Stj.mál
103 104 105 106 107 108 109 110 111 … 187 ›
Amnesty fagnar "Íslandsdeild Amnesty International fagnar undirskrift Íslands á nýjum samningi gegn mansali." Svo segir í fréttatilkynningu frá ÍAI. Davíð Oddsson skrifaði nýverið undir samning Evrópuráðsins fyrir hönd Íslands þar sem lögð er áhersla á að mansal sé brot á mannréttindum og árás á mannlega reisn. Innlent 13.10.2005 19:13
Vara við óheftri stóriðju Þingflokkur Vinstri-hreyfingarinnar - græns framboðs hefur sent frá sér ályktun þar sem varað er við því að halda áfram á braut óheftrar stóriðju á landinu. Mælst er til þess að öllum frekari stóriðjuskuldbindingum verði frestað fram yfir næstu kosningar. Vinstri - grænir segja stjórnvöld nú kynda undir hömlulausri útþenslu stóriðju og telja ruðningsáhrifin af þeirri þróun á aðra hluta atvinnulífsins verða alvarleg. Innlent 13.10.2005 19:13
Frítekjumark LÍN afnumið Frítekjumark verður afnumið á næsta skólaári, samkvæmt nýsamþykktum breytingum stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna á úthlutunarreglum. Í tilkynningu frá námsmannahreyfingunum segir að um 85 prósent námsmanna muni njóta góðs af þessari breytingu auk þess sem hún hefur í för með sér auðveldari endurkomu í nám fyrir fólk á vinnumarkaði þar sem tekjusvigrúm hefur aukist. Innlent 13.10.2005 19:13
Taka þátt í stjórnarskrárráðstefnu Fjórtán félagasamtök hafa skráð sig til formlegrar þátttöku í ráðstefnu stjórnarskrárnefndar um endurskoðun stjórnarskrárinnar 11. júní næstkomandi, en frestur til skráningar rann út á sunnudaginn. Innlent 13.10.2005 19:13
Hvetja Gunnar til afsagnar Frambjóðendur og stuðningsmenn Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi segja Gunnar Örlygsson hafa fyrirgert því trausti sem þeir báru til hans, með því að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Frambjóðendur og stuðningsmenn Frjálsynda flokksins hvetja Gunnar til til að sýna af sér þann drengskap að segja sig frá þingmennsku. Innlent 13.10.2005 19:13
Húsvíkingar vongóðir um álver Húsvíkingar eru bjartsýnir á að fá álver á svæðið eftir að hafa fundað með mönnum frá Alcoa. "Við höfum alltaf trúað því að það verði á endanum ákveðið að reisa álver hér á Húsavík, þar sem allar aðstæður hér eru fyrir hendi. Í þokkabót virðist vera að skapast um þetta sátt á Norðurlandi öllu,," segir Reinard Reynisson bæjarstjóri. Innlent 13.10.2005 19:13
Enn skotið að fólki í Úsbekistan Enn berast fregnir af byssugelti í borginni Andijan í Úsbekistan. Í gærkvöldi skutu hermenn enn að mótmælendum og eins að hópi fólks sem reyndi að flýja yfir til nágrannaríkisins Kirgistans. Erlent 13.10.2005 19:13
Gunnar býður sig fram á landsfundi Gunnar Svavarsson, forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði, hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar. "Ég hef ákveðið að taka þessari áskorun og miðla þeirri reynslu sem til staðar er og ég bý yfir, meðal annars vegna starfa minna innan jafnaðarmannahreyfingarinnar síðastliðna áratugi," segir Gunnar. Innlent 13.10.2005 19:13
Umbætur á Mannréttindadómstól Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði í ávarpi á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Varsjá í gær að brýn þörf væri á umbótum á störfum Mannréttindadómstóls Evrópu í ljósi gífurlegrar fjölgunar mála sem til hans berast. Hann sagði að Ísland væri fylgjandi því að komið yrði á fót vettvangi þar sem farið yrði yfir þessi mál.</font /> Innlent 13.10.2005 19:13
Eldri borgarar krefjast kjarabóta Landssamband eldri borgara vill að ríkisstjórnin geri nú þegar ráðstafanir til þess að bæta kjör eldri borgara og krefst þess að grunnlífeyrir verði alltaf undanþeginn sköttum. Þá er farið fram á að tekjutrygging, heimilisuppbót, tekjutryggingarauki og eingreiðslur verði felldar saman í einn greiðsluflokk. Innlent 13.10.2005 19:13
Alcoa vill álver fyrir norðan Alcoa á Íslandi, sem er að reisa Fjarðarál á Reyðarfirði, óskaði í gær eftir formlegum viðræðum við íslensk stjórnvöld um byggingu álvers á Norðulandi. Innlent 13.10.2005 19:13
Las þingmönnum pistilinn Breski þingmaðurinn George Galloway las bandarískum þingmönnum pistilinn í harðorðri gagnsókn í dag þegar hann var kallaður til vitnis vegna ásakana um að hafa makað krókinn á vafasömum olíuviðskiptum við Saddam Hussein. Erlent 13.10.2005 19:13
Lúðvík í varaformanninn Lúðvík Bergvinsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til embættis varaformanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins sem haldinn verður um næstu helgi. Ágúst Ólafur Ágústsson hafði áður lýst yfir framboði til varaformanns. Innlent 13.10.2005 19:13
7-10 þúsund atkvæði í húsi Á bilinu sjö til tíu þúsund atkvæði í formannskjöri Samfylkingarinnar eru komin í hús en tæplega tuttugu þúsund félagsmenn í Samfylkingunni eru á kjörskrá. Frestur til að skila inn atkvæðum rennur út á fimmtudag. Innlent 13.10.2005 19:13
Hlýddu kalli Castro Kúbverjar í tugþúsundatali hlýddu kalli síns aldna leiðtoga, Fidel Castro, og fjölmenntu fyrir utan bandaríska sendiráðið í Havana í morgun til að krefjast framsals kúbverska flóttamannsins Luis Posada. Posada er sakaður um hafa orðið sjötíu og þremur að bana árið 1976 þegar sprengja grandaði farþegaflugvél frá Venesúela. Erlent 13.10.2005 19:13
Berjast um varaformannsstólinn Lúðvík Bergvinsson þingmaður Samfylkingarinnar hefur ákveðið að bjóða sig fram til embættis varaformanns Samfylkingarinnar. Ljóst er því að kosið verður um varaformann á landsfundi Samfylkingarinnar á laugardag en auk Lúðvíks hefur Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar boðið sig fram til embættisins. Innlent 13.10.2005 19:13
Landbúnaðarstofnun á Suðurlandi? Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir að vilji sé til þess innan þingsins að ný Landbúnaðarstofnun verði staðsett utan höfuðborgarsvæðisins. Reykir í Ölfusi og Selfoss koma helst til greina. Innlent 13.10.2005 19:13
Ný lög um öryggismál Ný lög um öryggismál og heilbrigðisþjónustu verða efsta á baugi í stefnumálum verkamannaflokksins á nýju kjörtímabili. Elísabet Bretlandsdrottning mun síðar í dag kynna stefnumál flokksins við hátíðlega athöfn þegar þingið í Bretlandi verður sett. Erlent 13.10.2005 19:13
Skuggaleg skuldaauking borgarinnar "Það er skylda okkar í minnihlutanum að gera borgarbúum ljóst hversu alvarleg staða hefur skapast undir óstjórn R-listans," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, en hann fór hörðum orðum um sívaxandi skuldahala Reykjavíkurborgar. Innlent 13.10.2005 19:13
Ávarpaði leiðtogafund Evrópuráðs Davíð Oddsson utanríkisráðherra ávarpaði í dag leiðtogafund Evrópuráðsins sem stendur yfir í Varsjá í Póllandi. Í máli utanríkisráðherra kom fram að eining Evrópu væri háð lýðræði og virðingu fyrir mannréttindum og grunnvallarreglum réttarríkisins. Hér hefði Evrópuráðið einstöku hlutverki að gegna. Innlent 13.10.2005 19:13
Vill reisa álver á Norðurlandi Bandaríska álfyrirtækið Alcoa hefur lýst formlega áhuga sínum á að reisa álver á Norðurlandi. Fyrirtækið hefur sent íslenskum stjórnvöldum bréf þar sem lýst er áhuga á að vinna með íslenskum stjórnvöldum og sveitarfélögum á Norðurlandi að hugsanlegri byggingu álvers þar. Innlent 13.10.2005 19:13
Boða hertar innflytjendareglur Nafnskírteini, hertar reglur um innflytjendur og uppstokkun í heilbrigðiskerfinu eru meðal helstu stefnumála bresku ríkisstjórnarinnar næsta kjörtímabil. Elísabet Bretadrottning setti nýkjörið þing í morgun við hátíðlega athöfn og kynnti þá, eins og venja er, helstu stefnumál Verkamannaflokksins. Innlent 13.10.2005 19:13
Högnuðust á viðskiptum við Saddam? Bandarísk þingnefnd, sem rannsakar spillingamál í tengslum við olíusöluáætlun Sameinuðu þjóðanna, sakar rússneska stjórnmálamenn um að hafa hagnast um tugmilljónir dollara í olíuviðskiptum við Saddam Hussein. Erlent 13.10.2005 19:13
Lýsa yfir yfirburðasigri Stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn í Eþíópíu lýsti í morgun yfir yfirburðasigri í kjördæmi höfuðborgar landsins, Addis Ababa, í þingkosningunum í gær. Flokkurinn segist hafa fengið 20 af 23 sætum í kjördæminu. Erlent 13.10.2005 19:13
Útilokar allar friðarviðræður Nýr leiðtogi uppreisnarmanna í Tsjetsjeníu segir að þeir muni aldrei óska eftir friðarviðræðum við Rússa. Hann segir í yfirlýsingu sem birtist á tsjetsjenskri vefsíðu í dag að friðarumleitanir forvera síns, Aslan Maskhadov, hafi ekki skilað neinu og augljóst sé að rússnesk stjórnvöld hafi ekki hug á að slíðra sverðin. Erlent 13.10.2005 19:13
Enn skothríð í Úsbekistan Enn má heyra skothríð í bænum Andijan í Úsbekistan þar sem íbúar risu upp gegn yfirvöldum fyrir helgi. Svo virðist sem uppreisnin sé að breiðast út um landið því að yfirvöld hafa nú einnig lokað nálægum landamærabæ vegna mótmæla og óeirða. Erlent 13.10.2005 19:13
Þáðu mútur frá Saddam? Tveir fyrrverandi aðstoðarmenn Pútíns Rússlandsforseta og þjóðernisöfgamaðurinn Zhirinovsky eru sakaðir um að hafa þegið mútur frá Saddam Hussein. Í staðinn áttu þeir að tala máli Íraksstjórnar, bæði í Moskvu og á alþjóðavettvangi. Erlent 13.10.2005 19:13
Alcan hefur ekki fengið leyfi Hafnarfjarðarbær hefur ekki enn veitt Alcan framkvæmdaleyfi vegna stækkunar álversins í Straumsvík. Talsmaður iðnaðarráðuneytsins sagði í fréttum um helgina að búið væri að láta gera mat á umhverfisáhrifum fyrir stækkun álversins, stjórnendur þess ættu einungis ætti eftir að taka endanlega ákvörðun og bjóða verkið út. Innlent 13.10.2005 19:13
Strandavegur mjög illa farinn Vegurinn frá Hólmavík á Ströndum að Brú í Hrútafirði er illa á sig kominn. Auknir stórflutningar um veginn hafa leikið hann illa og nú horfa Strandamenn til vegar um Arnkötludal sem myndi stytta leiðina á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um 40 kílómetra. Innlent 13.10.2005 15:33
Eru mjög óánægð með Gunnar Ung frjálslynd lýsa í ályktun sem þau hafa sent frá sér mikilli óánægju með framgöngu Gunnars Örlygssonar í síðustu viku þegar hann sagði sig úr Frjálslynda flokknum og gekk í raðir Sjálfstæðisflokksins. Innlent 13.10.2005 15:33