Sport

Breiðablik 1. deildar-meistarar

Breiðablik tryggði sér í kvöld sigur í 1. deild karla í fótbolta með því að gera 1-1 jafntefli við Víking R. í Fossvoginum. Blikar eru með 9 stiga forskot á Víking sem er í 2. sæti og aðeins 6 stig eftir í pottinum. Víkingur heldur hins vegar áfram harðri baráttu við KA um 2. sætið í deildinni og seinni farseðilinn upp í Landsbankadeild karla að ári. KA leikur við HK á morgun og getur með sigri jafnað Víkinga að stigum. Ellert Hreinsson kom Blikum yfir á 30. mínútu en Daníel Hjaltason jafnaði fyrir Víking úr vítaspyrnu á 85. mínútu. Vítaspyrnudómur Garðars Hinriksonar dómara var umdeildur og voru Blikamenn langt frá því að vera sáttir. "Garðar einn veit hvað hann var að dæma á. En hann er einn besti dómari landsins og ég ætla ekki að fara að rengja hann um neitt sérstaklega hér. Við ætlum bara að fagna frameftir í kvöldi." sagði Hjörvar Hafliðason markvörður Breiðabliks í viðtali við Vísi eftir leikinn. Hann furðaði sig á því að Garðar skuli hafa bætt 8 mínútum í viðbótartíma sem var þó öll seinkun Blikanna í fagnaðinn síðar í kvöld. "Þetta er ólýsanleg tilfinning og alveg magnað að vera búnir að vinna deildina. Þegar byrjað var í vor höfðu fáir trú á þessu ef undan eru skildnir við leikmennirnir." Aðspurður um hvort yfirburðir Blika í deildinni í sumar hefðu komið á óvart svaraði Hjörvar; "Þrjú efstu liðin skáru alveg úr hvað það varðar. Menn áttu samt von á að HK og Þór myndu gera betri hluti." sagði Hjörvar á leið á Players í Kópavogi þar sem Blikar ætla að fagna titlinum ásamt stuðningsmönnum sínum í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×