Bakþankar

Einkaritari læknisins

Brynhildur Björnsdóttir skrifar

Ég stend frammi fyrir erfiðu verkefni þessa dagana, verkefni sem ég humma fram af mér, ræski í rot og reyni að gleyma þegar færi gefst. Annað hvort þarf ég að kaupa mér stærri íbúð sem er hægara sagt en gert, eða (ég ráðlegg viðkvæmum lesendum að hætta hér), henda bókum!

Bakþankar

Rússnesk rúlletta

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar

Hvalfjarðargöngin fengu falleinkunn EUROTAP um daginn. Eru víst stórhættuleg að fara um og öll öryggisatriði fyrir neðan allar hellur. Ég hef farið gegnum þessi göng óteljandi ferðir og hef ekki keyrt Hvalfjörðinn síðan þau voru opnuð. Sem betur fer hef ég sloppið í gegn, hingað til. Þetta fékk mig til að velta fyrir mér vegakerfinu á landinu í heild sinni en ég var á ferðinni um daginn milli Akureyrar og Reykjavíkur.

Bakþankar

Forboðnu dyrnar

Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skrifar

Eitt af því sem ég hafði alltaf hlakkað til að upplifa þegar að því kæmi að ég gengi með barn var þessi víðfræga óstjórnlega löngun í eitthvað óvenjulegt.

Bakþankar

Með Vigdísi á veggnum

Þegar ég fæddist var Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands. Ég ólst upp í skýlausri aðdáun á þessum forseta, eins og er líklega algengt með krakka og þjóðhöfðingja. Aðdáunin hefur hins vegar ekki elst af mér með tímanum, og gerir líklega ekki héðan af. Ég veit líka vel að fjölmargir eru sömu skoðunar.

Bakþankar

Norðlenska hljóðvillan II

Davíð Þór Jónsson skrifar

Í síðasta pistli fjallaði ég lítillega um norðlensku hljóðvilluna og mikilvægi þess að sporna við henni. Ég staldraði einkum við annað megineinkenni hennar, röddun nef- og hliðarhljóða á undan fráblásnum lokhljóðum í orðum eins og „stúlka“, „pumpa“ og „fantur“ og útskýrði af hverju hún væri röng. Nú ætla ég að taka hitt megineinkennið fyrir, óeðlilegan stafsetningarframburð fráblásinna lokhljóða sem standa á milli tveggja sérhljóða í orðum eins og „poki“, „bátur“ og „pípa“.

Bakþankar

Undir Beltisstað

Brynhildur Björnsdóttir skrifar

Ég er alin upp í götunni Kúrlandi og þegar ég sagði til heimilis sem barn fékk ég alltaf að heyra einhverja skemmtikersknina um leti, notalegheit og afslappelsi. Ég var sjálf mjög lengi að gera tenginguna á milli

Bakþankar

Hamingjan

Charlotte Bøving skrifar

Lykken er som en lille fugl Den flyver og kommer tilbage Jeg håber den hos dig må finde et skjul Og blive der alle dage

Bakþankar

Allra meina bót

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar

Til eru mörg athyglisverð úrræði fyrir þá sem búa við hvers konar kvilla á líkama og sál í Granadahéraði á Suður-Spáni.

Bakþankar

Helgi eyjanna

Marta María Friðriksdóttir skrifar

Verslunarmannahelgin með öllu því sem henni fylgir er nú yfirstaðin. Á þessari mestu ferðahelgi ársins fór ég og dvaldi á fagurri eyju. Reyndar ekki þeirri sem allir virtust vera að fara til og allt stefndi í metfjölda á. Heldur annarri eyju, í öðrum landshluta. Þar var líf og fjör alla helgina þannig að rætt var um að eyjur væru „inn“ um verslunarmannahelgina.

Bakþankar

Reykingasamfélagið

Atli Fannar Bjarkarson skrifar

Reykingafólk er samfélag innan samfélagsins. Það hópar sig saman í vinnu, til að svala fíkninni í fullkominni einingu. Reykingasamfélagið aðhyllist hugmyndir kommúnisma; allir skulu fá að reykja jafn mikið, ef einhver á ekki sígarettur er honum reddað og treyst til að deila þegar hann er klyfjaður. Loks skrásetja reykingamenn í huganum þá sem aðeins þiggja án þess að deila með samfélaginu.

Bakþankar

Sumarsins ljúfa líf

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar

Sumarfrísins er alltaf beðið með eftirvæntingu. Loksins tekur við samfellt frí, þar sem engar vekjaraklukkur né áætlanir ráða ríkjum og frelsi til að slæpast er gefið. Oft á líka að nota sumarfríið til að koma ýmsu í verk sem hefur þurft að bíða. Mála stigaganginn, flísaleggja eldhúsið, fúaverja

Bakþankar

Verslunarmannahelgin

Fram undan er eitt af þessum stórlega ofmetnu íslensku fyrirbrigðum; verslunarmannahelgin. Verslunarmannahelgin skipar sér í sveit með áramótunum sem ofmetnustu atburðir ársins í mínum huga, atburðir sem fólk bindur þvílíkar vonir við að verði stórkostlega skemmtilegir en standa sjaldnast undir þessum væntingum. Reyndar eru bæði verslunarmannahelgar og áramót hin ágætasta skemmtun, en aðeins ef væntingum til þeirra er stillt í lágmark. Þá fyrst verður gaman.

Bakþankar

Lítið höfum við lært

Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar

Trauðla hefur komið út lærdómsríkara rit síðustu árin en skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda bankahrunsins. Sé skýrslan lesin með opnum huga, án fyrirframgefinna skoðana um hverjum skuli mest kennt um hrunið, kemur í ljós hvílík brotalöm var á stjórnkerfinu hér á landi. Á það við um embættismenn jafnt sem stjórnmála- og í raun þann ramma sem við höfðum reist í kringum samfélagið.

Bakþankar

Ó, fagra veröld

Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar

Hrifnæmi lýsir ákveðnum fallvaltleika í fari manneskju. Að hrífast á stundinni af fyrirbærum, fólki og öðrum sjónar­miðum er jú hægt að útmála sem veiklyndi, hverflyndi og óstaðfestu.

Bakþankar

Norð­lenska hljóðvillan I

Davíð Þór Jónsson skrifar

Íslensk tunga er dýrasti arfur þjóðarinnar. Íslendingar hafa staðið sig allvel í varðveislu tungunnar, tökuorð eru færri en í flestum öðrum málum og málvillum og öðrum lýtum á hreinni og ylhýrri íslensku hefur

Bakþankar

Hin forboðna léttúðardós

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Yfirvöldum hefur ætíð verið umhugað um að þegnar þeirra sýni aðhald þegar holdið er annars vegar. Mig minnir að í Grágás megi finna klausu í þá veru að enginn skuli láta saurgast af eigin höndum, ferfættu kvikindi eða boruðu tré. Sjálfsfróun þykir ekki tiltökumál í dag og illu heilli berast af og til fréttir af níðingum sem svala fýsnum sínum á saklausum

Bakþankar

Duglegur-fasismi

Charlotte Bøving skrifar

Verandi útlendingur sem býr hér á Íslandi hef ég oft velt fyrir mér mikilli notkun hugtaksins að vera DUGLEG(UR). Mig langar jafnvel að leyfa mér að fullyrða að hér á landi sé útbreiddur "duglegur-fasismi".

Bakþankar

Sigurbogi frelsisandans

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar

Því miður hef ég ekki komist hjá því að sjá nokkra sorpfréttaþætti hér á Spáni. Þar má fræðast má um beðmál fjölmiðla­fígúra og önnur málefni sem þægilegast er að hafa út af fyrir sig.

Bakþankar

Bótanískt útlendingahatur?

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar

Í tilefni forustugreinar Fréttablaðsins 14.6. sl. Fyrir tæpum 140 árum reyndi Jón Ólafsson ritstjóri að koma til leiðar landnámi Íslendinga í Alaska. Landið var strjálbýlt, í eigu Bandaríkjanna frá árinu 1867. Þarna vildi Jón að

Bakþankar

Reiðhjólið dregið fram

Marta María Friðriksdóttir skrifar

Reiðhjólið var dregið út úr bílskúrnum með erfiðismunum fyrr í vor, þar sem það hafði grafist undir tómum pappakössum og ýmsum ónotuðum hlutum. Hjólið hafði verið mikið notað í fyrrasumar en safnaði ryki þar til í vor. Það var pússað upp og smurt úti í garði áður en það var tekið til notkunar. Fyrstu vikurnar var það notað óspart, hjólað var til og frá vinnu og bæjarhluta á milli.

Bakþankar

Ó, þessir heltönnuðu tímar

Gerður Kristný skrifar

Í pósthrúgunni sem beið mín eftir sumarfrí gat að líta athyglisverða gjöf frá Arion banka. Þar var á ferðinni Einkaklúbbskort og bæklingur með nöfnum fyrirtækjanna sem bjóða korthöfum upp á alls konar tilboð. Þar kennir ýmissa grasa,

Bakþankar

Útrýming mannkyns

Atli Fannar Bjarkarson skrifar

Hrikalega fögur vinkona mín sagði um daginn að vinkonur hennar væru í auknu mæli byrjaðar að sækja í yngri karlmenn. Á meðan ég fylgdist agndofa með sagði hún algengt að stelpur sem væru komnar um eða yfir miðjan þrítugsaldurinn skömmuðust sín ekkert fyrir að eiga rétt tæplega tvítuga kærasta og snéru þannig aldagömlum gildum á hvolf – gildum sem hafa viðhaldið lífi á jörðinni frá örófi alda.

Bakþankar

Syndir feðranna

Brynhildur Björnsdóttir skrifar

Í litlu samfélagi eins og á Íslandi verður það næstum hluti af refsingu fyrir glæpsamlegt athæfi að nafngreina glæpamenn og -konur opinberlega, í fjölmiðlum eða á netinu, þar sem allir þekkja alla og nafnið þitt segir hluta þjóðarinnar undir eins hver pabbi þinn er eða hvar þú gekkst í skóla. Þannig verður refsingin langvinnari og samfélagið allt tekur þátt í að fordæma hið ólöglega athæfi.

Bakþankar

Þúsund þorskar

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar

Mér fannst alltaf að sérhver Íslendingur þyrfti að geta sagst hafa unnið í fiski, þessum undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Síldarárin eru enda umvafin rómantík í hugum okkar. Ég var því með fiðrildi í maganum þegar ég var leidd inn í iðandi salinn í hvítum gúmmístígvélum. Í félagi við vinkonu hafði ég ráðið mig í vinnu í frystihúsi í þorpi við sjávarsíðuna og gat varla beðið eftir að demba mér í slorið. Sveitalubbinn ég hafði aldrei áður stigið inn í frystihús og yfirþyrmandi fisklyktin þrengdi sér inn um öll vit. Ég lét þó á engu bera og fylgdi verkstjóranum sem hraðstíg teymdi okkur um. Vinkonan var betur sett, alin upp í saltfiskvinnslu.

Bakþankar

Spádómsdýr á stórmótum

Þórunn Elísabet Bogadóttir skrifar

Stjarna heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, að minnsta kosti utan vallar, voru ekkert bölvuðu vuvuzela-lúðrarnir eftir allt saman. Þeir féllu algjörlega í skuggann af kolkrabbanum Páli, sem hefur verið daglegur gestur í fjölmiðlum víða um heiminn síðustu vikurnar, eftir því sem leið á mótið. Umræður færðust frá því hversu ótrúlega óþolandi lúðrarnir væru yfir í yfirnáttúrulega spádómsgáfu kolkrabbans. Ekki er víst öll vitleysan eins.

Bakþankar

Háspenna lífshætta

Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar

Lyfjalaus lífsstíll hefur þótt svolítið smart undanfarin misseri. Þerapistar setja upp áhyggjuhrukkuna þegar fólk segist taka lyf þróuð til margra ára á rannsóknarstofum. Nágrannakonan lýsir því stolt yfir að hún gefi ekki börnunum sínum magnil eftir að hún las það í tímariti. Mörg hundruð ára rannsóknir læknavísindanna mega sín lítils gagnvart hveitilausum lífsstíl. Langskólagengnir læknar, fræði og vísindi geta verið úti.

Bakþankar

Molar um málfar og minni

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Málfarsráðunautur RÚV skrifaði umhugsunarverða grein í Fréttablaðið í vikunni, þar sem hann gagnrýndi skort á umburðarlyndi og þröngsýni í umræðu um íslenskt mál. Að hans mati er málumvöndun til marks um staðnaðan hugsunarhátt og vinnur gegn markmiðum um bætta

Bakþankar

Lögin við vinnuna

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar

Dökkur skýjabakkinn hleðst upp í takt við verkefnabunkann á borðinu mínu. Ég hef ekki séð til sólar í dag. Á erfitt með að halda mig að verki og held að hitastigið hljóti að vera dottið niður í eins stafs tölu. Hann virðist líka vera að hvessa og útundan mér heyri ég varað við því að vera á þvælingi með felli- eða hjólhýsi aftan í bílum. Svo taka fyrstu droparnir að falla.

Bakþankar