Suárez með fernu í stórsigri Börsunga | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. apríl 2016 20:15
Barcelona endurheimti toppsætið í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta með 6-0 sigri á Sporting Gijón á Nývangi í kvöld.Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan. Eftir þrjú töp í röð eru Börsungar komnir á beinu brautina og hafa unnið síðustu tvo leiki sína með markatölunni 14-0. Luis Suárez skoraði fernu í kvöld og líkt og í leiknum gegn Deportivo La Coruna á miðvikudaginn. Tvö þessara marka komu af vítapunktinum en Barcelona fékk alls þrjár vítaspyrnur í leiknum. Seinni tvö vítin fengu spænsku meistararnir nánast gefins en dómari leiksins, Clos Gómez, átti ekki sinn besta dag. Lionel Messi kom Barcelona í 1-0 á 12. mínútu og þannig var staðan í hálfleik og allt fram á 63. mínútu þegar Suárez bætti öðru marki við. Hann skoraði svo úr tveimur vítaspyrnum og Neymar bætti fimmta markinu við úr víti á 85. mínútu. Það var svo Suárez sem átti síðasta orðið þegar hann skoraði sitt fjórða mark þremur mínútum síðar. Lokatölur 6-0, Barcelona í vil. Með sigrinum komust Börsungar upp fyrir Atlético Madrid sem skaust á toppinn með 1-0 sigri á Malaga fyrr í kvöld. Barcelona og Atlético Madrid eru með jafn mörg stig (82) en Katalóníuliðið er fyrir ofan á betri árangri í innbyrðis viðureignum liðanna. Real Madrid er svo með 81 stig í 3. sæti. Öll toppliðin eiga þrjá leiki eftir.
Spænski boltinn Tengdar fréttir Tvö mörk frá Bale og Real Madrid skaust á toppinn Real Madrid komst í hann krappan gegn Rayo Vallecano á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 23. apríl 2016 16:15 Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira
Tvö mörk frá Bale og Real Madrid skaust á toppinn Real Madrid komst í hann krappan gegn Rayo Vallecano á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 23. apríl 2016 16:15