Fréttir

Allt gert til að stöðva birtinguna

Vorið 2009 tók við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, í kjölfar bankahrunsins. Eitt umdeildasta verkefni hennar varð umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Jón Bjarnason sat í stjórninni sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þótt hann væri sjálfur eindreginn andstæðingur aðildar.

Innlent

Skilti í setrinu á ensku: „Hjartan­lega sam­mála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“

Forstöðumaður Þórbergsseturs segist geta tekið undir þá gagnrýni að skilti í veitingasölu menningarsetursins ættu ekki að vera á ensku; það væri viðeigandi ef þau væru frekar á íslensku eða esperanto. Langflestir gestir setursins séu þó erlendir ferðamenn og því sé auðvelt að gleyma sér í því að gera íslenskunni hátt undir höfði. Það gæti vel verið að skiltunum verði skipt út.

Innlent

Yfir­heyra banda­menn sína í NATO

Ráðamenn í Bandaríkjunum eru sagðir hafa sent spurningalista á ríkisstjórnir annarra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins, þar á meðal Íslands. Þar eru þessir ráðamenn meðal annars spurðir út í stuðning ríkjanna við utanríkisstefnu Donalds Trump en spurningarnar munu vera liður í áætlunum Bandaríkjamanna í að draga úr viðbúnaði í Evrópu.

Erlent

Um sex­tán þúsund greitt at­kvæði utan kjör­fundar

Rúm sextán þúsund hafa greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram þann 29 ágúst. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu segir utankjörfundaratkvæðagreiðsluna ganga vel. Það sé mikill áhugi.

Innlent

„Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur"

Donald Trump segir að sér liggi ekkert á þegar kemur að því að binda enda á stríðið gegn Íran. Hann hvetur ráðamenn þar þó til að gefast upp hið snarasta. Um Óman, sem hefur átt í viðræðum við Íran um framtíðarstjórn á Hormússundi, segir forsetinn ráðamönnum þar að standa ekki í vegi sínum.

Erlent

Allt að ní­tján stiga hiti í dag

Milt veður í dag en möguleg bleyta á Austfjörðum og Suðausturlandi. Lægð nálgast landið sem nær þó ekki inn á land og lítil úrkoma á suðaustanverðu landinu. 

Veður

Senda her­menn gegn glæpa­sam­tökum í „bak­garðinum“

Ráðamenn í Bandaríkjunum vilja ólmir senda hermenn til Mið- og Suður-Ameríku, þar sem þeir eiga að herja á leiðtoga og meðlimi glæpasamtaka sem smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna. Á undanförnum mánuðum hafa Bandaríkjamenn fellt rúmlega tvö hundruð manns í loftárásum á meinta smyglara sem eiga að hafa verið að smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna.

Erlent

Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey af­hjúpuð

Risastór stytta af Maríu mey, sem talin er vera sú hæsta í Evrópu, var vígð á laugardag í litlu pólsku þorpi. Styttan er 56 metra há. Bæjaryfirvöld vonast til þess að minnisvarðinn verði mikilvægur pílagrímastaður og ferðamannastaður. Útsýnispallur er byggður inn í stall styttunnar.

Erlent

Kushner mættur til Ísrael

Jared Kushner, sérlegur erindreki Donalds Trump og tengdasonur kom óvænt til Ísraels í morgun og er búist við því að hann hitti Benjamín Netanjahú á fundi síðar í dag. Kushner fundaði með leiðtogum Hamas samtakanna í gær um hvernig hægt verði að koma friðarferli af stað á svæðinu.

Erlent

Aðal­með­ferð hefst í Reyk­holtsmálinu

Aðalmeðferðin í Reykholtsmálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Sex sæta ákæru fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024.

Innlent