Menning

RAX: „Það er eins og kölski sé að horfa beint á okkur“
„Alltaf þegar ég er að fljúga þá er ég alltaf að leita að allskonar fígúrum, formum og andlitum. Ég bjóst nú reyndar ekki við því í Holuhrauni þegar ég fór þangað að sjá einhver andlit.“ Þetta segir Ragnar Axelson um reynslu sína þegar hann myndaði gosið í Holuhrauni árið 2014.

Anna Rún handhafi Guðmunduverðlaunanna 2021
Myndlistarkonan Anna Rún Tryggvadóttir hlaut í dag Guðmunduverðlaunin 2021 og einnar milljóna króna styrk úr Listasjóði Guðmundu. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti Önnu viðurkenninguna í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi í dag en hún er veitt listakonum sem eru taldar skara fram úr á sínu sviði.

Kristín Avon heldur frumlega listasýningu
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á list og hef alltaf haft mikla þörf til að skapa eitthvað,“ segir samfélagsmiðlastjarnan Kristín Avon sem verður með listasýningu í bílakjallaranum við Borgarbókasafnið í Kringlunni á konudaginn.

„Mikill listrænn metnaður var lagður í einstaka muni“
Um helgina opnaði á Hönnunarsafni Ísland sýningin Deiglumór, keramik úr íslenskum leir 1930 – 1970. Á sýningunni verður þetta frjóa tímabili í leirlistarsögunni rifjað upp. Ekki var haldin sérstök sýningaropnun en safnið er opið þriðjudaga til sunnudaga frá frá 12 til 17.

RAX Augnablik: Var smeykur að mynda kónginn í Thule
Ragnar Axelsson heimsótti Thule, sem var nyrsta byggð í heimi, árið 1987. Þar fylgdist hann með veiðimönnum úti á ísnum við Grænland í fyrsta skipti.

Djasstónlistarmaðurinn Chick Corea er allur
Bandaríski djasstónlistarmaðurinn Chick Corea er fallinn frá, 79 ára að aldri. Corea vann á ferli sínum til fjölda Grammy-verðlauna og spilaði með mörgum af goðsögnunum í heimi djasstónlistar.

Þóranna Dögg Björnsdóttir og Þráinn Hjálmarsson stýra Sequences X
Tilkynnt hefur verið að Þóranna Dögg Björnsdóttir og Þráinn Hjálmarsson munu verða sýningarstjórar myndlistarhátíðarinnar Sequences X í október. Elísabet Jökulsdóttir verður heiðurslistamaður hátíðarinnar.

RAX Augnablik: „Sennilega eini fuglinn á Íslandi sem hefur drepið mann“
„Á ákveðnu svæði gekk maður yfir hálfgert sprengjusvæði þar sem að skúmurinn, sem er dálítið grimmur að verja unga sína, ræðst á mann og þeir eru mis grimmir,“ segir Ragnar Axelsson ljósmyndari um daga sína í sveit sem barn, þar sem hann hafði það hlutverk að reka beljurnar heim.

Markmiðið er að heiðra myndlistarmenn hér á landi
Myndlistarráð hefur tilkynnt tilnefningarnar í forvalinu til Íslensku myndlistarverðlaunanna 2021. Veitt eru veitt í tveimur flokkum, myndlistarmaður ársins og hvatningarverðlaun ársins.

RAX Augnablik: „Maður var farinn að halda að maður væri gjörsamlega klikkaður“
Ragnar Axelsson ljósmyndari ólst upp við jöklana. Síðustu áratugi hefur hann flogið ótal ferðir yfir jökla landsins og náð þar stórkostlegum myndum. Hann segir frá þeim í þessum nýja þætti af RAX Augnablik.

„Ég vil ekki vera að predika neitt en vil leyfa fólki að hugsa og horfa“
Í dag opnar sýningin Þar sem heimurinn bráðnar eftir Ragnar Axelsson í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi. Sýningin opnar klukkan tíu en engin formleg opnun var að þessu sinni vegna fjöldatakmarkana.

Elísabet, Arndís, Hulda Sigrún og Sumarliði hrepptu Íslensku bókmenntaverðlaunin
Verðlaunin voru afhent nú rétt í þessu á Bessastöðum að viðstöddu fámenni vegna kórónuveirunnar. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti. Verðlaunin taka til verka sem komu út á árinu 2020.

Átta milljónir til Árnastofnunar vegna heimkomuafmælis handrita
Ríkisstjórnin ákvað í morgun að styrkja Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum um átta milljónir króna vegna heimkomuafmælis handritanna. 50 ár eru brátt liðin frá því fyrstu handritunum var skilað til Íslands frá Danmörku.

Solsidan-leikkonan Mona Malm er látin
Sænska leikkonan Mona Malm, sem gerði garðinn frægan meðal annars fyrir hlutverk sín í myndinni Fanny og Alexander og gamanþáttunum Solsidan, er látin, 85 ára að aldri.

RAX Augnablik: „Maður þurfti að passa sig á þessum gaurum sem voru þarna“
Á leiðtogafundinum í Höfða árið 1986 var Ragnar Axelsson ljósmyndari í hópi fjölmiðlafólksins á staðnum. Hann tók þar eftirminnilegar myndir af Mikhail Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna og Ronald Reagan, forsela Bandarikjanna.

Dularfulli skiltalistamaðurinn er Sigurjón Sighvatsson
Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi stígur nú fram sem sjálfstæður listamaður eftir áratugi „bak við tjöldin“ sem framleiðandi. Hann segist vera með eilítinn sviðsskrekk.

Talar opinskátt um geðhvörf enda engin skömm
Högni Egilsson tónlistarmaður og tónskáld segist ekki hafa passað nægilega vel upp á sjálfan sig um tíma og varð að víkja tímabundið frá tónlistinni vegna veikinda.

Þessi fá listamannalaun árið 2021
Starfslaunum til listamanna fyrir árið 2021 hefur verið úthlutað og hafa tilkynningar til umsækjenda um listamannalaun verið að berast þeim í morgun og nú rétt í þessu var send út tilkynning um hvernig þetta skiptist milli listamannanna.

Tilkynning Helga Tómassonar vekur athygli í listaheiminum
Einn kunnasti listamaður Íslendinga, Helgi Tómasson, tilkynnti í gær að hann hygðist láta af störfum á næsta ári sem listrænn stjórnandi og aðaldanshöfundur San Francisco-ballettsins. Helgi, sem orðinn er 78 ára gamall, tók við stjórn ballettflokksins fyrir 35 árum eftir farsælan feril sem ballettdansari þar sem hann skapaði sér nafn sem einn besti karldansari heims.

Rithöfundurinn Eric Jerome Dickey látinn
Bandaríski metsölurithöfundurinn Eric Jerome Dickey er látinn, 59 ára að aldri. Hann lést um helgina eftir glímu við krabbamein.

Mest seldu bækur ársins 2020: Nýr bóksölukóngur krýndur
Snertingin hans Ólafs Jóhanns Ólafssonar endaði sem mest selda bók ársins samkvæmt Bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda.

RAX Augnablik: „Þetta var falleg vinátta manns og hunds“
Ragnar Axelsson smellti mynd af Axel á Gjögri, þar sem hann sat í bátnum sínum og sagði honum sögu. Á steini við hlið hans var hundurinn Týri, en ljósmyndarinn bað ekki um leyfi áður en hann tók þessa einstöku mynd.

„Við förum bara þegar þú kemur næst“
Ragnar Axelsson ljósmyndari hitti fyrst Halldór Agnar Jónasson á sjúkrahúsinu á Akureyri. Halldór, betur þekktur sem Dóri, var þá með Covid-19 og barðist fyrir lífi sínu. Hann sagði við RAX að hann hafði valið að fara ekki í öndunarvél, taldi að hann myndi ekki lifa það af.

„Eins og að vera einn í heiminum“
Síðustu mánuði hefur ljósmyndarinn Ragnar Axelsson myndað lífið á Íslandi á tímum Covid-19 og skrásett áhrifin á okkar samfélag. Hér á Vísi munu birtast nokkrir myndaþættir með einstökum ljósmyndum RAX frá þessu óvenjulega og erfiða ári. Þetta er sá fyrsti í röðinni.

RAX Augnablik: „Heyrði byssukúlu smella í steini fyrir aftan“
Árið 1997 ferðaðist Ragnar Axelsson um Austurströnd Grænlands og myndaði þar náttúruna, dýrin og mannlífið.

Ólafur Jóhann skýtur glæpasagnaþríeykinu ref fyrir rass
Ólafur Jóhann Ólafsson hefur komið sér vel fyrir í fyrsta sæti bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda (Fibut) með Snertingu sem hlotið hefur verðskuldað lof lesenda og gagnrýnenda, auk þess að vera einn besti titill ársins.

„Eins og að vera meinlaus einræðisherra í mjög litlu landi“
„Mig langaði sjálfri að fara til Grísafjarðar en átti ekki fyrir því svo ég byrjaði að skrifa sögu um fólk sem fer þangað,“ segir Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir um barnabókina Grísafjörður, sem hún gaf út fyrir jólin.

RAX Augnablik: „Daginn eftir varð gufusprenging í gígnum þar sem við höfðum staðið“
Fimm vikum eftir Gjálpargosið kom hlaupið niður. RAX var í fríi og var að spila fótbolta við sex ára son sinn þegar hann fékk símtal og var beðinn um að fara að mynda aðstæður.

Fyrsti karlinn í fjölskyldunni sem hefur ekki átt mótorhjól
Ein er sú bók í jólabókaflóðinu sem áhugafólk um bókmenntir ætti alls ekki að láta fram hjá sér fara: Dauði skógar eftir Jónas Reyni Gunnarsson.

Síðasti bóksölulistinn fyrir jól: Ólafur Jóhann veltir Arnaldi úr hásæti sínu
Bóksala hefur sjaldan eða aldrei verið meiri en nú.