Dregur úr of háu kólesteróli 19. júlí 2004 00:01
Allir vilja hugsa vel um heilsuna og er fólk sífellt meðvitaðra um hvað það lætur ofan í sig. Margir stökkva til og henda öllu því í sem hefur yfirbragð heilsufæðis en átta sig kannski ekki alltaf á því hvað er nákvæmlega svona hollt við vöruna sem það kaupir. Við höfum lært að lesa kaloríur, fitumagn og kolvetnismagn á upplýsingamiðum utan á pakkningum matvæla en einnig rekum við augun í miða sem segja okkur að engan viðbættan sykur sé að finna eða að varan innihaldi hitt og þetta sem þykir eftirsóknarvert eins og til að mynda soja. Grænmetisætur hafa ætíð notað soja mikið og verið vakandi fyrir kostum þess en nú erum við farin að sjá sojavörur í almennum verslunum og er sojamjólkin farin að stela hilluplássi frá kúamjólkinni ásamt sojajógúrt. Miklar rannsóknir hafa verið gerðar á soja og allt bendir til þess að það geti dregið úr hættu á krabbameini, hjartasjúkdómum, beinþynningu og öðrum sjúkdómum. Dagleg inntaka af 25 grömmum á dag af soja getur lækkað hættulega kólesterólið og hefur sú fullyrðing verið staðfest af matvælaeftirlitinu í Bandaríkjunum. Lítið mál er að innbyrða það magn daglega en það næst til að mynda með rúmum 2 glösum af sojamjólk. Ingibjörg Óskarsdóttir, verslunarstjóri Heilsuhússins í Kringlunni, segir að vinsældir á sojavörum hafa aukist verulega og þá sérstaklega á þeim vörum sem koma í stað venjulegra mjólkurafurða en soja sé hollt fyrir alla og sé það allþekkt að það sé sérstaklega gott fyrir konur. Soja inniheldur plöntuprótín, nauðsynlegar fitusýrur og mikilvæg efni eins og járn og sink sem jafnframt finnst í kjöti og er tofu sem unnið er úr soja kjörið fyrir þá sem vilja minnka við sig eða hætta kjötneyslu þar sem sojaprótín inniheldur litla sem enga fitu. Hægt er að fá kalkbætta sojamjólk og má nota hana alveg í stað kúamjólkur bæði til drykkjar og í mat, bakstur og eftirrétti. Hentar það vel þeim sem hafa greinst með mjólkurofnæmi eða hverjum þeim sem vill draga úr neyslu á mjólkurafurðum.
Heilsa Mest lesið Hundleið á að bíða eftir karlmanni og greip í taumana Lífið Flytur ekki inn í lúxusíbúðina Lífið Anora sigurvegari á Óskarnum Bíó og sjónvarp Sýnir vonandi öðrum konum að lífið er ekki búið eftir þrítugt Lífið Tróð Bjarna og fjölskyldu í Toyota Yaris Lífið Steldu stílnum af heimili Kristínar Péturs Lífið Auddi og Steindi í BDSM Lífið Stjörnulífið: Kærleiksríkir menn á Bessastöðum Lífið Tengdist Hopkins í gegnum tólf spora ferlið Lífið Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Lífið samstarf Fleiri fréttir Hendur sem káfa, snerta og breyta „Á fyrsta uppistandi er maður að skíta á sig“ Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira