktakafyrirtækisins Multiplex nam 216,8 milljónum ástralskra dala, jafnvirði 11,5 milljarða íslenskra króna, á fyrri helmingi árs. Um er að ræða tvöföldun á hagnaði á milli ára.
Hagnaðurinn er að mestu vegna sölu eigna og hækkunar á virði annarra eigna fyrirtækisins.
Multiplex hefur umsjón með byggingu nýja Wembley íþróttaleikvangsins í Lundúnum í Bretlandi, sem átti að vera tilbúinn fyrir ári. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa varað við því að það muni skila frá sér færri verkum á næstu tveimur árum og séu líkur á að afhending leikvangsins dragist fram á mitt næsta ár. Verður hún þá tæpum tveimur árum á eftir áætlun.
Kostnaður við nýja leikvanginn, sem rúmar níutíu þúsund manns í sæti, hefur farið langt fram úr áætlun og sagði John Roberts, stofnandi og stjórnarformaður Multiplex, af sér í maí á síðasta ári vegna þessa. Segir fyrirtækið tafir á afhendingu verksins vera komnar til vegna breytinga rekstraraðila á hönnun leikvangsins.
Lengi vel var búist við að fyrirtækið þyrfti að greiða breska knattspyrnusambandinu fjörutíu milljónir punda, jafnvirði 5,2 milljarða íslenskra króna, í sektir vegna tafanna en fastlega er búist við að fallið verði frá kröfunni.