Innanlandsflugið til Keflavíkur 7. mars 2005 00:01 Góðan daginn Egill Mig langar að leggja nokkur orð í belg til stuðnings því að leggja niður Reykjavíkurflugvöll. Ég bý ekki í miðborg Reykjavíkur og hef aldrei gert. Ég horfi á þetta frá sjónarhóli ‘útlendings’ og ‘utanbæjarmanns’. Mér finnst liggja ljóst fyrir að við getum ekki rekið tvo meiriháttar flugvelli á Suðvesturhorninu. Sjálfsagt er að allt millilanda- og innanlandsflug á þessu svæði fari um sama völlinn. Ég er ekki í vafa um að það að leggja niður flugvöllinn í Reykjavík og flytja allt innanlandsflug til Keflavíkur geti verið stórkostlegt hagsmunamál fyrir alla Íslendinga ef það er gert sem hluti af víðtækari stefnumótun í samgöngumálum. Þó að ég sé sammála málstaðnum þá finnst mér málflutningur andstæðinga flugvallarins oft hálf kómískur. Það var m.a. fyndinn pistill í Fréttablaðinu um daginn þar sem kona nokkur taldi flugvöllinn, rollurnar og kosningarnar í Idol keppninni allt hluta af sama plottinu og dæmi um níðingshátt landsbyggðarskrílsins gagnvart saklausum borgarbúum. Það er skrítið að halda því fram að flugvöllurinn í Vatnsmýrinni hafi á einhvern hátt valdið Reykvíkingum tjóni, jafnvel óbætanlegum fjárhagslegum skaða. Það er nú þannig að tilviljanir móta oftast líf okkar og umhverfi meira en vel ígrunduð stefnumótun. Það að flugvöllurinn skyldi hafa verið byggður upp í Vatnsmýrinni var að hluta til tilviljun tengd heimstyrjöld sem við höfðum ekkert að segja um. Það er þó augljóst að Reykvíkingar fengu þarna lykilaðstöðu til að byggja upp samgöngumiðstöð fyrir allt landið. Þessi miðstöð varð grunnur að því að þjappa nánast allri opinberri stjórnsýslu og mest öllum opinberum umsvifum saman á einum stað. Landsbyggðarfólk sættist á að sækja þangað alla þjónustu, meðal annars vegna þess að aðgengi í gegnum flugvöllinn var nokkuð gott. Þannig hefur þessi völlur reynst Reykvíkingum ljómandi byggðastyrkur í gegnum tíðina og gerir enn. Það er engum öðrum en Reykvíkingum sjálfum að kenna að borgin skuli hafa verið skipulögð svona dreift. Hafi menn fram að þessum tíma viljað byggja þétt, gátu menn það auðveldlega á öðrum slóðum en akkúrat þarna í mýrinni. Að fjarlægja völlinn er orðinn hluti af nýrri sjálfstæðisbaráttu sumra Borgarbúa (með stóru Béi) sem sjá í flugvellinum síðustu tengingu Borgarinnar við landið. Flugvöllurinn er sveitó, það er fiskifýla af honum. Það liggur kúaskítsslóði undan stígvélum sveitavargsins frá Vatnsmýrinni og inní miðbæ. Hann skal í burtu til að hægt sé að byggja ‘þéttari’, nýtískulegri og menningarlegri borg. Vilji menn menningarlegri borg eru það svo sem alveg jafn góð rök og hvað annað fyrir því að flytja flugvöll. Mér finnst bara að menn eigi að skoða þetta í stærra samhengi og marka skynsamlega stefnu. Ég held semsé að best sé að leggja Reykjavíkurflugvöll niður í heild sinni og flytja allt innanlandsflug til Keflavíkur. En þá er best að gera þetta í einu lagi. Versta lausnin væri að skipta þessu einhvernveginn upp, skilja eftir hálfan völl eða byggja upp annan lítinn flugvöll einhverstaðar í útkanti borgarinnar. Erindi fólks um Reykjavíkurflugvöll er oftast annað af tvennu: ferð til Reykjavíkur eða ferð um flugvöllinn á leið til eða frá Keflavík. Varðandi þá sem koma með flugi til Keflavíkur og eiga erindi útá land væri afar gott að sleppa við þann krók að þurfa að taka rútu inní Reykjavík til að skipta um flugvöll. Flestir munu verða fegnir að losna við að þurfa að krækja inní borgina. Með samræmingu á innanlands- og millilandaflugi verður hægt að stytta ferðatíma og beina umtalsverðum umsvifum framhjá Reykjavík og til ferðaþjónustuaðila á landsbyggðinni. Varðandi þá Íslendinga sem eiga beinlínis erindi til Reykjavíkur þarf flutningur á innanlandsfluginu til Keflavíkur að vera hluti af stærri stefnumótun um samgöngur á landinu öllu. Þrátt fyrir allt miðast í dag talsvert margt í þjónustu opinberra stofnana s.s. háskóla, sjúkrahúsa o.þ.h. við að stuttan tíma taki að komast milli staða. Ég held að aksturstími í kringum 3-4 klukkutíma geri útslagið um það hvort fólk flýgur eða keyrir. Þannig höfum við séð Sauðárkrók og Snæfellsnes detta út sem flug-áfangastaði með bættum vegum. Akureyri er á mörkunum en nær að hanga inni einmitt vegna þess að Reykjavíkurflugvöllur er inni í miðjum bæ og fólk getur því sinnt erindum í borginni en samt komist fram og tilbaka sama dag. Ef við bætum við tveimur klukkutímum á Reykjanesbrautinni mun Akureyrarflugið sennilega snarminnka. Ísafjörður er á mörkunum en með bættum vegasamgöngum má ná aksturstímanum frá Reykjavík og þangað niður í 4 tíma. Og með jarðgöngum og fleiru má ganga að því nokkuð vísu að rennifæri sé ‘í bæinn’ meira og minna allt árið. Eftir mun standa Norðausturhornið, Austfirðir, Suð-Austurland og Vestmannaeyjar. Sjálfsagt er að nota peningana sem sparast frá rekstri og framkvæmdum á Reykjavíkurflugvelli til að byggja upp flugvellina á Ísafirði/Þingeyri, Akureyri, Egilstöðum, Höfn og Vestmannaeyjum með alvöru blindflugsaðstöðu o.þ.h. þannig að framtaksamir einstaklingar geti boðið uppá öruggt farþega- og vöruflug frá Keflavík í nánum tengslum við millilandaflug þaðan, hvenær sem er sólarhringsins. Svo má auðvitað hnykkja á því að almennt virðast menn sammála um að landsbyggðarmenn þurfi ekki endilega að geta lent í miðri borg til að sækja þjónustu til opinberra stofnana ýmiskonar. Þeir geti vel skipulagt tíma sinn betur og lent í Keflavík. Það undirstrikar þá líka þá staðreynd að þessar stofnanir, og ýmsar aðrar sem stofnaðar verða í framtíðinni, geta að sjálfsögðu verið hvar sem er á landinu. Þær þurfa ekkert að vera alveg uppí innanlandsflugvellinum eins og menn hafa haldið fram í áratugi.... . Með kveðju Sigurður Jónsson Kanada (og Ísafirði) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Silfur Egils Silfur-Bréf Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun