Bakþankar

Burt með réttindi borgaranna

Tillaga liggur nú fyrir Alþingi um að veita lögreglunni heimildir til að fylgjast með fólki, án þess að nokkur rökstuðningur liggi fyrir um hvort það hefur framið glæp eða ekki. Slíkt athæfi hefur verið klætt í fagmannlegt og ógagnsætt hugtak undir heitinu forvirkar rannsóknarheimildir, en hið ágæta orð njósnir nær því betur.

Bakþankar

Kennileiti hagsýna fólksins

Gerður Kristný skrifar

Reglulega berst sá kvittur um landið að sænska verslanakeðjan Hennes og Mauritz hyggist opna útibú á Íslandi. Þráin eftir þessari verslun er býsna sterk því enn hefur ekki reynst flugufótur fyrir sögunni. Íslendingar eiga sér þó þann draum að geta keypt sér ódýr og sæmilega smekkleg föt þótt ekki væri nema á börnin sín, en barnafatadeild Hennes og Mauritz hefur reynst þjóðinni sérstaklega vel. Þegar dró úr utanlandsferðum Íslendinga eftir hrun voru nokkrir landar okkar erlendis snöggir að sjá sér leik á borði og tóku að bjóða upp á innkaup í Hennes og Mauritz gegn greiðslu.

Bakþankar

Nei, ha, hvað var ég að gera?

Sigríður Víðis Jónsdóttir skrifar

Athyglisbrestur er …að vera á kassa í búð en veskið varð eftir heima. Að hafa ekki græna glóru um hvert pin-númerið á kortinu er. Eða bara vera á kassanum og reyna að borga með ökuskírteininu.

Bakþankar

Ertu vanagefinn?

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar

Vaninn er harður húsbóndi. Fáir sjá það betur en Pedro þjónn á kaffibarnum Azaharra í miðbæ Priego de Córdoba. Áður en hann opnar á morgnana getur hann sagt til um það hverjir koma og klukkan hvað. Fæstir þurfa að panta drykki því Pedro veit fyrir löngu hvað viðkomandi vill.

Bakþankar

Ekki líta undan

Sigurður Árni Þórðarson skrifar

Fyrir liðlega þrjátíu árum gengum við fjórir félagar um Hornstrandir. Áður en við lögðum upp fórum við á sunnudegi til messu í Staðarkirkju í Aðalvík. Prestur var kominn að sunnan og við sem vorum í kirkju hlustuðum á hann prédika um huliðshjálm, það sem væri hulið og það sem væri opinbert. Ræða hans um það sem ekki sést barst inn í eyrun og út yfir hvannastóð og fíflabreiður. Þetta var svo sérkennileg ræða að við, þrír prestlingar og einn tæknimenntaður, ræddum um prestinn Huliðshjálm alla leiðina austur í Horn. Orðið huliðshjálmur dregur síðan fram í hug mér myndina af honum sem lagði út af þessu orði sem ekki er til í Biblíunni. Það var Ólafur Skúlason.

Bakþankar

Fegurð skeggsins

Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar

Bandarísk skeggkeppni fór fram í síðustu viku í Pensylvaníu en keppnin er árviss viðburður Vestanhafs þar sem karlmenn með mismunandi sortir yfirvara-, höku- og alskeggja keppa sín á milli í nokkrum flokkum.

Bakþankar

Íslensk gestrisni

Ragnheiðar Tryggvadóttur skrifar

Pönnukökur með sykri og rjóma, göngutúrar og einkakennsla í lopapeysuprjóni er meðal þess sem Íslendingar ætla að bjóða erlendum ferðamönnum upp á ef þeir vilja kíkja við. Mér skilst að Dorrit ætli sjálf að þeyta rjómann á Bessastaðabýlinu og Felix Bergsson ætlar að bjóða heim í ekta íslenskan mat. Það verður líka hægt að fara í notalegt fótabað með iðnaðarráðherra við sjávarsíðuna ef marka má myndbrot á vefsíðunni inspiredbyiceland.com! Sú leiðindaklisja að Íslendingar séu kuldalegir og lokaðir skal nú kveðin niður.

Bakþankar

Skúmaskot bókmenntaþjóðarinnar

Þegar ég var tólf fór ég um allt með Stríð og frið á bakinu. Klárlega staurblind á hvað var félagslega svalt meðal jafnaldra minna þóttist ég með puttann á púlsinum þegar kom að vali á bókmenntum sem flott væri að lesa. Einhverju sinni í frímínútum er ég virtist óvenjuniðursokkin í þennan heim rússneskra aðalsmanna rak skólafélagi óvænt nefið ofan í doðrantinn. Í ljós kom að ekki var allt sem sýndist. Inni í fagurlega innbundnu stórvirkinu var opin önnur bók. Tolstoj mátti snúa sér í gröfinni er hann vék fyrir bókmenntaverki sem ég hafði laumast til að fá lánað á skólabókasafninu: Tár, bros og takkaskór eftir Þorgrím Þráinsson.

Bakþankar

Karlavandamálið endalausa

Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar

Áfram stelpur standa á fætur, slítum allar gamlar rætur, þúsund ára kvennakúgunar.“ Við þennan og fleiri baráttusöngva kvennabaráttunnar ólst heil kynslóð upp. Baráttuandi var í lofti, konur lögðu niður störf og fylktu liði út á götur til að sýna mikilvægi sitt í samfélaginu. Mikilvægi sem öllum ætti að vera ljóst án beinna aðgerða. Þrjátíu og fimm árum síðar hafði samfélagið náð þeim árangri að konur lögðu niður störf 25 mínútum síðar, þar sem út frá launum metið höfðu þær tosast upp um einhver störf miðað við karlana.

Bakþankar

Björk á bók

Gerður Kristný skrifar

Norskur rithöfundur, Mette Karlsvik, gefur brátt út skáldsögu um tónlistarkonuna Björk Guðmundsdóttur og fjölskyldu hennar. Þetta kom fram á mbl.is og Fréttablaðinu í síðustu viku og sagt að bókin eigi að heita „Bli Björk“. Blaðamaður norska Dagbladet flutti söngkonunni þessi tíðindi og hafði eftir henni að þau kæmu henni mjög á óvart. Nokkur tengsl hefur hin norska Mette við Ísland því fyrr á þessu ári kom út bók hennar „Post oske. Dagar og netter i Reykjavik“. Þar fjallar hún um það hvernig landið kemur henni fyrir sjónir eftir hrun og samkvæmt dómi sem ég fann um bókina á netinu spjallaði hún við nafntogaða íslenska karla um orsök þess og afleiðingar.

Bakþankar

Opið bréf til Boltalands

Atli Fannar Bjarkason skrifar

Kæri íþróttafréttamaður. Takk fyrir að bjóða mér að vera gestur í knattspyrnuþættinum Boltaland.

Bakþankar

Dæmisaga úr raunveruleikanum

Brynhildur Björnsdóttir skrifar

Einu sinni var kona. Konan var reyndar ég en vegna dæmisöguformsins sem þessi saga þarf að hafa fer betur á því að segja hana í þriðju persónu. Konan ég kom sem sagt heim úr vinnunni um miðjan dag vegna erinda og sá í götunni bíl merktan

Bakþankar

Niðurgangur

Sigríður Víðis Jónsdóttir skrifar

Það er eitthvað algjörlega klikkað við það hver önnur algengasta dánarorsök ungra barna er. Niðurgangspestir og ofþornun. Númer eitt er lungnabólga, númer tvö niðurgangur.

Bakþankar

Bókin um mömmu

Sigurður Árni Þórðarson skrifar

Bréfberinn setti pakka inn um bréfalúguna í vikunni. Nei sko, í bögglinum var falleg bók. Á forsíðunni var skönnuð mynd gamallar og blettóttrar matreiðslubókar og svo skar sig úr mynd af glæsilegri konu. Við hjónin fórum að skoða bókina og í ljós kom að þetta var rit, sem vinkona okkar í Þrándheimi hafði gert um móður sína.

Bakþankar

Engin eftirsjá

Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar

Ég er haldin mikilli úthverfabjartsýni í garð lottóvinninga. Sá sem ekki hefur lifað laugardagseftirmiðdag í útnárum borgarinnar veit ekki hvað ég er að tala um. Þessar nokkru hífuðu klukkustundir áður en sölukassar loka á laugardegi, börn send út í búð eftir lottó og camel. Fréttir og Fyrirmyndarfaðir. Svo einfalt. Svo gott.

Bakþankar

Baðherbergi þjóðanna

Davíð Þór Jónsson skrifar

Menningarlegur munur þjóða birtist meðal annars í því hvað salernisaðstaða felur í sér í hverju landi. Þegar ég var ungur þurfti ég einu sinni að ferðast með lest frá Istanbúl til Amsterdam, illa haldinn af matareitrun eftir að hafa lagt mér til munns alsírskan geitaost. Aðeins einu sinni á ferðalaginu þurfti ég að gera þarfir mínar í gat í gólfið. Það var á Gare de Lyon lestarstöðinni í París, háborg menningar og lista í Evrópu. Jafnvel í búlgörskum landamæraskúr, þar sem ég þurfti að dúsa um hríð vegna misskilnings við vegabréfaeftirlit við tyrknesku landamærin, var mér boðið upp á betri salernisaðstöðu.

Bakþankar

Spennið beltin kæru farþegar

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar

Eitt hataðasta fyrirtæki landsins hefur fengið nýjan forstjóra. Það var viðtal við hann hér í blaðinu um síðustu helgi, Birgi Jónsson, forstjóra Iceland Express. Hann hafði reyndar áður verið forstjóri fyrirtækisins um tíma fyrir nokkrum árum og í viðtalinu viðurkenndi hann að skammast sín fyrir forstjóratitilinn í ferilskránni.

Bakþankar

Konan kennd við ryðdallinn

Sif Sigmarsdóttir skrifar

Meistaraverk!“ hugsaði ég með sjálfri mér um leið og ég batt með punkti enda á fræðigrein sem ég vann að. Það skrölti í Rúmfatalagers-skrifborðsstólnum mínum er ég hallaði mér kotroskin aftur og hóf að láta mig dreyma um þá vegsemd sem biði mín í kjölfar vel unnins verks. Í höfði mér glumdi lófatak og fyrir augum mér svifu fálkaorður. Sigurvímunnar fékk ég hins vegar ekki að njóta lengi. Ég komst nefnilega að því að aðeins sjö manns lesa að meðaltali hverja birta fræðigrein. Sjö manns! Ef ég gerði ráð fyrir að pabbi og mamma væru tveir þessara einstaklinga, eiginmaðurinn einn, bræðurnir… ja, þeir myndu líklega bara bíða eftir kvikmyndaútgáfunni… þá voru fjórir eftir.

Bakþankar

Jón og Reverend John

Tjáningarfrelsið er á meðal mikilvægustu réttinda sem mannkynið hefur viðurkennt. Það að geta tjáð skoðun sína er einn af hornsteinum siðaðra samfélaga. Víða er tjáningarfrelsinu settar einhverjar skorður er lúta að meiðyrðum eða öðru því sem skerðir rétt annarra, þó þeir séu til sem trúa því að frelsi til að tjá skoðanir sínar eigi að vera öllu öðru æðra.

Bakþankar

Bókmenntasorgin

Gerður Kristný skrifar

Í síðustu viku fengu foreldrar og forráðamenn nemenda í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu tölvupóst frá kennurum þar sem þeir falast eftir bókum barnanna þeirra.

Bakþankar

Hnetusmjörsdagurinn

Atli Fannar Bjarkason skrifar

Að kremja hnetur, hita þær og kæla svo úr verður einhvers konar hnetusmjör hefur verið gert í hundruðir ára. Fyrsti maðurinn sem fékk einkaleyfi á einhvers konar gumsinu var hins vegar Kanadamaðurinn Marcellus Gilmore Edson árið 1884. Fjölmargir fengu svipaðar hugmyndir og árið 1903 setti læknirinn Ambrose Straub saman vél sem kramdi hnetur svo úr varð hnetusmjör. Tilgangur vélarinnar var reyndar að koma prótíni ofan í tannlaust gamalt fólk og doktor Straub gerði sér eflaust ekki í hugarlund hversu stórkostleg hugmynd þetta bragðgóða mauk var.

Bakþankar

Af ástleysi kanslara og kjánapriks

Brynhildur Björnsdóttir skrifar

Silvio Berlusconi vill ekki sofa hjá Angelu Merkel. Bara alls ekki. Honum finnst hún feit og ekkert sexý. Þessu lýsti hann yfir í símtali við blaðamann, sem var með upptökutæki í gangi og hugðist nota ummælin til að kúga fé út úr forsætisráðherranum ítalska. Þýskir fjölmiðlar tóku þessum ummælum illa og fjölmiðlar annars staðar tala um hneyksli, móðgun og lítillækkun fyrir Merkel, kanslara Þýskalands, sem er sennilega valdamesta kona í heiminum.

Bakþankar

Sagan af ráðinu eina

Sigríður Víðis Jónsdóttir skrifar

Einu sinni var ráð sem sumum fannst vera algjört óráð en öðrum hins vegar afar gott ráð. Það var kallað Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Þetta var valdamikið ráð og ályktaði sí og æ um heimsmálin, var eiginlega hálfgert Æðstaráð.

Bakþankar

Ó, ó, í hættulegum heimi

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar

Ég átti leið framhjá kirkju einni mikilli í Granada um daginn. Ég var léttur í bragði enda sól í heiði og mannlífið með líflegasta móti þarna á torginu. Síðan sá ég nokkuð sem blés skýi fyrir þetta sólskinsskap mitt.

Bakþankar

Kristján Valur Skálholtsbiskup

Sr. Sigurður Árni Þórðarson skrifar

Skálholt er alla daga áhrifastaður en síðasta sunnudag var þar biskupsvígsla Kristjáns Vals Ingólfssonar. Söngurinn í kirkjunni var máttugur og biskupinn nýi var krossaður, skrýddur og blessaður. Staðurinn ljómaði, bænir flugu og erindið um kærleikann var boðað. Jörð og himinn föðmuðust, tími og eilífð kysstust. Fagnaðarerindi, ekki satt?

Bakþankar

Dýrtíðartabú

Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar

Var ekki einhvern tímann ódýrt að borða fisk? Það er eins og mig rámi í það. Í það minnsta var fiskur mörgum sinnum í viku í matinn hjá flestum sem ég þekki. Jafnvel svo oft að það var sumum til ama. Í dag heitir það fagnaður ef ekki er grísahakk í kvöldmatinn.

Bakþankar