Stj.mál
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 187 ›
Gorbatsjov aftur í Höfða eftir tuttugu ár Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi leiðtogi Svoétríkjanna, sneri aftur í Höfða nú í hádeginu, tuttugu árum eftir að hann og Ronald Reagan, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, komu þar saman til fundar til að ræða afvopnunarmál stóveldanna tveggja. Innlent 12.10.2006 14:20
Ólöf Nordal sækist eftir 2. sæti í Norðausturkjördæmi Ólöf Nordal, framkvæmdastjóri á Egilsstöðum, hefur ákveðið að sækjast eftir öðru sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningum í vor. Innlent 12.10.2006 12:26
Tekið tillit til matarskattslækkunar við vaxtaákvörðun Tekið verður tillit til lækkunar matarskatts við næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans um mánaðamótin, segir Davíð Oddsson seðlabankastjóri. Hann segir að skattalækkunin auki spennu en það sé þó til bóta að lækkunin komi ekki til framkvæmda fyrr en næsta vor þegar væntingar séu um að verðbólgan hafi hjaðnað töluvert. Innlent 12.10.2006 12:19
Standa saman að frumvarpi um að gefa megi samkynhneigða saman Frumvarp sem heimilar prestum og forstöðumönnum skráðra trúfélaga sem hafa vígsluheimild, að gefa saman samkynhneigða í staðfesta samvist hefur verið lagt fram á Alþingi. Sem kunnugt er náðist ekki samkomulag um þetta atriði þegar samstaða var um umtalsverðar réttarbætur í málefnum samkynhneigðra í vor vegna andstöðu kirkjunnar. Innlent 12.10.2006 11:46
Harma að fjármagn sé ekki eyrnamerkt leiknu íslensku sjónvarpsefni Stjórn Félags leikskálda og handritshöfunda fagnar nýjum samingi milli Ríkisútvarpsins og Menntamálaráðuneytisins um aukinn hlut íslensks dagskrárefnis í Ríkissjónvarpinu á næstu fimm árum. Í ályktun frá stjórninni er það hins vegar harmað að í samningnum sé hvorki fjármagn né útsendingarhlutfall eyrnamerkt leiknu íslensku sjónvarpsefni. Innlent 12.10.2006 11:05
Forval VG á höfuðborgarsvæðinu 2. desember Kjörstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að forval flokksins vegna þingkosninga í vor í Reykjavíkurkjördæmum suður og norður og Suðvesturkjördæmi verði haldið þann 2. desember. Innlent 12.10.2006 10:51
Segir starfsmann Landssímans hafa staðfest hleranir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að fyrrverandi yfirmaður í tæknideild Landssíma Íslands hafi hringt í sig í gærkvöld og staðfest að sími Jóns hefði verið hleraður þegar hann var ráðherra. Þetta kom fram í viðtali við Jóhann Hauksson í þættinum Morgunhaninn á Útvarpi Sögu í morgun. Innlent 12.10.2006 09:56
Mótmæla komu herskipsins Wasp til landsins Samtök herstöðvaandstæðinga átelja harðlega það samkomulag sem gert hefur verið um áframhaldandi samstarf Íslands og Bandaríkjanna á sviði hernaðar og hvernig borgaralegum stofnunum eins og Landhelgisgæslunni og lögreglunni skuli blandað í hernaðarlegt samstarf. Segir að þau áform komi berlega í ljós við heimsókn herskipsins Wasp á næstunni. Innlent 12.10.2006 09:26
Stúdentaráð mælir með menntun Stúdentaráð Háskóla Íslands stendur í dag fyrir meðmælum undir yfirskriftinni „Vér meðmælum öll" fyrir utan aðalbyggingu Háskóla Íslands. Með því vill ráðið koma menntamálum í umræðuna fyrir næstu þingkosningar. Innlent 12.10.2006 09:23
Veita um 70 milljónir í friðarsjóð SÞ Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, hefur ákveðið að veita framlag sem nemur einni milljón bandaríkjadala, um 70 milljónum króna til sérstaks sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna til uppbyggingar friðar í stríðshrjáðum löndum (Peacebuilding Fund). Innlent 11.10.2006 17:01
Skrifað undir varnarsamning í Washington - Rice heimsækir Ísland Geir H. Haarde forsætisráðherra, Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skrifuðu undir nýtt samkomulag milli Íslands og Bandaríkjanna um varnarmál í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna í Washington nú á fimmta tímanum. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra var einnig viðstaddur undirritunina. Innlent 11.10.2006 16:52
Valgerður fundaði með Wolfowitz Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Paul Wolfowitz, forseta Alþjóðabankans þar sem meðal annars var rætt um þau málefni sem eru ofarlega á baugi í starfsemi bankans, eins og orkumál og barátta gegn spillingu. Innlent 11.10.2006 16:22
Vel hægt að taka upp neysluviðmið hér á landi Starfshópur, sem iðnaðarráðherra skipaði til að kanna hvort hægt væri að semja neysluviðmið fyrir Íslands líkt og í nágrannaríkjunum, mælir með því að notuð verði svokölluð útgjaldaaðferð til að áætla framfærslukostnað heimila hér á landi. Jafnframt er lagt til að sérfróðum og hluthlausum aðila verði falið að vinna neysluviðmið með þeirri aðferð í samvinnu við Hagstofu Íslands. Innlent 11.10.2006 14:58
Bókaútgefendur og rithöfundar fagna lækkun virðisaukaskatts Félag íslenskra bókaútgefenda og Rithöfundasamband Íslands fagnar þeim tillögum ríkisstjórnarinnar að lækka virðisaukaskatt á bókum, blöðum og tímaritum úr 14 prósetum í sjö prósent þann 1. mars næstkomandi enda hafi niðurfelling eða lækkun virðisaukaskatts á bækur um langt skeið verið eitt helsta baráttumál útgefenda og rithöfunda. Innlent 11.10.2006 14:33
Unnið að frumhönnun nýs húss að Sogni Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra segir að bæta þurfi við þrettán plássum á réttargeðdeildina að Sogni. Unnið er að frumhönnun nýs húss sem byggja á á svæðinu. Innlent 11.10.2006 12:50
Gorbatsjov kemur til landsins í dag Mikhail Gorbatsjov, fyrrum leiðtogi Sovétríkjanna, lendir á Reykjavíkurflugvelli um klukkan fjögur í dag og kemur til landsins í einkaflugvél Björgólfs Thors Björgólfssonar. Innlent 11.10.2006 12:39
Vill verndar- og nýtingaráætlun innan fjögurra ára Auðlindanefnd iðnaðarráðherra legggur til að Alþingi samþykki verndar- og nýtingaráætlun fyrir auðlindir í jörðu sem lög eða þingsályktun eigi síðar en árið 2010. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu nefndarinnar sem kynnt var í dag. Innlent 11.10.2006 12:43
Varnarsamningur undirritaður síðdegis í dag Stefnt er að því sídegis í dag að undirrita í Washington varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna. Þrír ráðherrar í ríkisstjórn Íslands eru í Bandaríkjunum vegna þessa viðburðar þau Geir Haarde, forsætisráðherra, Valgerður Sverrisdóttir,utanríkisráðherra og Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. Innlent 11.10.2006 12:30
Jagland í opinberri heimsókn hér á landi Thorbjørn Jagland, forseti norska Stórþingsins, verður í opinberri heimsókn á Íslandi ásamt eiginkonu sinni frá og með deginum í dag til 15. október. Innlent 11.10.2006 11:23
Auðlindanefnd skilar niðurstöðum í dag Auðlindanefnd, sem skipuð var fyrr árinu til þess að gera tillögur um nýtingu auðlinda í jörðu, hefur skilað af sér skýrslu og verður hún kynnt á blaðamannafundi klukkan ellefu í dag. Innlent 11.10.2006 09:29
Kristján Þór vill leiða í Norðausturkjördæmi Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, sækist eftir að leiða lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi kosningar í Norðausturkjördæmi. Hann er sá þriðji sem lýsir því yfir að hann vilji leiða listann. Kristján tilkynnti þetta á aðalfundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri í kvöld. Innlent 9.10.2006 21:12
Möguleg leyniþjónustustarfsemi á vegum stjórnvalda Möguleg leyniþjónustustarfsemi á vegum stjórnvalda verður rædd utan dagskrár á Alþingi í dag. Málshefjandi er Steingrímur J. Sigfússon en dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, verður til andsvara. Umræðan stendur í eina og hálfa klukkustund og verður hún send beint út hér á Vísi. Útsendingin hefst klukkan 15:30 Innlent 9.10.2006 15:10
Valgerður vill áfram leiða í Norðausturkjördæmi Tvöfalt kjördæmisþing kemur til með að velja á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Þingið verður haldið 13. janúar og munu fulltrúar þar raða í tíu efstu sætinu á listanum. Valgerður Sverrisdóttir leiddi lista flokksins í kjördæminu í síðustu kosningum. Í samtali við NFS sagði Valgerður að hún gæfi að sjálfsögðu kost á sér fyrir komandi kosningar. Innlent 8.10.2006 15:50
Jón Baldvin ekki í framboði í Suðvesturkjördæmi Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, er ekki á meðal þeirra sem buðu sig fram í prófkjör hjá Samfylkingunni í Suðvesturkjördæmi. Framboðsfrestur rann út í gærkvöldi og gefa 19 manns kost á sér. Innlent 7.10.2006 10:42
19 gefa kost á sér Framboðsfresti vegna prófkjörs Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi lauk kl. 22:00 í kvöld. Alls gefa 19 einstaklingar kost á sér í prófkjörinu. Innlent 6.10.2006 22:37
Jakob Frímann sækist eftir 3. sæti Jakob Frímann Magnússon hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.sætið á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Framboðsfrestur rann út í kvöld. Innlent 6.10.2006 21:31
Ragnheiður stefnir á 3. sæti í Kraganum Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ, hefur ákveðið að sækjast eftir 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í vor. Prófkjör fer fram 11. nóvember. Innlent 6.10.2006 21:26
19 í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 19 hafa gefið kost á sér fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem haldið verður daganan 27. og 28. október næstkomandi. Framboðsfresturinn rann út kl. 17 í dag. Innlent 6.10.2006 18:05
Sonja B. Jónsdóttir sækist eftir 4. - 5. sæti Sonja B. Jónsdóttir myndlistarkennari og kvikmyndagerðarmaður býður sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi þann 4. nóvember n.k. Hún sækist eftir 4.-5. sæti og vill einkum vinna að auknum jöfnuði í samfélaginu, forvarnamálum, bættum hag barna, unglinga, fatlaðra, öryrkja og aldraðra og einnig að fræðslu- og menningarmálum. Innlent 6.10.2006 15:27
Bjarni Harðarson stefnir á 2. sæti Bjarni Harðarson, fyrrverandi ritstjóri Sunnlenska fréttablaðsins og væntalegur bóksali á Selfossi, hefur aðkveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi vegna komandi kosninga til Alþingis. fréttavefurinn sudurland.is greinir frá. Innlent 6.10.2006 14:34
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent