Innlent

Kjör­dagur runninn upp

Í hádegisfréttum verða sveitastjórnarkosningarnar allsráðandi. Við ræðum við formann yfirkjörstjórnar í Reykjavík um kjörsókn og förum ítarlega yfir nýjustu kosningaspá Vísis sem gefur vísbendingar um nýja möguleika á meirihlutasamstarfi.

Innlent

Kosningaspá Vísis: Nýr mögu­leiki opnast til hægri

Yfir helmingslíkur eru á því að Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Framsóknarflokkurinn gætu myndað meirihluta í borginni samkvæmt kosningaspá Vísis. Um er að ræða eina raunhæfa möguleikann á þriggja flokka meirihluta eftir að Viðreisn útilokaði samstarf við Miðflokkinn í kappræðum. Lesendur geta reiknað líkur á ólíkum möguleikum hér að neðan.

Innlent

Sjálf­stæðis­flokkur stærstur en nær ekki meiri­hluta með Miðflokki og Fram­sókn

Sjálfstæðisflokkurinn bætir enn við sig fylgi og mælist langstærstur í borginni í síðustu könnun Maskínu fyrir kosningar. Sitjandi meirihluti er fallinn en ólíkt síðustu könnun Gallup myndi Sjálfstæðisflokkur ekki ná að mynda þriggja flokka meirihluta með Miðflokknum og Framsókn. Í stað þess gæti Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn náð saman meirihluta með Viðreisn. 

Innlent

„Ég veit ekki al­veg hvernig stendur á þessu“

Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á níunda tímanum vegna gruns um eld í ruslageymslu í Jórufelli í Efra-Breiðholti í Reykjavík. Þegar fyrstu dælubílar komu á staðinn reyndist enginn eldur vera á staðnum.

Innlent

Tókust á um fjölda borgar­full­trúa

Skiptar skoðanir eru á því meðal oddvita í kosningum til borgarstjórnar um fjölda borgarfulltrúa. Þeir eru nú 23 talsins en voru um árabil fimmtán. Einn oddvita segir um lýðræðismál að ræða en annar segir fjölda borgarfulltrúa þann mesta sem gerist hér á landi miðað við nágrannalöndin.

Innlent

Tók debet­kort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón

Starfsmaður á hjúkrunarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum hefur verið dæmd fyrir að hafa tekið debetkort af vistmanni og greitt fyrir vörur og þjónustu að andvirði ríflega 1,2 milljóna íslenskra króna. Þannig er henni gert að hafa misnotað stöðu sína en vistmaðurinn er í dómnum sagður vera með vitræna skerðingu, vangetu til þess að átta sig á fjármálum og háður hinni ákærðu um þjónustu.

Innlent

„Auð­vitað, við erum lang­besti flokkurinn“

Það er ekki bara kosið á morgun því nemendur í Dalskóla héldu kosningar í dag þar sem kosið var um stefnuskrár flokka sem nemendur höfðu stofnað. Meðal stefnumála var að hafa frítt í strætó auk kröfu um að nemendum væri kennt á lífið sem tekur við að skólagöngu lokinni.

Innlent

Framinn þjófnaður á fjórum stöðum í dag

Ekið var á hjólreiðamann í Hlíðunum í dag en sá brást við með því að láta höggum rigna yfir bifreiðina svo sást á bílnum. Manninn sakaði ekki. Þá var tilkynnt um þjófnað á fjórum mismunandi stöðum í dag en meðal annars var verkfærum stolið í Árbæ.

Innlent

Skálm­öld hafði betur fyrir dómi

Meðlimir Skálmaldar hafi lagt útgáfufyrirtækið Öldu music í deilu um út­gáfurétt á plötunni með upp­tökum frá tón­leikum Skálmaldar og Sin­fóníu­hljómsveitar Ís­lands.

Innlent

Út­strikanir gætu haft á­hrif en þær virka svona

Erfitt er að setja fingur á hve mörg prósent kjósenda þurfa að strika út frambjóðanda til fella hann niður um sæti. Ljóst er að útstrikanir gætu haft áhrif í kosningunum en dæmi eru um að frambjóðendur séu strikaðir út og falli þar með niður um sæti, meðal annars í sveitarstjórnarkosningum fyrir fjórum árum.

Innlent

„Sam­fylkingin í Reykja­vík er kvenna­gildra“

Oddvitar í Reykjavík tókust á um leikskólamálin í kappræðum Sýnar á miðvikudaginn. Frambjóðendur voru fyrst beðnir um að svara því hvort Reykjavík stæði sig vel í leikskólamálum sem allir þeirra svöruðu neitandi.

Innlent

Kosning um sam­einingu sveitar­fé­laganna ó­gild

Innviðaráðuneytið hefur ógilt íbúakosningar um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps sem fóru fram í mars vegna ágalla. Sveitarstjórnir beri að ákveða í sameiningu hvenær önnur kosning fari fram en ljóst sé að kosið verði til sveitarstjórna í báðum sveitarfélögum á morgun.

Innlent

„Elsku pabbi, guð varð­veiti þig og blessi“

Ástvaldur Einar Steinsson, sjómaður og netagerðarmaður, er látinn, 95 ára að aldri. Inga Sæland, dóttir hans og mennta- og barnamálaráðherra, greindi frá andláti Ástvaldar í hjartnæmu myndbandi á Facebook fyrr í dag.

Innlent

Sigfríð Ingólfs­dóttir er látin

Sigfríð Ingólfsdóttir, fyrrverandi fiskverkakona á Akureyri og einn þekktasti Arsenal-stuðningsmaður landsins, er látin, 73 ára að aldri. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu, Aðalstræti 5, laugardaginn 9. maí.

Innlent

Land­læknir braut á deildar­stjóra réttargeðdeildar

Landsréttur hefur dæmt íslenska ríkið til þess að greiða fyrrverandi deildarstjóra réttar- og öryggisdeildar Landspítalans 800 þúsund krónur í miskabætur vegna brots á persónuverndarlögum. Landlæknir greindi Geðhjálp frá því að deildarstjórinn hefði verið settur í ótímabundið leyfi í tengslum við alvarlegar ábendingar um slæman aðbúnað á öryggis- og réttargeðdeildum Landspítalans.

Innlent