Formúla 1
124 125 126 127 128 129 130 131 132 … 151 ›
Sáttaleið reynd á síðustu stundu FIA, alþjóðabílasambandið og FOTA, samtök keppnisliða ætla reyna semja til þrautar í dag um reglur og tilhögun á Formúlu 1 málum fyrir 2010 á fundi í London í dag. Formúla 1 11.6.2009 13:49
Ecclestone berst gegn nýrri mótaröð Bernie Ecclestone talar vanalega tæpitungulaust og gerði það í dag þegar hann sagði að hann myndi berjast á móti nýrri mótaröð bílaframleiðenda sem eru að keppa í Formúlu 1 í dag. Þeirri hugmynd hefur verið kastað fram, bæði síðustu vikur og síðustu misseri vegna deilna FIA og FOTA. Formúla 1 10.6.2009 19:50
Schumacher: Formúla 1 þarf Ferrari Mitt í deilum FIA, alþjóðabílasambandsins og FOTA, samtaka keppnisliða um framtíð Formúlu 1 hefur Michael Schumacher kveðið sér hljóðs. Hann segir að FIA verði að hafa bílaframleiðendur með sér, ekki á móti. Formúla 1 10.6.2009 09:21
Ross Brawn: Titilinn ekki í höfn Bretinn Ross Brawn er ekki á því að meistaratitilinn sé í höfn hjá Jenson Button og Brawn liðinu þó Button sé með 26 stiga forskot í stigamóti ökumanna. Formúla 1 9.6.2009 14:17
Massa hótar að hætta í Formúlu 1 Felipe Massa hjá Ferrari segir að það sé sannkölluð matröð að keppa í Formúlu 1 þessa dagana og deilur keppnisliða og FIA séu að setja neikvæðan svip á íþrótt sem hann unnir. Ökumenn funduðu um málið með forráðamönnum keppnisliða í gær til að sýna samhug í verki. Formúla 1 8.6.2009 10:16
Button: Sigur liðsheildarinnar Bretinn Jenson Button er með 26 stiga forskot í stigamótinu eftir kappaksturinn í Tyrklandi. Hann hefur unnið 6 af 7 mótum ársins. Formúla 1 7.6.2009 18:49
Button vann sjötta sigurinn Velgengni Jenson Button í Formúlu 1 ríður ekki við einteyming. Hann vann sinn sjötta sigur á árinu þegar hann kom fyrstur í endamark í Istanbúl í Tyrkland í dag. Hann er kominn með 26 stiga forskot í stigakeppni ökumanna. Formúla 1 7.6.2009 14:46
Vettel klár í slaginn Sebastian Vettel er fremstur á ráslínu í tyrkneska kappaksturinn sem hefst kl. 11:30 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, en keppt er í Istanbúl. Vettel hefur unnið einn sigur á árinu en Jenson Button fimm og hann ræsir af stað við hlið Vettels. Formúla 1 7.6.2009 08:32
Hamilton afskrifar titilmöguleka sína McLaren reið ekki feistum hesti frá tímatökunni í Istanbúl í dag. Lewis Hamilton er sextándi á ráslínu og Heikki Kovalainen fjórtándi. Formúla 1 6.6.2009 16:57
Vettel á ráspól í Tyrklandi Sebastian Vettel á Red Bull er á ráspól fyrir tyrkneska Formúlu-1 kappaksturinn á morgun. Tímatakan var dramatísk fram á síðustu stundu en Vettel tryggði sér pólinn með frábærum hring í blálokin. Formúla 1 6.6.2009 12:05
Massa fljótastur á lokaæfingunni Felipe Massa náði besta tíma á lokaæfingu keppnisliða í Istanbúl í morgun. Hann var þó aðeins o.039 sekúndum á undan Jarno Trulli á Toyota og 0.1 á undan Timo Glock á Toyota. Kazuki Nakajima á Williams var fjórði og Robert Kubica á BMW fimmti. Formúla 1 6.6.2009 09:18
Kovalainen: Harður slagur í tímatökum Finninn Heikki Kovalainen hjá McLaren telur að harður slagur verði í tímatökum fyrir tyrrkneska Formúlu 1 kappaksturinn, en þær verða í beinni útsendingu kl. 10.45 á Stöð 2 Sport. Kovalainen náði besta tíma dagsins á æfingum í gær. Formúla 1 6.6.2009 06:04
Button vongóður um betri tíma á morgun Jenson Button, sem leiðir stigakeppni ökuþóra í Formúlu-1, var ekki ánægður með Brawn bílinn í dag. Harry Kovalainen var fyrstur en Button tólfti. Formúla 1 5.6.2009 17:15
McLaren og Renault bíta frá sér Finninn Heikki Kovalainen á McLaren rétt marði að vera á undan Fernando Alonso á Renault á síðari æfingu keppnisliða í Istanbíl í dag. Kovalainen varð aðeins 0.006 sekúndum á undan Spánverjanum. Formúla 1 5.6.2009 12:59
Rosberg stal tímanum af Hamilton Nico Rosberg frá Þýsklandi náði besta tíma á fyrstu æfingu keppnisliða í Istanbúl í morgun. Hann stal besta tíma á síðustu mínútu æfingarinnar af Lewis Hamilton á McLaren. Var munurinn á milli þeirra 0.311 sekúndur. Formúla 1 5.6.2009 08:52
Massa spaír Button meistaratitlinum Felipe Massa hjá Ferrari telur allar líkur á því að Jenson Button og Brawn liðið verði heimsmeistari í Formúlu 1 í ár. Hann hefur unnið mótið í Tyrklandi þrjú ár í röð, en keppt er í Istanbúl um helgina. Formúla 1 4.6.2009 19:36
FIA sendir Formúlu liðum tóninn Max Mosley, forseti FIA hefur sent núverandi Formúlu 1 liðum tóninn m eð því að segja að þau geti stofnað eigin mótaröð ef þau eru ósátt við reglur sem keppa á eftir árið 2010. Formúla 1 4.6.2009 12:33
Ólafur dæmir Formúlu 1 í Tyrklandi Ólafur Guðmundsson verður einn þriggja dómara á Formúlu 1 mótinu í Istanbúl Í Tyrklandi um helgina. Hann verður á brautinni í dag að skoða aðstæður fyrir mótið sem Felipe Massa hefur unnið þrjú mót í röð. Formúla 1 4.6.2009 07:19
Forskot Button og Brawn ekki óviðráðanlegt Christian Horner, framkvæmdarstjóri Red Bull telur að stigaforskot ökumanna Brawn liðsins sé ekki óviðráðnlegt verkefni, en Formúla 1 er í Tyrklandi um næstu helgi. Felipe Massa hefur unnið mótið í Istanbúl þrjú ár í röð. Formúla 1 3.6.2009 10:11
Sótti verðlaunin á Formúlu 1 bíl Sebastian Vettel hjá Red Bull fékk ítölsku Bandini verðlaunin fyrir frábæra frammistöðu í Formúlu 1 á sunnudaginn. Hann ók Formúlu 1 bíl Torro Rosso frá keppnisliðinu í Faenza til ítalska þorpsins Brisghella til að sækja verðlaun sín. Formúla 1 3.6.2009 08:40
Fimmta nýja liðið vill í Formúlu 1 Alexander Wurz, fyrrum Formúlu 1 ökumaður hefur sótt um þátttökurétt fyrir Superfund keppnislið svokallað sem hann vill veita forstöðu ef liðið fær aðgang að Formúlu 1 á næsta ári. Formúla 1 2.6.2009 10:25
26 ökumenn á ráslínu 2010 Miðað við þær umsóknir sem FIA hefur borist í dag um þátttöku í Formúlu 1 árið 2010 þá eru allar líkur á að 26 ökumenn verði á ráslínu á næsta ári. Ökumenn eru 20 talsins í ár. Formúla 1 29.5.2009 15:52
Fjögur ný lið vilja í Formúlu 1 Fjögur keppnislið með mikla reynslu af kappakstri hafa sótt um þátttökurétt í Formúlu 1 árið 2010. Lokafrestur til að sækja um þátttöku í Formúlu 1 rennur út í dag. Öll keppnislið sem keppa í ár hafa sótt um þátttökurétt og gerðu það fyrir stundu.. Formúla 1 29.5.2009 13:44
Keppinautar Brawn vilja stela kostandanum Nick Fry, framkvæmdarstjóri Brawn liðsins orðaði heldur klaufalega hvernig lið sitt sparar fé í rekstri liiðsins sem stóð höllum fæti og munaði minnstu að það færi á uppboð fyrir tímabilið. Formúla 1 28.5.2009 08:59
Formúla 1 líkleg í Róm 2012 Rómverjar á Ítalíu eru metnaðarfullir. Í dag er allt á hvolfi útaf úrslitlaleiknum í Meistaradeildinni en árið 2012 vill borgarstjórnin halda Formúlu 1 mót á götum Rómar. Formúla 1 27.5.2009 10:46
McLaren miðlar málum í deilum Martin Whitmarsh, framkvæmdarstjóri McLaren segir að lið hans hafi verið einskonar sáttasemjari i deilum FIA og Formúlu 1 liða upp á síðkastið um reglubreytingar í Formúlu 1 á næsta ári Formúla 1 27.5.2009 09:52
Raikkönen á réttri leið hjá Ferrari Eftir slaka byrjun virðist Ferrari búiið að finna taktinn í Fiormúlu 1 og Stefano Domenicali er sérstaklega ánægður með Kimi Raikkönen eftir mótið í Mónakó. Hann virðist hafa fundið sitt fyrra form og endurnýjaðan áhuga. Formúla 1 26.5.2009 11:07
Button nældi í undirfatadrottningu Það fór ekki framhjá neinum á Formúlu 1 mótinu í Mónakó um helgina að forysturmaður stigamótsins er ástfanginn. Jenson Button var með japanska stúlku upp á arminn, en Jessica Michibata er þekkt fyrirsæta í Japan. Hún hefur sérhæft sig í undirfatasýningum. Formúla 1 25.5.2009 11:06
Ekkert gengur upp hjá BMW Formúlu 1 lið BMW gekk afleitlega í kappakstrinum í Mónakó í gær á ári sem átti að vera til titilsóknar. Allt hefur gengið á afturfótunum hjá BMW og liðið er hvergi nærri toppnum. BMW mætir með nýjan loftdreifi og KERS kerfið í næsta mót sem er í Tyrklandi Formúla 1 25.5.2009 09:44
Formúlu lið setja FIA skilyrði fyrir 2010 Formúlu 1 lið sendu í dag FIA formlegt bréf þar sem þau heimta að fyrirhugaðar reglubreytingar fyrir árið 2010 verði felldar úr gildi og þær reglur sem eru í gildi verði áfram notaðar á næsta ári. Formúla 1 24.5.2009 20:46