Dómsmál
73 74 75 76 77 78 79 80 81 … 163 ›
Banaslysið í Plastgerðinni: Þrír yfirmenn dæmdir fyrir manndráp af gáleysi eða hlutdeild í því Þrír yfirmenn hjá Plastgerð Suðurnesja hafa verið dæmdir fyrir manndráp af gáleysi eða hlutdeild í því í júlí 2017 þegar undirmaður þeirra klemmdist í vinnuvél og dó í kjölfarið. Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóm sinn í dag. Dómurinn leit til þess að starfsmaðurinn hefði verið undir áhrifum fíkniefna og lyfja þegar slysið varð. Innlent 7.5.2021 16:29
Ólympíufari dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir að slá dyravörð Þormóður Jónsson var í lok síðasta mánaðar dæmdur í þrjátíu daga fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás aðfaranótt Þorláksmessu árið 2018. Þormóður, sem er þrefaldur Ólympíufari og var fánaberi Íslands á leikunum í Ríó 2016, sló dyravörð með krepptum hnefa eftir að hafa rifist við eiganda Lebowski bar sem honum hafði verið vísað út af. Innlent 6.5.2021 18:15
„Gæti ekki verið sennilegra að hann hafi bara verið reykingamaður?“ Stefán Karl Kristjánsson, verjandi Mareks Moszczynski, pólsks karlmanns á sjötugsaldri, segir saksóknara í málinu ekki hafa sannað að Marek hafi kveikt í húsi við Bræðraborgarstíg 1 í fyrrasumar. Það eitt hafi verið sannað fyrir dómi og það er að Marek hafi glímt við andleg veikindi í aðdraganda og kjölfar brunans. Innlent 5.5.2021 14:01
Krafa um ævilangt fangelsi eða vistun á öryggisgeðdeild Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari fer fram á að Marek Moszczynski verði dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að verða valdur að dauða þriggja í eldsvoða við Bræðraborgarstíg í júní í fyrra. Innlent 5.5.2021 12:10
Lokavitni, myndband og málflutningur á lokadegi Síðasti dagur aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Marek Moszczynski, pólskum karlmanni á sjötugsaldri, er í dag. Marek er ákærður fyrir brennu, manndráp og tilraun til manndráps. Þrír fórust í brunanum að Bræðraborgastígi 1 í fyrrasumar. Hann hefur neitað sök og hefur jafnframt verið metinn ósakhæfur. Innlent 5.5.2021 09:01
Elínborg sakfelld: „Þetta eru mjög skýr skilaboð til mín um að hafa mig hæga“ Elínborg Harpa Önundardóttir, aðgerðasinni og baráttukona fyrir réttindum flóttafólks, var í dag sakfelld í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot gegn valdstjórninni og fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lögreglunnar. Innlent 4.5.2021 10:34
Ákærður fyrir tilraun til að drepa eiginkonu sína á Hótel Borg Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi fyrir að hafa veist að eiginkonu sinni á Hótel Borg í Reykjavík í lok janúar síðastliðnum. Þetta kemur fram í ákæru á hendur manninum sem fréttastofa hefur undir höndum. Innlent 4.5.2021 10:15
Krefjast kyrrsetningar eigna eiganda hússins við Bræðraborgarstíg Lögmaður aðstandenda þeirra sem létust í brunanum við Bræðraborgarstíg hefur krafist þess að eignir eiganda hússins verði kyrrsettar til tryggingar fullnustu bótakrafna umbjóðenda sinna. Innlent 3.5.2021 06:48
Síðasta degi aðalmeðferðar frestað Síðasta degi aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Marek Moszczynski, pólskum karlmanni á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir að hafa banað þremur með íkveikju að Bræðraborgarstíg í fyrrasumar, hefur verið frestað fram í næstu viku. Innlent 30.4.2021 10:35
Landamæravörður dæmdur fyrir ólöglegar uppflettingar í LÖKE Hæstiréttur dæmdi í dag landamæravörð til greiðslu 100 þúsund króna sektar í ríkissjóð að hafa ítrekað flett upp upplýsingum um fyrrverandi maka sinn og aðra konu í lögreglukerfinu, LÖKE, án þess að það tengdist starfi hennar. Innlent 29.4.2021 14:56
Frétti af uppsögninni í gegnum skjáskot frá samstarfsmanni Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í síðustu viku Vegagerðina til að greiða tveimur fyrrverandi starfsmönnum samtals 11,5 milljónir króna í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar þeirra árið 2019. Þeir sögðust báðir hafa frétt af uppsögnunum í gegnum samstarfsfólk sitt en kröfðu Vegagerðina um tíu sinnum hærri bætur en þeim var að lokum úthlutað. Innlent 29.4.2021 13:57
Gjörbreyttur eftir áfallið á spítalanum Marek Moszczynski, pólskur karlmaður sem ákærður er fyrir að hafa orðið þremur að bana með íkveikju að Bræðraborgarstíg 1 í fyrrasumar, taldi sig vera með illkynja krabbamein þegar bruninn varð. Geðlæknar telja líklegt að áfallið við þær fréttir hafi komið andlegum veikindum hans af stað. Innlent 28.4.2021 12:26
Komst út á hnjánum vafinn í sæng og svo haldið sofandi í mánuð Íbúi að Bræðraborgarstíg 1, sem brann til kaldra kola síðdegis 25. júní, var tvo mánuði á sjúkrahúsi og þar af haldið sofandi í mánuð eftir brunann. Hann þurfti að gangast undir húðágræðslu vegna brunasára. Þá lýsti hann því að þegar var byrjað að skíðloga í húsinu þegar hann áttaði sig á því að kviknað væri í. Innlent 28.4.2021 10:41
Hélt á kveikjara þegar hann var handtekinn við rússneska sendiráðið Marek Moszczynski, sem ákærður er fyrir að hafa banað þremur með íkveikju við Bræðraborgarstíg í fyrrasumar, hélt á kveikjara þegar hann var handtekinn við rússneska sendiráðið skömmu eftir að kveikt var í húsinu þann 25. júní. Innlent 27.4.2021 16:41
Hvarf inn í reykinn og sást ekki meir Lögreglumenn sem voru með þeim fyrstu á vettvang brunans að Bræðraborgarstíg 1 í fyrrasumar lýsa algjöru „kaosástandi“. Fólk hafi legið í götunni eftir að hafa kastað sér út úr húsinu og ekki hafi verið unnt að hjálpa öllum; maður á þriðju hæð hafi til dæmis „horfið inn í reykinn“ og ekki sést meir. Innlent 27.4.2021 13:47
Íslenska parið neitar því að hafa kveikt í húsinu Íslenskt par sem bjó á fyrstu hæð hússins að Bræðraborgarstíg 1, sem brann til grunna síðasta sumar, neitar því að hafa átt þátt í íkveikjunni. Þau voru bæði heima þegar eldurinn kviknaði og lýsa skelfilegri atburðarás síðdegis 25. júní 2020. Innlent 27.4.2021 10:41
Sjónum beint að íslensku pari Vinnuveitandi Mareks Moszczynski, pólsks karlmanns á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir að hafa orðið þremur að bana með íkveikju að Bræðraborgarstíg í fyrrasumar, hitti Marek tveimur klukkustundum fyrir íkveikjuna. Marek hafi þá verið í miklu andlegu ójafnvægi, sem þykir afar ólíkt honum. Innlent 26.4.2021 20:34
Kom inn ganginn í ljósum logum Örvænting og skelfing einkenndi frásagnir íbúa að Bræðraborgarstíg 1 þegar þeir lýstu eldsvoðanum 25. júní í fyrra við aðalmeðferð í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þá sögðu þeir frá því að Marek Moszczynski, karlmaður á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir að hafa orðið þremur að bana í húsinu með íkveikju, hefði verið mikill rólyndismaður – en sumir tóku eftir einkennilegri hegðun hans í aðdraganda eldsvoðans. Innlent 26.4.2021 16:32
„Hvað get ég sagt? Ég er saklaus“ Marek Moszczynski, karlmaður á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir að hafa orðið þremur að bana með íkveikju að Bræðraborgarstíg í fyrra, baðst undan því að gefa skýrslu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann vísaði í fyrri skýrslur sem teknar voru af honum hjá lögreglu og ítrekaði að hann væri saklaus. Innlent 26.4.2021 09:46
Meintur morðingi svarar fyrir sig í héraðsdómi Aðalmeðferð í Bræðraborgarstígsbrunanum hefst við Héraðsdóm Reykjavíkur í dag. Marek Moszczynski, karlmaður á sjötugsaldri, er sá fyrsti í Íslandssögunni til að vera ákærður fyrir að bana þremur. Reiknað er með því að hann gefi skýrslu fyrstur fyrir dómi í dag. Innlent 26.4.2021 06:16
Giggs ákærður fyrir árás á tvær konur Ryan Giggs, landsliðsþjálfari Wales í fótbolta og fyrrverandi leikmaður Manchester United, hefur verið ákærður fyrir að ráðast á tvær konur 1. nóvember síðastliðinn. Fótbolti 23.4.2021 15:52
Hafna því alfarið að Systrabönd byggi á Hystory Aðstandendur sjónvarpsþáttanna segja líkindin til komin vegna eðlilegrar úrvinnslu á áþekku umfjöllunarefni. Menning 23.4.2021 14:41
Leyndi kaupendur ólöglegum framkvæmdum og þarf að greiða tíu milljónir í bætur Seljandi fasteignar í Reykjavík upplýsti kaupendur hússins ekki um að breytingar sem hann hafði ráðist í væru gerðar í óleyfi. Kaupendurnir stefndu seljandanum eftir að sáttafundir mistókust og kröfðust bóta vegna galla á húsinu og tapaðra leigutekna. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á mánudag seljandann til að greiða kaupendunum rúmar tíu milljónir í bætur. Innlent 21.4.2021 21:35
Hverjar verða breytingarnar við landamærin? Heilbrigðisráðherra hefur kynnt öllum þingflokkum frumvarp sem lagt verður fram á Alþingi í fyrramálið, þar sem lögð er til undantekningarlaus skyldudvöl á sóttkvíarhóteli fyrir afmarkaðan hóp komufarþega við landamærin. Innlent 20.4.2021 23:59
Með amfetamínbasa og stera í lítratali í bílskúrnum Héraðsdómur Reykjaness dæmdi fyrr í mánuðinum karlmann, Eimantas Strole, í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Innlent 20.4.2021 22:57
Hagað sér eins og rannsóknarlögregla með fyrirfram gefna niðurstöðu Mál nígeríska hælisleitandans Uhunoma Osayomore gegn íslenska ríkinu var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en þar er krafist ógildingar á nýlegum úrskurði kærunefndar útlendingamála. Innlent 20.4.2021 14:14
Naut réðst á vinnukonu á meðan bóndinn létti á sér Landsréttur staðfesti á föstudag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli sem á rætur sínar að rekja alla leið aftur til ársins 2010 þegar naut réðist á konu í ónefndri sveit hér á landi. Innlent 20.4.2021 06:16
Veiktist alvarlega á Grundartanga og dæmdar bætur níu árum síðar Fyrrverandi starfsmanni járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga hafa verið dæmdar bætur vegna sjúkdóms sem hann þróaði með sér í starfi í óviðunandi starfsumhverfi. Starfsmaðurinn veiktist alvarlega árið 2012 og hefur síðan þá barist fyrir réttlæti. Sjóvá þarf að greiða honum 22 milljónir króna og 1,5 milljón króna í miskabætur. Innlent 16.4.2021 15:00
Kristín Eiríksdóttir segir Systrabönd afbökun á sínu verki Kristín greindi frá því í áhrifamiklum pistli í Víðsjá nú síðdegis hvernig það hafi verið sem spark í maga að komast að því að Systrabönd eru eins að efni til og upplagi eins og leikrit hennar Hystory. Menning 15.4.2021 16:48
Í alvarlegu ástandi eftir að úrskurðurinn var kveðinn upp Uhunoma Osayomore, 21 árs hælisleitandi frá Nígeríu, fékk gríðarlegt áfall þegar kærunefnd útlendingamála staðfesti brottvísun hans úr landi á föstudag. Vinir Uhunoma segja frá því í pistli í dag að hann hafi verið lagður inn á bráðageðdeild eftir að hann fékk fréttirnar og andlegri heilsu hans hrakað mjög. Innlent 14.4.2021 15:18