Sport

Kári kom inn á hjá Djurgården

Kári Árnason lék síðustu 8 mínúturnar í liði Djurgården sem endurheimti toppsætið með sigri á Kalmar, 3-1 í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta nú síðdegis. Kári kom inn á í stöðunni 2-1 eftir að tvö rauð spjöld höfðu farið á loft í leiknum þar sem einn leikmaður úr hvoru liði þurfti að yfirgefa völlinn. Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék allan leikinn með Halmstad sem steinlá fyrir Gefle, 1-4. Djurgården er efst eftir 18 umferðir með 34 stig, einu stigi fyrir ofan IFK Göteborg sem er í 2. sæti. Halmstad er í 12. sæti með 21 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×