Elling hennar mömmu sinnar 15. júní 2004 00:01
Þórarinn Þórarinsson fjallar um kvikmyndina Mors Elling Norska gamanmyndin um hrakfarir þeirra herbergisfélaga á Kleppi, Ellings og Kjell-Bjarne, var ein besta myndin sem rataði í kvikmyndahús á Íslandi árið 2001. Sagan af því hvernig þessir geðsjúklingar reyndu að fóta sig í samfélaginu eftir hælisdvölina var drepfyndin án þess að renna út í fíflagang enda áherslan öll á mannlega þáttinn. Þá spillti heldur ekki fyrir að aðalleikararnir skiluðu hlutverkum sínum af svo mikilli næmni að það var ekki annað hægt en að falla fyrir Elling og Kjell-Bjarne og hrífast með. Þessi framhaldsmynd um samband Elling við aldraða móður sína gerist fyrir atburði fyrstu myndarinnar. Þegar hér er komið við sögu býr Elling hjá móður sinni eins og hann hefur alltaf gert. Hann er öllu borubrattari en þegar hann mætti til leiks árið 2001 en er þó engu að síður stjórnsamur áráttusjúklingur með kollinn stútfullan af ranghugmyndum um sjálfan sig og umhverfi sitt. Mamma veit hins vegar hvað hún syngur og vill að miðaldra strákurinn sinn geri meira af því að hitta fólk og skellir sér því með hann í vikuferð til Mallorca. Kerlinginn er í essinu sínu í sólinni en Elling á erfiðara með að fóta sig ekki síst þar sem mamma virðist ætla að finna sér kærasta og sjálfur verður hann fyrir stöðugu áreit frá beru holdi á ströndinni og kynkvötin setur hann allan í keng. Það kemur svo óhjákvæmilega til uppgjörs milli Freuds, móður og sonar og Elling snýr heim breyttur maður að einhverju leyti. Það er auðvitað ávísun á vandræðalegar uppákomur og góða brandara að senda rullukoll eins og Elling til Mallorca og Mors Elling er því hin besta skemmtun. Hún er þó langt því frá jafn þétt og góð og fyrri myndin og þar munar mest um fjarveru Kjell-Bjarne, sem ekki er kominn til sögunnar, en samspil vitleysinganna tveggja var burðarás Elling. Per Christian Ellefsen klikkar þó ekki í hlutverki Ellings frekar en fyrri daginn og það má skemmta sér konunglega yfir vandræðaganginum í honum þó myndin sé hálf brotakennd runa af kunnuglegum "Elling bröndurum."
Bíó og sjónvarp Mest lesið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Lífið Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Lífið „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Tónlist „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Lífið Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Lífið Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Lífið Stjörnufans í eins árs afmæli Lífið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Lífið Fleiri fréttir Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira