Jón Daði verður með A-landsliðinu á móti Lettlandi og Hollandi Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. október 2014 14:30 Jón Daði Böðvarsson fór á kostum í sínum fyrsta mótsleik með íslenska landsliðinu á móti Tyrklandi. vísir/afp
Jón Daði Böðvarsson, leikmaður norska úrvalsdeildarliðsins Viking frá Stavanger, verður í hópi A-landsliðsins sem mætir Lettum og Hollendingum í næstu leikjum liðsins í undankeppni EM 2016, samkvæmt öruggum heimildum Vísis. U21 árs landsliðið á fyrir höndum tvo risa leiki gegn Dönum heima og að heiman á sama tíma í umspili um sæti á EM 2015 í Tékklandi, og þurfti að taka ákvörðun um hvoru liðinu Jón Daði myndi spila með. Hóparnir fyrir bæði verkefnin verða kynntir á blaðamannafundi á morgun. Jón Daði spilaði sjö leiki af tíu í riðlakeppninni með U21 árs landsliðinu, en var ekki með í síðasta leiknum gegn Frakklandi þar sem liðið tryggði sér sæti í umspilinu. Hann hafði þá verið valinn í A-landsliðið og spilaði sinn fyrsta mótsleik gegn Tyrkjum á Laugardalsvellinum síðasta mánuði. Þar sló hann í gegn; skoraði eitt mark og fékk átta í einkunn hjá Fréttablaðinu. Jón Daði er búinn að spila 24 leiki fyrir Viking á tímabilinu og skora fimm mörk, en liðinu hefur gengið illa að undanförnu og aðeins unnið einn af síðustu átta leikjum. Selfyssingurinn ungi lét í sér heyra vegna gengis liðsins og skammaði þjálfara sína rækilega í norsku dagblaði í gær. Þá frétt má lesa hér. Ísland mætir Lettlandi ytra 10. október og Hollandi á Laugardalsvellinum mánudaginn 13. október. U21 árs liðið spilar við Dani ytra 10. október, en heimaleikurinn fer fram þriðjudaginn 14. október.
Íslenski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira