Viðskipti innlent

FL kaupir í Finnair

Ein véla Finnair. Hlutur FL Group í Finnair nemur um 10 milljörðum króna að markaðsvirði.
Ein véla Finnair. Hlutur FL Group í Finnair nemur um 10 milljörðum króna að markaðsvirði.

FL Group hefur aukið við hlut sinn í finnska flugfélaginu Finnair og á eftir kaupin 10,025 prósenta hlut í félaginu. Að sögn Alberts Jónssonar, framkvæmdastjóra FL Group, hefur fyrirtækið aukið við hlut sinn í Finnair jafnt og þétt.

"Finnair hefur skilað góðri afkomu og teljum við fyrirtækið spennandi fjárfestingakost. Fyrirtækið er fjárhagslega sterkt og með spennandi vaxtastefnu til lengri tíma litið," sagði hann.

Í ársskýrslu FL Group kemur fram að fyrirtækið átti 9,5 prósenta hlut í Finnair fyrir kaupin. Markaðsvirði hlutarins nemur um 10 milljörðum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×