Menning
190 191 192 193 194 195 196 197 198 … 334 ›
Myndlistin fer á vefinn Breski safnarinn og auðkýfingurinn Charles Saatchi rekur vef fyrir unga myndlistarmenn í tengslum við safn sitt í London: www.saatchi-gallery.co.uk/stuart. Þangað koma nú þrjár milljónir innlita á degi hverjum. Á vef safnsins er slóð fyrir listamenn, Your Gallery, og eru ríflega 25 þúsund listamenn með verk sín skráð þar og til sölu. Menning 29.12.2006 15:00
Menn eru svona og svona Í kvöld verður fyrsti flutningur á Landnámssetrinu í Borgarnesi á dagskrá – söngatriði með spjalli eða eintali með innskotum og tónlist – þar sem KK og Einar Kárason rifja upp feril þess fyrrnefnda. Þar byggja þeir á samstarfi sínu fyrir nokkrum misserum þegar Einar skráði sögu KK, Þangað sem vindurinn blæs. Menning 29.12.2006 14:00
Harry Potter feigur Líkurnar á að skáldsagnapersónan Harry Potter lifi af í nýjustu bókinni eru hverfandi að mati veð-mangara. Talið er nær öruggt að Potter láti lífið í Dauðaköllunum og er illmennið Voldemort talinn líklegasti morðinginn. Margir hafa einnig veðjað á að Harry verði sjálfum sér að bana í því skyni að tortíma Voldemort. Menning 29.12.2006 11:00
Endurrómur upphafsins - Tvær stjörnur Metnaðarfull ljóðabók en mjög óþroskaður skáldskapur. Skáldið leitar hinstu raka og þráspyr sjálft sig um eðli veruleikans. Menning 28.12.2006 14:30
Dætur hússins - Tvær stjörnur Thérése og Léonie hittast aftur eftir tuttugu ára aðskilnað. Mæður þeirra voru systur sem bjuggu undir sama þaki eftir að móðir Thérése veiktist af sjúkdómi sem dró hana á endanum til dauða. Þá var móðir Léonie þegar orðin ekkja. Ytri rammi sögunnar fjallar um þann tíma, einkum unglingsárin, áður en Thérése gengur í klaustur. Ekki þó þannig að þær rifji upp þann tíma, heldur gerir sögumaður það. Menning 28.12.2006 10:30
Alvarlega hipp í Safni Haldið er áfram á þeirri braut sem Safn á Laugaveginum í Reykjavík lagði inn á fyrir nokkru að halda gerninga/sýningar í gluggum gamla Faco á Laugaveginum. Á morgun verður fluttur metnaðarfullur dansgjörningur Safns þar og verður aðeins fluttur einu sinni, kl. 18. Menning 28.12.2006 08:30
Rowling afhjúpar titilinn Sjöunda og síðasta bókin um galdrastrákinn Harry Potter mun heita Harry Potter and the Deathly Hallows. Þykir titillinn vísa í myrkt umfjöllunarefni lokabókarinnar. Enn á eftir að finna íslenskan titil á bókina. Menning 23.12.2006 11:45
Úr ólíkum áttum Rithöfundar og fjármálaspekúlantar ætla að lesa upp úr bókmenntaverkum sínum í Anima galleríi í kvöld og annað kvöld og sætir það vissum tíðindum því ekki er algengt að slíkir leiði saman hesta sína. Menning 21.12.2006 15:45
Árita bækur sínar Eiríkur Guðmundsson og Steinar Bragi árita bækur sínar í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, klukkan sex miðvikudaginn 20. desember. Menning 19.12.2006 11:23
Nostrað við hlustir Hljóðlistamaðurinn Þóranna Dögg Björnsdóttir býður gestum til sætis í Gel galleríi við Hverfisgötu þar sem hún flytur persónulegt lifandi tónverk fyrir hvern og einn. Hún vill þannig beina athygli fólks á nýstárlegan máta að hljóðheiminum umhverfis okkur. Menning 18.12.2006 14:30
Steinar um Stein Steinar Rithöfundurinn Steinar Bragi mun lesa upp úr bók sinni, Hið stórfenglega leyndarmál Heimsins, í tóbaksversluninni Björk í Bankastræti kl. 20.30 í kvöld. Menning 16.12.2006 16:15
Síðkaþólskt gæðapopp Lofsvert framtak að gefa út kveðskap Jóns Arasonar biskups. Kemur nú fyrsta sinni á bók í heild sinni – með vönduðum skýringum Kára Bjarnasonar og greinargóðum inngangi Ásgeirs Jónssonar. Menning 16.12.2006 16:00
Mættir Max og Mórits Um kaffileytið geta göngumenn af Laugaveginum skotist inn í Súfistann og ornað sér við veitingar, söng og lestur úr sígildum kvæðabálki Vilhelm Busch af hrekkjusvínunum Max og Mórits og þeirra grimmilegu örlögum. Menning 16.12.2006 14:00
Listamenn heimsóttir Í húsi listamanns er safn viðtala sem birtust í Morgunblaðinu á árunum 1980 til 1982 og 1998. Í viðtölunum heimsækir höfundur íslenska listamenn sem flestir eru gengnir og bregður upp svipmyndum af þeim. Í flestum tilfellum setur höfundur sig í stellingar áhorfandans, fylgist með viðkomandi listamanni á heimilinu eða á vinnustofunni og ritar athugasemdir sem frá þeim falla um lífið, listina, samfélagið. Menning 16.12.2006 12:45
Víða opin hús í dag Myndlistarfólk er tekið að stunda það helgar fyrir hátíðir að opna vinnstofur sínar almenningi og bjóða verk til sölu, stór og smá, Stöllurnar Ólöf Björg, Svava K. Egilson og Alice Olivia Clarke reka sameiginlega vinnustofu í Hafnarfirðinum í húsinu Dverg sem er á Brekkugötu 2 við Lækjargötu í hjarta bæjarins. Menning 16.12.2006 11:00
Samtal við listasöguna Sýningin Frelsun litarins verður opnuð í Listasafni Íslands í dag. Um er að ræða tímamótasýningu á verkum frönsku expressjónistanna, eða fauvistanna, og geta gestir nú í fyrsta sinn barið augum verk málara á borð við Renoir og Matisse hér á landi. Menning 15.12.2006 14:15
Jólalegur kokteill Nemendur Kramhússins efna til Jólagleði í Borgarleikhúsinu á morgun og sýna margslungnar listir sínar. Leyndir hæfileikar fá þar að njóta sín og munu stíga á svið hversdagsstjörnur úr hinum íslenska veruleika. Menning 15.12.2006 12:30
Enginn dregur stein í efa Þjóðskáld á tímamótum, degi hallar. Skáld sem fylgt hefur ljóðvinum á heillandi ferðalagi hálfrar aldar um innland íslenskrar náttúru og sögu - þar sem stórhuga maðurinn leitar átta í skjálfandi smæð (29). Menning 15.12.2006 11:15
Ljósmóðurfræði frá fyrri tíð Nýlega kom út bókin Sá nýi yfirsetukvennaskóli hjá Söguspekingastifti, en bókin kom fyrst út á Hólum í Hjaltadal árið 1749. Bragi Þorgrímur Ólafsson, sagnfræðingur á handritadeild Landsbókasafns, bjó til prentunar og ritaði inngang. Bókin er fyrsta ritið um ljósmóðurfræði sem kom út á íslensku og var notuð við kennslu yfirsetukvenna þegar landlæknisembættið var stofnað árið 1760. Menning 14.12.2006 13:30
Kynslóð ungskálda Ljósmyndasýningin ,,Skrásetning kynslóðar“ verður opnuð í Borgarbókasafninu í Grófarhúsi á morgun kl. 17. Þar sýnir Björn M. Sigurjónsson portrett af ungum íslenskum rithöfundum og listamönnum. Menning 14.12.2006 13:15
Gjöf til barnanna í landinu Úrval verka Vilborgar Dagbjartsdóttur kemur út hjá forlaginu JPV með yfirskriftinni Fugl og fiskur. Í bókinni eru ljóð og sögur Vilborgar handa börnum sem komið hafa út á árabilinu 1955-2005, fallega myndskreytt af listakonunni Önnu Cynthiu Leplar. Menning 14.12.2006 12:00
Flugeldasýning frá Guðbergi Árið 2006 ætlar að verða bókmenntaárið mikla. Það er sé til þess litið að útdeilendur Gullmiðans gátu fundið fimm ný skáldverk sem þeir vilja meina að sé betri en 1 ½ bók – Hryllileg saga eftir Guðberg Bergsson. Því hér er um flugeldasýningu að ræða. Guðbergur verður bara betri með árunum. Menning 14.12.2006 11:15
Trúin á spurningarmerkið Ljóðið skín í skammdeginu á Fróni og nú sendir Einar Már frá sér bók sem gefur fyrri bókum hans ekkert eftir, ljóðum jafnt sem prósa. Fantagóð semsé. Djarfur, hvass, fyndinn og ögrandi - jafnt í orði sem erindi. Síbryðjandi vísdómsjaxl með djúpa rót í kvikunni. Menning 13.12.2006 17:30
Günter Grass rétt sáttarhönd Rithöfundurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Günter Grass opnaði nýverið myndlistarsýningu í Slésíska safninu (Schlesisches Museum) í Görlitz í Þýskalandi. Menning 13.12.2006 12:45
Rithöfundar með jólahroll Það verður jólahrollur í Þjóðmenningarhúsinu fram að jólum en þar verður boðið upp á samnefnda upplestrardagskrá. Tólf rithöfundar eða staðgenglar þeirra munu kveðja sér hljóðs þar líkt og jólasveinarnir sem tínast nú til byggða einn af öðrum, og lesa úr nýjum spennusögum. Menning 12.12.2006 10:00
Þýðingarnar reifaðar Stofnun Vigdísar Finnbogadóttir gengst fyrir stuttri fyrirlestraröð um þýðingar nú fyrir jólin. Í dag halda þýðendurnir Guðni Kolbeinsson og Guðlaugur Bergmundsson erindi í Lögbergi, stofu 101. Menning 12.12.2006 08:00
Upplestur í boði Bjarts Klukkan tvö á sunnudaginn 10. desember, verður lesið upp úr nýjum Bjartsbókum í bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18. Menning 9.12.2006 18:52
Kristjáns Eldjárns minnst Í dag eru 90 ár liðin frá fæðingu dr. Kristjáns Eldjárns, fyrrverandi þjóðminjavarðar og forseta Íslands. Í tilefni af því er efnt til hátíðadagskrár í Þjóðminjasafni Íslands sem hefst á hádegi í fyrirlestrarsal safnsins. Menning 6.12.2006 15:45
Nöfn og þjóðtrú: Þemakvöld Félags þjóðfræðinga á Íslandi Næsta þemakvöld Félags þjóðfræðinga verður fimmtudaginn 7. desember kl. 20.00. Fyrirlesarar eru Svavar Sigmundsson og Kendra Willson. Þemakvöldið fer að venju fram í húsi Sögufélagsins við Fischersund. Menning 5.12.2006 10:30
Barnabókadagar á Amtsbókasafninu Í tilefni af sérstökum barnabókadögum á Amtsbókasafninu á Akureyri munu eftirfarandi höfundar koma á bókasafnið og lesa upp úr bókum sínum. Menning 5.12.2006 10:07