Erlent
195 196 197 198 199 200 201 202 203 … 334 ›
Víða rafmagnlaust eftir enn eitt stýriflaugaregnið Rafmagnslaust varð víða í borgum Úkraínu í dag eftir að Rússar skutu tugum stýriflauga að ríkinu. Loftvarnir Úkraínu eru sagðar hafa skotið niður flestar stýriflaugarnar en minnst tveir eru látnir í Saporisjía-héraði. Erlent 5.12.2022 15:35
Fjórtán ára stúlka látin og önnur slösuð eftir stunguárás Fjórtán ára stúlka er látin eftir hnífstunguárás í bænum Illerkirchberg í suðvesturhluta Þýskalands. Önnur stelpa, þrettán ára gömul, liggur þungt haldin inni á spítala. Erlent 5.12.2022 14:39
Uppljóstrun Musks reyndist rýr í roðinu Elon Musk og blaðamaðurinn Matt Taibbi tístu um helgina um gögn frá Twitter sem fjölluðu um þá ákvörðun þáverandi forsvarsmanna fyrirtækisins um að banna frétt um Hunter Biden, son Joe Biden, núverandi forseta Bandaríkjanna. Erlent 5.12.2022 12:51
Dularfullar sprengingar á tveimur herstöðvum í Rússlandi Nokkrir eru látnir eftir sprengingar á tveimur herflugvöllum í Rússlandi. Báðir vellirnir eru í hundruð kílómetra fjarlægð frá landamærunum að Úkraínu; nærri borginni Ryazan og í Saratov. Erlent 5.12.2022 12:48
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um kjaraviðræður en samningur Starfsgreinasambandsins við SA fær ekki góðan hljómgrunn hjá VR og Eflingu. Erlent 5.12.2022 11:32
Heilu þorpin grafin undir ösku og leðju Björgunarsveitir hafa unnið hörðum höndum að því að flytja fólk af svæðinu í kringum eldfjallið Semeru á Austur-Jövu í Indónesíu. Eldgosið byrjaði að spúa ösku í gær en hún náði meira en 1.500 metra í loftið og liggja heilu þorpin undir ösku og leðju. Erlent 5.12.2022 10:14
Kaspíaselir drápust í þúsundatali Um 2500 kaspíaselir hafa fundist dauðir meðfram strandlengju Rússlands við Kaspíahaf í suðurhluta Rússlands. Erlent 5.12.2022 08:14
Hafa borið kennsl á fleiri en 100 „lögreglustöðvar“ Kína erlendis Spænsku mannréttindasamtökin Safeguard Defenders segja stjórnvöld í Kína starfrækja fleiri en hundrað óopinberar „lögreglustöðvar“ út um allan heim. Erlent 5.12.2022 07:37
Sakfelldur fyrir að hjálpa konum að eignast börn Danskur karlmaður hefur verið sektaður um andvirði hálfrar milljónar íslenskra króna fyrir að gefa konum sæði sitt svo þær geti eignast barn. Maðurinn eignast brátt sitt 19. barn. Erlent 4.12.2022 16:01
Sagði að siðgæðislögreglan væri úr myndinni Ríkissaksóknari í Íran segir að siðgæðislögreglan þar í landi hafi verið tekin úr umferð. Mótmæli hafa geisað nær linnulaust í landinu frá því að ung kona lést í haldi siðgæðislögreglunnar. Erlent 4.12.2022 14:24
Eldgosið ógnar sögulegri loftslagsmæliröð Athuganastöð sem mælir styrk koltvísýrings á Mauna Loa á Havaí hefur verið stopp frá því að eldgos hófst í fjallinu fyrir rúmri viku. Mæliröðin þar er sú elsta samfellda um vaxandi styrk gróðurhúsalofttegundarinnar í lofthjúpi jarðar. Erlent 4.12.2022 13:41
Setja ofan í við Trump sem vill víkja stjórnarskránni til hliðar Hvíta húsið gefur lítið fyrir yfirlýsingar Donalds Trump, fyrrverandi forseta og forsetaframbjóðenda, um að fella ætti stjórnarskrá Bandaríkjanna úr gildi og setja hann sjálfan aftur í embætti. Erlent 4.12.2022 10:25
Gengu í geimnum til að setja upp sólarsellur Tveir bandarískir geimfarar fóru í geimgöngu fyrir utan Alþjóðlegu geimstöðina á braut um jörðu í gær. Verkefni þeirra var að festa tvær nýjar raðir af sólarsellum utan á geimstöðina. Geimstöðin hefur ný birt myndband frá göngunni. Erlent 4.12.2022 10:06
Sendir inn 10.000 hermenn til að svæla út glæpagengi Forseti El Salvadors sendi um 10.000 her- og lögreglumenn til þess að umkringja úthverfi höfuðborgarinnar San Salvador og handtaka félaga í glæpagengjum. Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt herför forsetans gegn gengjum landsins. Erlent 4.12.2022 08:44
Fiskveiðisamningur Færeyja og Rússlands sagður smekkleysa Evrópusambandið gagnrýnir nýjar fiskveiðisamning Færeyja og Rússlands. Þingmaður Dana á Evrópuþinginu segir samninginn smekklausan. Erlent 3.12.2022 17:05
Evrópa of háð Bandaríkjunum í öryggismálum Innrás Rússa í Úkraínu sýnir að Evrópulönd séu of háð Bandaríkjunum um eigið öryggi, að mati Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands. Hún vill að Evrópulönd auki vopnaframleiðslu og varnarviðbúnað sinn. Erlent 3.12.2022 09:01
Fylgdust með skýjafari á Títani með hjálp Webb Langþráðar myndir James Webb-geimsjónaukans af Títani, stærsta tungli Satúrnusar, gerðu stjörnufræðingum kleift að fylgjast með þróun skýja í lofthjúpi hans í síðasta mánuði. Athugarnirnar eru í samræmi við loftslagslíkön sem spáðu fyrir um að ský gætu hæglega myndast á þessum tíma árs. Erlent 2.12.2022 22:00
Bein útsending: Opinbera fyrstu nýju sprengjuvélina í þrjátíu ár Flugher Bandaríkjanna ætlar að opinbera nýja kynslóð huldusprengjuvéla í næstu viku en þær eru meðal annars hannaðar til að bera kjarnorkuvopn. Sprengjuvélarnar kallast B-21 Raider og eiga að leysa hinar víðþekktu vélar B-2 Spirit af hólmi. Erlent 2.12.2022 21:00
Snowden sór Rússlandi hollustueið Edward Snowden, sem ljóstraði um um stórfelldar njósnir bandarísku þjóðaröryggisstofnunarinnar, sór Rússlandi hollustueið og fékk rússneskt vegabréf í dag, að sögn lögmanns hans. Rússar veittu Snowden hæli eftir að hann flúði Bandaríkin í kjölfar uppljóstrananna. Erlent 2.12.2022 15:09
Lýsir yfir gjaldþroti í kjölfar skaðabótadóma Samsæringasmiðurinn umdeildi Alex Jones hefur lýst yfir gjaldþroti. Hann var nýlega dæmdur til að greiða aðstandendum fórnarlamba skotárásarinnar í Sandy Hook árið 2012 nærri því einn og hálfan milljarð dala í skaðabætur. Erlent 2.12.2022 14:38
Vilja banna kynlíf utan hjónabands og móðganir gegn stjórnvöldum Borgararéttindi í Indónesíu verða skert með frumvarpi til hegningarlaga sem þingið þar er við það að samþykkja, að mati mannréttindasamtaka. Frumvarpið legði bann við kynlífi fyrir hjónaband og að móðga forseta landsins eða stofnanir ríkisins. Erlent 2.12.2022 14:23
Segjast ætla að draga Rússa til ábyrgðar Forsetar bandaríkjanna og Frakklands sögðust á blaðamannafundi í gær ætla að draga Rússa til ábyrgðar fyrir stríðsglæpi og önnur ódæði þeirra í Úkraínu. Joe Biden sagðist tilbúinn til viðræðna við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, en eingöngu ef Pútín væri að leita leiða til að binda enda á innrásina í Úkraínu. Erlent 2.12.2022 13:40
Hádegisfréttir Bylgjunnar Fjárhagur Reykjavíkurborgar, kjaraviðræður og þriðja vaktin svokallaða er á meðal þess sem fjallað verður um í hádegisfréttum Bylgjunnar. Erlent 2.12.2022 11:37
Dómarar veita Trump enn eitt höggið Áfrýjunardómstóll hefur úrskurðað gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í dómsmálinu gegn honum vegna leynilegu skjalanna í Mar-a-Lago. Þrír alríkisdómarar sem skipa áfrýjunardómstólinn gagnrýndu einnig dómara sem úrskurðaði áður Trump í vil en sá dómari var skipaður í embætti af Trump. Erlent 2.12.2022 11:24
Bréfsprengjurnar taldar heimagerðar og sendar innan Spánar Spænska lögreglan telur að sex bréfsprengjur sem hafa fundist undanfarna tvo sólarhringa hafi verið heimasmíðaðar. Bréfin eru sögð hafa innihaldið lítið magn af púðri og sprengjubrotum og verið send innan Spánar. Erlent 2.12.2022 09:00
„Án Bandaríkjanna værum við í vanda“ Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, hefur kallað eftir því að Evrópuríkin efli varnargetu sína í kjölfar átakanna í Úkraínu. Hún segir styrk Evrópu ónógan án Bandaríkjanna. Erlent 2.12.2022 08:06
New York og Singapore dýrustu borgir heims Framfærslukostnaður í helstu borgum heims hefur hækkað um 8,1 prósent á milli ára að meðaltali ef marka má nýja könnun Economist Intelligence Unit sem árlega birtir lista yfir framfærslukostnað í 172 borgum víðsvegar um heiminn. Erlent 2.12.2022 07:41
„Það er margt sem ég elska við Hitler“ Tónlistarmaðurinn Ye, áður Kanye West, hefur aftur verið bannaður á Twitter eftir að hafa deilt mynd af lógói þar sem Davíðsstjörnunni og hakakrossinum hefur verið blandað saman. Erlent 2.12.2022 07:23
Mætir mótspyrnu innan eigin flokks Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, stendur frammi fyrir óvæntri mótspyrnu innan flokksins í tilraunum hans til að tryggja sér embætti forseta fulltrúadeildarinnar. Þingmenn flokksins hafa sagt að til greina komi að gera samkomulag við Demókrata um að kjósa þingforseta sem falli í kramið hjá þeim. Erlent 1.12.2022 16:02
Upplifði spurningar hirðdömunnar sem ofbeldi Kona sem fyrrverandi hirðdama Elísabetar heitinnar Bretadrottningar spurði ítrekað hver uppruni hennar væri á viðburði í Buckingham höll í vikunni segist hafa upplifað atvikið sem ofbeldi og líkir samskiptunum við yfirheyrslu. Hirðdaman steig til hliðar í gær og konungsfjölskyldan segir málið óásættanlegt. Erlent 1.12.2022 15:56