Kosningar í Færeyjum

Fréttamynd

Rýnt í kosningarnar í Fær­eyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn

Fimmtudaginn 26. mars ganga frændur okkar í Færeyjum til þingkosninga sem gætu reynst örlagaríkar eins og svo margar. Þinginu var slitið í óþökk stærsta hluta ríkisstjórnarinnar og með svikabragði að mati sumra. Það bætir einnig í dramatíkina að líklegasta lögmannsefnið samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum er bróðursonur sitjandi lögmanns.

Erlent
Fréttamynd

Fær­eyskir sjó­menn á græn­lenskum togara kusu á Ís­landi

Kosið verður til færeyska lögþingsins eftir að Aksel V. Johannesen lögmaður boðaði til óvæntra þingkosninga fyrr í vikunni. Fyrstu utankjörfundaratkvæðin frá Íslandi bárust sendistofunni í gær en sex færeyskir sjómenn náðu að nýta kosningaréttinn áður en þeir lögðu út á grænlenskum togara.

Innlent
Fréttamynd

Jafnaðar­flokkurinn vann sigur í Fær­eyjum

Jafnaðarflokkur Færeyja er sigurvegari í þingkosningunum sem fram fóru þar í landi í gær. Flokkurinn náði níu þingsætum sem er bæting um tvö frá fyrra þingi og er þar með orðinn stærsti flokkur Færeyja eftir að hafa fengið 26,6 prósent atkvæða.

Erlent