Fréttir
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 334 ›
Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Lögregla telur að Kastriot Pepaj hafi verið aðalmaðurinn við skipulagningu fíkniefnainnflutnings í Dettifossmálinu svokallaða ásamt Sævari Erni Hilmarssyni sem sá um samskipti við skipverja á Eimskipi sem fluttu efnin til landsins. Lögregla lagði hald á dýra muni við húsleit á heimili Sævars sem er einnig grunaður um alvarlega líkamsárás við Kórinn í Kópavogi í janúar. Innlent 13.7.2026 16:18
„Stundum koma upp atvik“ Átján ára aldurstakmark tók gildi í útiklefum þriggja sundlauga í Reykjavík þann fyrsta þessa mánaðar þar sem ekki er föst viðvera starfsfólks. Um öryggisráðstöfun er að ræða vegna atvika sem komið hafa upp. Innlent 13.7.2026 15:42
Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Á miðvikudagskvöldið mætast England og Argentína í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu en Pablo Quirno utanríkisráðherra Argentínu stakk niður penna við tilefnið og minnti á að deilunni um Falklandseyjar er hvergi nærri lokið af þeirra hálfu. Erlent 13.7.2026 14:40
Langflestir umsækjendur frá Úkraínu Langflestar umsóknir um alþjóðlega vernd það sem af er ári eru frá Úkraínu líkt og undanfarin ár. Tæplega sjö hundruð hafa sótt um. Innlent 13.7.2026 14:26
Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk Hryðjuverkalögreglan í Bretlandi hefur tekið við rannsókn á andláti Ann Widdecombe sem talin hafa verið myrt. Þessi breyting varð eftir að „nýjar upplýsingar og sönnunargögn“ litu dagsins ljós. Erlent 13.7.2026 14:02
„Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ Engin heimsálfa hitnar hraðar en Evrópa og enginn vafi er á því að hitabylgjum sé að fjölga í álfunni segir fagstjóri hjá Veðurstofu Íslands. Hitabylgjan sem geisaði um álfuna nú í sumar hafi náð yfir mun stærra svæði en þær sem mælst hafa á árum áður. Erfitt hefur verið að halda úti markmiði Parísarsamningsins um að halda hlýnuninni innan tveggja gráða. Innlent 13.7.2026 13:11
„Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Sálfræðingur og tónlistarmaður segir að áhrifavaldar sem auglýsi veðmálasíður verði að líta í eigin barm. Ungir menn eigi auðvelt með að sogast inn í spilafíkn, sem geti síðan leitt til sjálfsvígshugsana. Það orki einnig tvímælis að tónlistarmenn sem syngi um það hve erfitt er að alast upp í kringum fíkn auglýsi sjálfir veðmálasíður. Innlent 13.7.2026 13:10
Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að nauðga konu. Í ákæru segir að þau hafi hafið samræði með beggja vilja, en hann svo farið að beita hana ofbeldi meðan hún reyndi að fá hann til að hætta. Innlent 13.7.2026 13:10
Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi Allt tiltækt slökkvi- og sjúkraflutningalið í Vestmannaeyjum var kallað út á ellefta tímanum í morgun þegar eldur kom upp í vélbátnum Maggý VE 108. Innlent 13.7.2026 12:54
„Það varð uppi fótur og fit“ Uppi varð fótur og fit hjá fuglaáhugamönnum að sögn fuglafræðings eftir að sást til Viðartittlings í Kjósinni. Er þetta í fyrsta sinn sem sést til tegundarinnar hér á landi og aðeins í annað sinn í Evrópu. Innlent 13.7.2026 12:08
Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Formaður Loftslagsráðs segir endurheimt votlendis á Íslandi ekki mega bíða lengur. Loftslagsráð boðar til þjóðarátak um endurheimt votlendis í nýrri skýrslu þar sem jafnframt kemur fram að markmið stjórnvalda hafa ekki náðst. Innlent 13.7.2026 12:07
Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Olíuverð hækkaði skarpt í morgun í skugga vaxandi spennu í Miðausturlöndum. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeiganda hefur áhyggjur af þróuninni og höfðar til ábyrgðar olíufélaga. Íslenskir neytendur séu nú þegar að greiða óeðlilega hátt verð fyrir bensínlítrann. Innlent 13.7.2026 11:50
Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Hafnarfjarðarbær hefur verið sýknaður af kröfum Jóns Rúnars Halldórssonar, fyrrverandi formanns knattspyrnudeildar FH, í Héraðsdómi Reykjaness. Hann hafði farið fram á að bærinn myndi greiða sér 2,5 milljónir króna fyrir að afhenda fjölmiðlum gögn. Innlent 13.7.2026 11:36
„Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur hefur fylgst grannt með gangi mála í laxveiðinni og hefur hann rannsakað Elliðaárnar um hríð. Þar fylgist hann meðal annars með laxateljurum og segir árnar „bakkafullar af göngulaxi“. Innlent 13.7.2026 11:36
Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist var inn í sælkerabakaríið Sweet Aurora Reykjavík í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags og peningum stolið. Eigandinn er miður sín en afar þakklátur fyrir stuðning samfélagsins sem stendur með henni. Hún stefnir ótrauð á að halda fjögurra ára afmælisveislu verslunarinnar. Innlent 13.7.2026 10:53
ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir sambandið þurfa að setja aldursmörk á aðgang að samfélagsmiðlum. Nefnd á vegum framkvæmdastjórnarinnar kynnti í dag skýrslu um fylgni notkunar ungmenna á samfélagsmiðlum og vanlíðanar. Erlent 13.7.2026 10:29
Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Brotist var inn í Hvítasunnukirkjuna Fíladelfíu við Hátún í Reykjavík í gær. Smámunum var stolið, þar á meðal gítar. Innlent 13.7.2026 10:10
Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Talið er að yfir 2.700 hafi látist af völdum hita í Englandi og Wales í kjölfar hitabylgju sem þar geisaði í maí og júní. Rauðar veðurviðvaranir vegna hitans voru gefnar út í lok júní en talið er að flest dauðsföll hafi átt sér stað í júnímánuði þegar hiti náði tæpum 37 stigum. Erlent 13.7.2026 09:47
Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Ísland gæti orðið hálfrar milljónar þjóð strax árið 2037, samkvæmt hæsta spáafbrigði Hagstofunnar. Á sama tíma breytist samsetning mannfjöldans hratt. Innflytjendur og börn innflytjenda eru nú rúmlega fimmtungur landsmanna, fæðingarmynstur hefur breyst og til lengri tíma er gert ráð fyrir að þjóðin eldist. Innlent 13.7.2026 09:02
Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Sænskur þingmaður Evrópusambandsins hefur lagt fram kæru til lögreglu þar sem hún sakar danskan kollega sinn um hatursorðræður byggðar á kynþáttafordómum. Þingmaðurinn varð fyrir áreiti á samfélagsmiðlum fyrir að fordæma fagnaðarlæti á Evrópuþinginu. Erlent 13.7.2026 08:35
McConnell birtir mynd af sér á spítala Öldungadeildarþingmaðurinn Mitch McConnell hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann greinir frá því að hann hafi dvalist á sjúkrahúsi og gengist undir ýmsar rannsóknir eftir fall og væga lungnabólgu. Erlent 13.7.2026 08:16
Gagnrýnin byggð á misskilningi Barna- og menntamálaráðherra segir gagnrýni samtaka sveitarfélaga um að ríkið sé að skilgreina sig frá tilteknum hópi barna með fjölþættan vanda byggða á misskilningi. Ríkinu sé í lófa lagið að snúa fyrirkomulaginu til fyrra horfs sé það vilji sveitarfélaga. Innlent 13.7.2026 07:58
Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Árásir Bandaríkjanna og Íran hvort á annað héldu áfram í nótt. Skotmörk Írana voru herstöðvar í nágrannalöndum en Bandaríkin sögðust hafa hæft meðal annars loftvarnarkerfi Írana. Erlent 13.7.2026 07:48
Miklir skógareldar nærri París Tvær slökkviflugvélar voru sendar með hraði til að berjast við gróðurelda sem kviknuðu í Fontainebleau-skógi, 60 kílómetra suðaustan við Parísarborg. Erlent 13.7.2026 07:29
Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Búast má við rigningu á köflum í dag, einkum vestantil á landinu. Hiti gæti náð allt að 22 stigum og enn verði hlýjast á Austfjörðum. Veður 13.7.2026 06:41
Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust þrjár tilkynningar um yfirstaðið innbrot í nótt, tvö í heimahús og eitt í kirkju. Einn var handtekinn í þágu rannsóknar á öðru innbrotinu í heimahús en málin séu öll í rannsókn. Innlent 13.7.2026 06:25
Lokuðu flugbraut vegna dróna Flugbraut á Reykjavíkurflugvelli var lokað um tíma í dag og óskað eftir aðstoð lögreglu þegar dróna var flogið nálægt vellinum í leyfisleysi. Hann sást utan flugvallarsvæðis og var flugbrautin opnuð aftur skömmu síðar. Innlent 12.7.2026 23:56
Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Breska leikkonan Judi Dench, grínistinn Ricky Gervais og tónlistarkonan Leona Lewis eru meðal þeirra sem skora á atvinnuvegaráðherra að tryggja að hvalveiðum verði hætt við Íslandsstrendur. Innlent 12.7.2026 22:58
Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Minnst 27 manns létust þegar eldur kviknaði á bar í Bangkok, höfuðborg Taílands. Forsætisráðherra landsins greinir frá þessu en slökkvilið var kallað á vettvang rétt eftir miðnætti á mánudag að staðartíma. Sáust þá gestir staðarins flýja út um alelda útidyr. Erlent 12.7.2026 22:14
„Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Forvarnarsamtök fordæma ummæli aðstoðarlögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og að lögreglan hafi ekki lokað sölustöðum áfengisnetverslana eftir að sala Smáríkisins var dæmd ólögleg. Innlent 12.7.2026 21:40