Bíó og sjónvarp

Fréttamynd

Stór­mynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar

Eyðimerkurepíkin Desert Warrior átti að vera fyrsti liðurinn í menningarátaki Sádi-Arabíu og stórmynd sem gæti keppt við það besta í Hollywood en stefnir í að verða eitt stærsta flopp sögunnar. Framleiðsla myndarinnar kostaði 150 milljónir Bandaríkjadala en eftir fyrstu vikuna er aðeins hálf milljón komin í kassann.

Bíó og sjónvarp

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Bestu kvik­myndir 21. aldarinnar

Fyrsti fjórðungur 21. aldarinnar er liðinn og af því tilefni ákváðu tveir íslenskir háskólaprófessorar að taka saman lista yfir 25 bestu kvikmyndir tímabilsins. Þeir leituðu til 149 íslenskra álitsgjafa og úr varð forvitnilegur listi með afgerandi sigurvegara og miklum kynjahalla.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Patrick Muldoon er látinn

Bandaríski leikarinn og framleiðandinn Patrick Muldoon lést sviplega á sunnudaginn, 57 ára að aldri, eftir að hafa fengið hjartaáfall. Muldoon er þekktastur fyrir leik sinn í sápuóperunum Days of Our Lives og Melrose Place og költklassíkinni Starship Troopers.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Tæp­lega helmingur til­nefndra leikara til Eddunnar er­lendur

Tilnefningar til Eddunnar í ár hafa verið tilkynntar en kvikmyndin Ástin sem eftir er hlaut flestar tilnefningar eða þrettán talsins. Hamfaramyndin Eldarnir hlaut tólf tilnefningar og sjónvarpsþáttaseríurnar Felix & Klara og King and Conqueror fengu ellefu tilnefningar hvor. Athygli vekur hve margir erlendir leikarar eru tilnefndir, eða tíu af 23 sem eru tilnefndir.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Leikarinn Michael Patrick látinn eftir bar­áttu við MND

Norður-írski leikarinn og handritshöfundurinn Michael Patrick er látinn, 35 ára að aldri, eftir rúmlega tveggja ára baráttu við taugasjúkdóminn MND. Patrick skrifaði sjónvarpsþættina My Left Nut sem byggðu á hans eigin reynslu, lék á sviði og smáhlutverk í hinum ýmsu þáttum, þar á meðal í sjöttu seríu Krúnuleikanna.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi

„Ég fór út á golfvöll hér á Spáni í gær og þar var fólk að biðja um mynd með karlinum, það var helvíti gaman,“ segir Rúrik Gíslason fyrrverandi fótboltakappi og nú leikari í næstvinsælustu Netflix bíómynd í heimi um þessar mundir.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hug­myndir að hámhorfi um páskana

Páskahátíðin er að ganga í garð og eru margir sem nýta sér hana til góðrar slökunar fyrir framan sjónvarpið samhliða páskaeggjaáti. Því er upplagt að taka saman góðan lista af hámhorfi sem auðveldar einhverjum valið í hafsjó af möguleikum. 

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hera verður ást­kona JFK

Íslenska leikkonan Hera Hilmarsdóttir mun leika Ingu Arvad, danskan blaðamann sem átti í ástarsambandi við JFK, í nýrri þáttaröð um uppgang Kennedy-fjölskyldunnar á síðustu öld og hvernig John F. Kennedy komst úr skugga eldri bróður síns.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Chuck Norris er látinn

Bardagakappinn og leikarinn Chuck Norris er látinn, 86 ára að aldri. Hann lést í gærmorgun í Havaí eftir að hafa verið lagður þar inn á spítala fyrr í vikunni.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Spacey sleppur við dóm­salinn með sátt við þrjá menn

Leikarinn Kevin Spacey hefur gert sátt við þrjá menn sem sökuðu hann um kynferðisofbeldi yfir margra ára tímabil. Málið átti að fara fyrir dómara í Lundúnum síðar á þessu ári en ekki verður af því. Fjöldi karlmanna steig fram í MeToo-bylgjunni og sakaði Spacey um kynferðisbrot en málin hafa ýmist verið felld niður eða hann sýknaður.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Sjöunda jafn­teflið á 98 árum

Eitt það óvæntasta á Óskarsverðlaunahátíðinni í nótt var jafntefli leiknu stuttmyndanna The Singers og Two People Exchanging Saliva. Í 98 ára sögu Óskarsins hefur slíkt aðeins gerst sex sinnum áður.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

One Battle After Another bar sigur úr býtum

Kvikmyndin One Battle After Another var sigursælust á Óskarsverðlaunahátíðinni í nótt og hreppti sex verðlaun, þar á meðal sem besta mynd og fyrir bestu leikstjórn. Vampírumyndin Sinners fékk fern verðlaun úr sextán tilnefningum meðan aðstandendur Marty Supreme fóru tómhentir heim eftir að hafa hlotið níu tilnefningar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hulunni svipt af Taskmaster

Skemmtiþátturinn Taskmaster var frumsýndur fyrir fullum sal í Smárabíói í gær þar sem þátttakendur, kynnar og aðrir góðir gestir hlógu sig máttlausa. Þættirnir eru tíu talsins, sá fyrsti er kominn á Sýn+ og kemur restin út vikulega næstu níu föstudaga.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hvernig fer Óskarinn?

Óskarsverðlaunahátíðin fer fram í 98. sinn um helgina og ríkir mikil spenna í ýmsum flokkum. Stóru spurningar eru nokkrar: Hvort hefur One Battle After Another eða Sinners betur? Er Timothee Chalamet búinn að skemma fyrir sjálfum sér með stælum og hroka? Er Jessie Buckley alveg gulltryggð og hvað verður um aukahlutverkin?

Bíó og sjónvarp