Tónlist

Taylor Swift fékk doktorsgráðu frá New York University
Söngkonan Taylor Swift hélt ræðu í gær fyrir útskriftarnema New York University. Í leiðinni tók hún við sérstakri heiðursdoktorsgráðu í listum frá skólanum.

Vala gefur út vögguvísuplötu: „Vonandi hefur þetta róandi áhrif á alla“
Útvarpskonan Vala Eiríksdóttir var að gefa út plötuna Ró. Um er að ræða tíu vögguvísur og þrjár barnasögur sem söngkonan Vala skrifaði sjálf, las og hljóðskreytti.

Óli Dóri er plötusnúður mánaðarins
Dansþáttur þjóðarinnar, PartyZone, útnefnir plötusnúð mánaðarins sem setur saman eitt eða fleiri „mixteip“ með danstónlist. Hann hefur frjálsar hendur og setur saman sett með tónlist sem hann er með í spilun þá stundina og einkennir hann eða hana tónlistarlega.

Systur voru í tíunda sæti á þriðjudaginn
Nú hefur verið opinberað hvernig kosningin var í undankeppnum Eurovision. Systur, sem fluttu framlag Íslands í ár, voru í tíunda sæti á þriðjudag. Tíu lönd komust áfram.

Fullkominn flutningur hjá Systrum
Systur voru landi og þjóð til sóma á Eurovision sviðinu í kvöld. Atriðið heppnaðist mjög vel, alveg eins og á öllum æfingum.

Framlög Úkraínu, Noregs og Hollands klífa alþjóðlegan vinsældarlista hjá Spotify
Lokakeppni Eurovision fer fram í Tórínó í kvöld og munu 25 lög keppa um gler hljóðnemann. Eins og vænta má eru lögin mörg hver orðin gífurlega vinsæl, bæði í Evrópu og sum um allan heim.

Mætt á toppinn og verður því „Aldrei toppað“
Lagið „Aldrei toppað“, flutt af FM95Blö og Aroni Can, skipar fyrsta sæti íslenska listans þessa vikuna. Tíu ára afmælishátíð FM95Blö fór fram með pomp og prakt í gærkvöldi og hefur lagið verið á stöðugri siglingu upp á við að undanförnu.

Eurovisionvaktin: Sögulegur sigur Úkraínu á úrslitakvöldi Eurovision
Úrslitakvöld Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2022 verður haldið í PalaOlimpico-höllinni í Tórínó í kvöld. Eurovisionvaktin á Vísi fylgist náið með þar til yfir lýkur.

Framlag Lettlands tók íslenska lagið í beinni fyrir blaðamenn
Hljómsveitin Citi Zēni keppti fyrir hönd Lettlands í Eurovision í ár. Lagið þeirra Eat Your Salad komst ekki áfram úr undanriðlinum en þeir náðu þó að dreifa boðskap sínum, sem snýst um að velja grænmetisfæðu og hugsa vel um plánetuna. Júrógarðurinn átti líflegt spjall við hljómsveitina, sem söng meðal annars fyrir okkur eigin útgáfu af Með hækkandi sól.

Lokaæfing Systra heppnaðist vel
Systur voru rétt í þessu að klára síðustu æfingu sína fyrir kvöldið.

Þetta eru lögin sem keppa á lokakvöldi Eurovision
Eurovision keppnin nær hámarki í kvöld þegar 25 lönd keppast um að fá glerstyttuna eftirsóttu. Úkraínu er spáð öruggum sigri en sagan hefur kennt okkur að allt getur gerst í þessari keppni.

Rúlluðu upp dómararennslinu og áhorfendur klöppuðu með
Systur luku rétt í þessu við flutning sinn á laginu Með hækkandi sól á dómararennslinu sem fram fer nú í Pala Alpitour höllinni.

Sjáðu Með hækkandi sól á táknmáli
Samskiptamiðstöð heyrnalausra og heyrnaskertra hefur gefið út táknmálsþýðingu íslenska Eurovision-lagsins Með hækkandi sól.

Måneskin mætt heim til Ítalíu vegna Eurovision
Hljómsveitin Måneskin sást saman á hóteli í miðbæ Tórínó fyrr í dag. Rokkararnir koma fram á úrslitakvöldi Eurovsion í Pala Alpitour.

Svona verður uppröðunin á lokakvöldi Eurovision
Nú liggur fyrir að Ísland verður átjánda landið á svið á úrslitakvöldi Eurovision keppninnar á laugardag. Systur eru að rísa ofar í veðbönkunum eftir seinna undankvöldið í gær og eru í tuttugasta sæti þegar þetta er skrifað, Úkraínu er enn spáð sigri.

Vel heppnuð æfing hjá íslenska hópnum en tæknivandamál hjá Corneliu
Rétt í þessu kláruðu Systur sína fyrstu formlegu æfingu á sviðinu fyrir lokakvöld Eurovision. Rennsli þeirra gekk mjög vel og hljómuðu systkinin virkilega vel á sviðinu.

Eurovisionvaktin: Seinna undankvöldið keyrt í gang í Tórínó
Seinna undankvöld Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2022 verður haldið í PalaOlimpico-höllinni í Tórínó í kvöld. Eurovisionvaktin á Vísi fylgist náið með þar til yfir lýkur.

Dönsuðu fyrir blaðamenn á túrkís dreglinum
Brooke keppir fyrir Írland í Eurovision í ár með lagið That's Rich. Brooke keppir á seinna undankvöldinu sem fram fer í kvöld.

Júrógarðurinn: Seinna undanúrslitakvöldið
Í kvöld keppa átján lög á seinna undanúrslitakvöldi Eurovision hér í Tórínó á Ítalíu. Aðeins tíu lög komast áfram á lokakvöldið næstkomandi laugardag.

Systurnar fengu þakkarkveðjur frá úkraínskum hermönnum
Systur hafa eftir fyrri undankeppni Eurovision, sem fór fram á þriðjudag, fengið ótal skilaboða frá Úkraínu þar sem þeim hefur verið þakkað fyrir stuðning sem þær hafa sýnt Úkraínumönnum í keppninni.

Hér eru lögin sem flutt verða á stóra sviðinu í Tórínó í kvöld
Seinna undanúrslitakvöld Eurovision fer fram í Eurovision-höllinni í Tórínó á Ítalíu í kvöld. Átján lönd keppa um tíu sæti í úrslitunum sem fram fara á laugardagskvöld.

Aldrei öskrað jafn hátt á ævinni
Júrógarðurinn var á vaktinni í blaðamannahöllinni í Tórínó í allan gærdag.

Tæknivandamál á æfingu fyrir seinna undankvöldið
Löndin sem keppa á seinna undankvöldi Eurovision annað kvöld æfa nú í höllinni. Þetta er síðasta æfing keppenda fyrir dómararennslið í kvöld en eins og fram hefur komið er það einstaklega mikilvægt.

Íslandi spáð 23. sæti á úrslitakvöldinu
Systurnar Sigga, Beta og Elín munu stíga á svið í seinni hluta á úrslitakvöldi Eurovision sem fer fram í Tórínó á Ítalíu á laugardag. Þær tryggðu Íslandi sæti í úrslitunum í gærkvöldi þvert á slæma spá.

Hvetja foreldra til að elska börnin sín skilyrðislaust
Systurnar Elín, Beta og Sigga Eyþórsdætur stóðu sig með mikilli prýði á blaðamannafundinum eftir keppnina. Hvert atriði sem komst áfram fékk tvær spurningar og svöruðu stelpurnar af miklu öryggi og yfirvegun.

Gítargrip og texti Með hækkandi sól
Fyrri undankeppni Eurovision fer fram í kvöld og Systur munu stíga á svið og flytja Með hækkandi sól fyrir Íslands hönd. Hörðustu Júró-aðdáendur munu líklega blása til teitis í kvöld til að hvetja okkar konur áfram og verður því að gera fólki mögulegt að grípa í gítarinn og syngja með systrum.

Hefur farið 23 sinnum á Eurovision
Peter Fenner er mikill Eurovision spekúlant sem hefur oft á tíðum verið íslenskum hópum innan handar í keppninni og aðstoðað íslenska Eurovision þula. Hann hefur einnig komið að gerð nokkurra íslenskra Eurovision laga á borð við This is my life og Valentine Lost og segist elska íslenska listamenn. Blaðamaður hafði samband við þennan lífskúnstner og fékk hann til að svara nokkrum Júró-spurningum.

Vonar að Ísland verði óvænta lagið sem komist áfram í kvöld
Ísland er ekki á lista yfir þau lönd sem talin eru líkleg að komist áfram upp úr fyrri undanriðli Eurovision í kvöld. Samkvæmt öllum helstu Eurovision-veðbönkum eru 38 prósent líkur á að systurnar komist áfram í kvöld.

Vel heppnað lokarennsli hjá íslenska hópnum: „Hljóðið var fullkomið“
Lokarennsli Systra var að klárast og þær stóðu sig með prýði. Engin tæknivandamál í útsendingunni sem við sáum í blaðamannahöllinni. Blaðamenn klöppuðu að loknu atriði Systra.

Eurovisionvaktin: Engum hlíft á fyrra undankvöldinu
Fyrra undankvöld Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2022 verður haldið í PalaOlimpico-höllinni í Tórínó í kvöld. Eurovisionvaktin á Vísi fylgist náið með þar til yfir lýkur.