Sætið

Sætið

Sætið eru ítarlegir viðtalsþættir þar sem Elísabet Inga Sigurðardóttir sest niður með áhrifafólki í samfélaginu og fer á dýptina í óklipptum viðtölum.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Mikil­vægt að styggja fólk ekki með orða­lagi

Formaður Miðflokksins segir umræðuna um regnbogafánana hafa komið sér á óvart. Allir eigi að fá að vera eins og þeir vilji vera en hópar telji fánann þvingandi og útilokandi og segir formaðurinn hættu á að hann ýti börnum út í „eitthvað trend“. Menntakerfið megi ekki beina þeim í „ákveðnar áttir“. Formaðurinn hefur ekki greitt atkvæði á þessu þingi en hyggst brátt tala manna mest og boðar nýjar tillögur í útlendingamálum.

Innlent
Fréttamynd

Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður

Logi Einarsson ætlar að flýta gerð nýs þjónustusamnings við Ríkisútvarpið þar sem miðlinum verða settar frekari skorður á samkeppnismarkaði. Nýr samningur átti að líta dagsins ljós í lok næsta árs en verður gerður á fyrri hluta ársins. Á svipuðum tíma boðar hann fyrstu háskólastefnu Íslands. Logi segir að það sem þar verður kynnt verði örugglega umdeilt en í stefnunni verði ekki að finna skipanir um sameiningu skóla. 

Innlent