Innlent
78 79 80 81 82 83 84 85 86 … 334 ›
Sjúkdómar ógna velferð íslenska hestsins í síauknum mæli Efnaskiptasjúkdómar eru vaxandi vandamál í íslenska hrossastofninum. Eigendur og umráðamenn hrossa eru hvattir til að þekkja til þessara sjúkdóma en þeir hafa haft þær afleiðingar að sífellt fleirri hross þjást af hófsperru og fleiri fylgikvillum. Innlent 24.8.2024 14:43
Öllum velkomið að skoða fornminjar á Hrafnseyri Það verður mikið um að vera á Hrafnseyri við Arnarfjörð á morgun, sunnudag, því þá verður sérstakur fornminjadagur þar sem gestum og gangandi er boðið að fá kynningu á fornminjum á Hrafnseyri, auk þess að skoða Auðkúlu, en þar hefur verið grafið upp landnámsbýli. Innlent 24.8.2024 14:32
„Vonum að þetta sé ekki síðasti sumardagurinn“ Dagskrá Menningarnætur var sett af stað með pompi og prakt í hádeginu þar sem Einar Þorsteinsson borgarstjóri opnaði hátíðina formlega. Guðmundur Birgir Halldórsson, verkefnastjóri viðburða hjá Reykjavíkurborg segir dagskránna í dag vera þá veglegustu og hvetur fólk til að vera ekkert að bíða eftir kvöldinu og drífa sig niður í miðbæ. Innlent 24.8.2024 12:18
Skriður fallið við báða enda Strákaganga Óvissustig er enn í gildi á Norðurlandi eystra vegna hættu á skriðuföllum og vatnavöxtum. Siglufjarðarvegur er lokaður vegna grjóthruns og hafa skriður fallið á veginn við báða enda Strákaganga. Innlent 24.8.2024 12:08
Litlar breytingar á eldgosinu, skriðuhætta og maraþon Litlar breytingar hafa orðið á virkni eldgossins á Sundhúksgígaröðinni frá því í gær, þegar verulega dró úr krafti þess. Gasmengun berst til suðurs í átt að Grindavík, sem er opin íbúum og fólki sem þar starfar. Bláa lónið opnaði í morgun. Innlent 24.8.2024 11:50
Þrjú heimili rýmd á Húsavík í nótt Slökkviliðið á Húsavík var kallað út um miðnætti í nótt vegna aurskriðu sem féll við Skálabrekku í bænum. Rýma þurfti þrjú hús vegna þessa en mikið vatn og jarðvegur rann fram úr fjallshlíðinni. Innlent 24.8.2024 11:42
Gasmengun leggst yfir Grindavík í dag Eldgosið virðist hafa náð jafnvægi í gærkvöldi og er virknin öll norðan við Stóra-Skógfell. Gasmengun mun berast til suðurs, yfir Grindavík, í dag enda norðlæg átt á gosstöðvunum. Gasmengun við eldstöðina getur farið yfir hættumörk í dag. Innlent 24.8.2024 09:54
Virknin svipuð og jafnvel dregið úr henni Lítið er að frétta af eldgosinu í Sundhnúksgígaröðinni á þriðja degi goss og hefur það náð vissu jafnvægi, að sögn náttúruvársérfræðings. Innlent 24.8.2024 07:32
Húsbíll valt í hvassviðri í Kömbunum Þrír sluppu ómeiddir þegar húsbíll valt og hafnaði utan þjóðvegarins ofarlega í Kömbunum í kvöld. Gul viðvörun vegna hvassviðris tók gildi á Suðurlandi klukkan níu og segir aðalvarðstjóri hjá lögreglunni ekki stætt á Hellisheiði. Innlent 23.8.2024 22:33
Sjá ekki fyrir endann á eldsumbrotum á Reykjanesskaga Ekki sér enn fyrir endann á þeirri eldvirkni sem hófst á Reykjanesskaga fyrir þremur árum, að sögn jarðeðlisfræðings. Hann útilokar þó að búast megi lengi áfram við stöðugum eldgosum á nokkurra mánaða fresti. Innlent 23.8.2024 21:54
Tvö hjólhýsi splundruðust í vindhviðum á Lyngdalsheiði Engin slys urðu á fólki þegar sendiferðabíll valt og endaði á þakinu og tvö hjólhýsi splundruðust í sterkum vindhviðum á Lyngdalsheiði síðdegis. Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi segir ekkert ferðaveður með ferðavagna á svæðinu. Innlent 23.8.2024 19:58
Óvissustig vegna rigningar og skriðuhættu á Tröllaskaga Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi vegna mikillar rigningar og aukinnar hættu á skriðuföllum á Tröllaskaga. Hluta Siglufjarðarvegur hefur verið lokað vegna grjóthruns. Innlent 23.8.2024 18:15
Dregið úr virkni eldgossins, harmleikur í Neskaupstað og nóróveiran Dregið hefur úr virkni eldgossins sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni í gærkvöldi og viðbúnaður almannavarna færður af neyðarstigi á hættustig. Við verðum í beinni frá gosstöðvunum og ræðum við jarðeðlisfræðing í myndveri. Innlent 23.8.2024 18:00
Ók fram af kanti og lenti ofan á þaki á öðrum bíl Engan sakaði þegar ökumaður ók fram af háum kanti í bílastæði þannig að bíll hans hafnaði ofan á þakinu á annarri bifreið sem var lagt fyrir neðan. Töluverðar skemmdir urðu aftur á móti báðum bílum. Innlent 23.8.2024 17:23
Fara af neyðarstigi og hleypa fólki í Bláa lónið og til Grindavíkur Starfsemi hefst í Bláa lóninu og hjá Northern Light Inn að öllu óbreyttu í fyrramálið. Þá verður rýmingu Grindavíkur aflétt og íbúum sem og öðrum sem eiga þangað erindi hleypt aftur inn í bæinn. Ríkislögreglustjóri hefur fært almannavarnastig af neyðarstigi niður á hættustig. Verulega hefur dregið úr krafti gossins og hraun rennur ekki suður í átt að Grindavík. Innlent 23.8.2024 17:21
Óvíst hvernig skólahópurinn smitaðist Allt bendir til að upp hafi komið nóróveirusmit í Emstruskála, Básum og í Þórsmörk þar sem hátt í fimmtíu börn og sjö fullorðnir veiktust í nótt. Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir óljóst hvernig smitið kom upp. Innlent 23.8.2024 17:18
Segir óvissuna óafsakanlega og óviðunandi Umboðsmaður barna segir „óafsakanlegt“ að ekkert samræmt námsmat hafi tekið við þegar samræmd könnunarpróf voru afnumin í grunnskólum. Óvissan sem hafi skapast sé með öllu óviðunandi. Innlent 23.8.2024 16:36
Skoða kreditkortagögn og rannsaka tengsl grunaða við hjónin Tengsl voru milli hins grunaða og eldri hjóna sem fundust látin á Neskaupstað í gær. Notast er við gögn um kreditkortanotkun og ferðir hins grunaða til að reyna að ná utan um atburðarásina. Innlent 23.8.2024 16:00
Margir að skoða gosið og mikil umferð Fjölmargir ferðamenn hafa gert séð ferð til að sjá eldgosið við Sundhnúksgígaröðina í dag. Á Grindavíkurvegi er hægt að leggja bílnum og í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum kom fram fyrr í dag að búið væri að taka niður hámarkshraða til að tryggja öryggi. Innlent 23.8.2024 15:55
Færri ofbeldisbrot á skemmtistöðum sem taka þátt í verkefninu Samkomulag um ofbeldislausa og örugga skemmtistaði var undirritað í dag. Þetta er í fimmta sinn sem verkefnið er undirritað. Markmiðið samningsins er að skemmtistaðir í Reykjavík séu ofbeldislausir og öruggir, fyrir alla gesti og starfsfólk. Samkomulagið var fyrst undirritað árið 2016 og þá áttu 17 skemmtistaðir aðild að samkomulaginu en í dag eru þeir þrjátíu. Innlent 23.8.2024 14:52
Hlupu blaut úr Bláa lóninu Andrew & Ale Kenney voru í Bláa lóninu í gær þegar tilkynnt var um rýmingu vegna mögulegs eldgoss eða kvikuhlaups. Í myndböndum sem þau deildu á samfélagsmiðlinum TikTok kemur fram að þau hafi þurft að hlaupa blaut út. Á leið frá Bláa lóninu sáu þau svo eldgosið sem þá var nýhafið. Innlent 23.8.2024 14:19
Allt bendi til samsæris gegn íslensku þjóðinni Formaður Leigjendasamtakanna sakar stjórnvöld um að vísvitandi búa til þjóðfélagshóp sem búi ekki við húsnæðisöryggi og segir staðan á leigumarkaði talsvert verri en tölur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar gefa til kynna. Innlent 23.8.2024 14:02
Einkenni nóróveiru komin fram „Einkennin eru ansi grunsamleg fyrir nóróveiru, sem er mjög smitandi og getur valdið hópsýkingum.“ Innlent 23.8.2024 13:45
Úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. ágúst Fallist hefur verið á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi um gæsluvarðhald og einangrun til 30. ágúst yfir manni sem handtekinn var í tengslum við andlát hjóna á Neskaupstað. Krafan var tekin fyrir í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 23.8.2024 13:45
Fótbrotnaði í nótt á leið að gosstöðvum Lögeglan á Suðurnesjum sinnti í nótt útkalli vegna manns sem hafði lagt af stað að upptökum eldgossins frá Reykjanesbraut og fótbrotnaði í gjótu. Innlent 23.8.2024 13:30
Veðurstofan hefur litlar áhyggjur af hlaupinu Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir yfirstandandi Skaftárhlaup vera langt frá því að vera nokkur ógn við vegi og innviði á svæðinu og að Veðurstofan hafi litlar áhyggjur af því eins og staðan er. Innlent 23.8.2024 12:08
Baráttan um Bandaríkin: 73 dagar til kosninga og spennan magnast Staðan í kosningabaráttunni vestanhafs, frambjóðendurnir og málefnin verða meðal umræðuefna í fyrsta þætti nýrrar þáttaraðar á Vísi; Baráttan um Bandaríkin. Innlent 23.8.2024 12:02
Flæðir inn á hús á Eyrinni í úrhellisrigningu Dæla í fráveitukerfinu á Siglufirði bilaði í nótt. Úrhellisrigning er á svæðinu og gul viðvörun í gildi. Í tilkynningu frá Fjallabyggð kemur fram að unnið sé að viðgerðum á dælunni en vegna mikillar úrkomu hafi flætt inn í nokkur hús á Eyrinni. Í morgun hafði mælst 92 millimetra úrkoma. Eigendur húsa á Eyrinni eru beðnir að huga að kjöllurum í húsum sínum Innlent 23.8.2024 11:52
Eftirlitið á kafi vegna fjölda smita Lögregla, sóttvarnarlæknir og heilbrigðiseftirlit róa nú öllum árum að því að rekja uppruna veikinda sem komu upp hjá stórum hópi ferðafólks í Emstrum og Básum í gærkvöldi og í morgun. Innlent 23.8.2024 11:44
„Þetta er mikið fyrir lítið bæjarfélag“ Forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar segir mikla sorg í samfélaginu í Norðfirði vegna þeirra voveiflegu atburða sem borið hafa að í Neskaupstað síðastliðna viku. Í gær var minningarstund haldin í Norðfjarðarkirkju helguð minningu manns á fertugsaldri sem lést af slysförum á veiðum á þriðjudaginn í skugga þess að hjón fundust látin og maður í Reykjavík handtekinn í tengslum við málið. Talið er að andlátin hafi borið að með saknæmum hætti. Innlent 23.8.2024 11:41