Ástin á götunni
327 328 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Hargreaves hafnar Boro Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves sem leikið hefur með Bayern Munchen síðustu ár, hefur hafnað samningstilboði frá enska úrvaldsdeildarliðinu Middlesbrough og segist ætla að berjast fyrir sæti sínu í byrjunarliði Bayern. Sport 13.10.2005 19:32
Íslendingar í Svíþjóð Íslendingar voru á skotskónum í fótboltanum í Svíþjóð um helgina. Ásthildur Helgadóttir skoraði síðara mark Malmö í 2-0 sigri á Sunnanå. Erla Steina Arnardóttir jafnaði fyrir lið sitt Mallbacken í 3-3 gegn Hammarby og þá skoraði Gunnar Heiðar Þorvaldsson eina mark Halmstad sem tapaði 2-1 fyrir Malmö. Sport 13.10.2005 19:32
Essien kostar 32 milljónir Forráðamenn franska knattspyrnuliðsins Lyon hafa gefið út að Chelsea verði að punga út sömu upphæð og það var tilbúið að eyða í Steven Gerrard ef það ætlar sér að kaupa Mickael Essien. Sport 13.10.2005 19:32
Beckham vill að Owen verði kyrr David Beckham hefur biðlað til félaga síns Michael Owen að vera um kyrrt hjá spænska liðinu Real Madrid í stað þess að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina, eins og þrálátur orðrómur hefur gefið til kynna á síðustu vikum Sport 13.10.2005 19:32
Mourinho hrósar Phillips Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea segir að félagið hafi krækt í einn besta leikmann Englands þegar það keypti Shaun Wright-Phillips frá Manchester City. Sport 13.10.2005 19:32
Íslendingar á leið til Hearts Haraldur Björnsson 16 ára markvörður úr Val og Eggert Gunnþór Jónsson 15 ára Eskfirðingur hafa komist að samkomulagi við Hearts í Skotlandi um að leika með þeim næstu þrjú árin. Sport 13.10.2005 19:32
Real vann í fyrsta leiknum Real Madríd vann mexíkóska liðið Chivas Guadalajara, 3-1, í fyrsta æfingaleik liðsins af sex í keppnisferð um Asíu og Bandaríkin. Francesco Palencia kom Chivas yfir á 73. mínútu en Madrídarmenn jöfnuðu metin þegar Alvaro Meija skallaði inn aukaspyrnu frá David Beckham. Sport 13.10.2005 19:31
Benayoun til West Ham Ísraelski landsliðsmaðurinn Yossi Benayoun gekk í gær til liðs við West Ham United. Lundúnaliðið borgar spænska liðinu Racing Santander 2,5 milljónir punda fyrir Benayoun. Sport 13.10.2005 19:31
Henry næsti fyrirliði Arsenal Thierry Henry verður næsti fyrirliði Arsenal. Arsenal vann 3. deildarliðið Barnet, 4-1, í æfingaleik í gær. Hvít-Rússinn Alexander Hleb skoraði fyrsta markið en síðan skoruðu þeir Henry, Dennis Bergkamp og Justin Hoyte áður en Barnett minkaði muninn. Sport 13.10.2005 19:31
Eiður Smári á bekknum gegn Benfica Eiður Smári Guðjohnsen byrjar á varamannabekknum hjá Chelsea í kvöld en liðið spilar þá sinn annan leik á undirbúningstímabilinu gegn portúgalska liðinu Benfica. Chelsea og Benfica spila um Samsung-bikarinn og það verður vítaspyrnukeppni sem ræður úrslitum standi leikar jafnir eftir venjulegan leiktíma. Sport 13.10.2005 19:32
Wright-Phillips til Chelsea Það er nánast frágegnið að sóknar-miðjumaður Manchester City, Shaun Wright-Phillips gangi til liðs við Englandsmeistara Chelsea. Félögin hafa samið um kaupverð sem talið er nema 21 milljón punda og nú á leikmaðurinn eingöngu eftir að semja um kaup og kjör. Wright-Phillips er 23 ára gamall og hefur leikið allan sinn atvinnumannaferil með Man.City. Sport 13.10.2005 19:32
Úrslitin í leik Benfica -Chelsea Leikur Benfica og Chelsea sem nú er sýndur á sjónvarpstöðinni Sýn er lokið. Veldu meira til að sjá úrslit leiksins. Sport 13.10.2005 19:32
Mbesuma vill spila fyrir United Zambíu maðurinn Collins Mbesuma sem skrifaði undir samning hjá enska úrvaldseildarliðinu Portsmouth er kanski ekki sá vinsælasti á meðal stuðningsmanna félagsins. Á blaðamannafundi í gær þar sem Mbesuma var kynntur fyrir stuðningsmönnuum, áformaði hann framtíðar áætlanir sínar. Sport 17.10.2005 23:42
Gengið frá kaupunum á Foster Manchester United gengur á næstu dögum frá kaupunum á markverðinum Ben Foster frá Stoke. Eins og greint hefur verið frá þá fær Stoke eina milljón punda við undirskrift en alls gæti Stoke fengið 2,5 milljónir punda nái Foster að spila úrvalsdeildarleik, meistaradeildarleik og landsleik sem leikmaður United. Sport 13.10.2005 19:32
Shearer skoraði í sigri Newcastle Newcastle sigraði slóvaska liðið ZTS Dubnica 3-1 á útivelli í fyrri leik liðanna í Intertoto keppninni í knattspyrnu, Mörk Newcastle gerðu Michael Chopra, James Milner og gamla kempan Alan Shearer. Seinni leikur liðanna fer fram á St.James´Park í Newcastle á laugardaginn kemur. Sport 13.10.2005 19:32
Samið um verð á Wright-Phillips Manchester City og Chelsea hafa komist að samkomulagi um verð á Shaun Wright-Phillips, framherja City. Sky-fréttastofan greindi frá þessu fyrir stundu. Upphæðin hefur þó ekki verið gefin upp. Sport 13.10.2005 19:31
FH hefur ekki slegið út ÍA í 25 ár FH hefur ekki náð að slá út ÍA í bikarkeppninni í 25 ár eða síðan að liðið vann 3-1 sigur í leik liðanna í 16 liða úrslitum keppninnar 1980. Skagamenn hafa unnið þrjár síðsutu bikarviðureignir liðanna og í tvö síðustu skiptin hafa þeir unnið bikarmeistaratitilinn eftir að hafa slegið út FH. Liðin mætast í Kaplakrika klukkan 16.00 í dag. Sport 13.10.2005 19:31
Framlengt í Kaplakrika Leikur FH og ÍA í Kaplakrika fer í framlengingu eftir að staðan að loknum venjulegum leiktíma var jöfn 1-1. Leikurinn hefur verið hin besta skemmtun og nú er ljóst að úrslit leiksins ráðast ekki fyrr en í framlengingu. Sport 13.10.2005 19:31
Jónas Grani skorar fjórða mark FH Jónas Grani Garðarsson er búinn að skora þriðja mark FH í framlengingunni og koma liðinu í 4-1 með skalla á 110. mínútu leiksins. Jónas Grani kom inn á sem varamaður og var réttur maður á réttum stað á fjærstöng eftir hornspyrnu Davíðs Þórs Viðarssonar. Sport 13.10.2005 19:31
Bjarki ver víti frá Tryggva Bjarki Guðmundsson varði glæsilega vítaspyrnu frá Tryggva Guðmundssyni á lokamínútu fyrri hálfleiks. Vítið fengu FH-ingar þegar Kári Steinn Reynisson handlék knöttinn í vítateignum. Bjarki varði vítið glæsilega út við stöng en hann hefur varið nokkrum sinnum mjög vel í leiknum. Sport 13.10.2005 19:31
Tryggvi Guðmundsson í dauðafæri Bjarki Guðmundsson, markvörður ÍA varði rétt í þessu stórkostlega frá Tryggva Guðmundssyni hjá FH, sem komst í sannkallað dauðafæri eftir að varnarmaður Skagamanna hrasaði og missti boltann frá sér á hálum vellinum. Bjarki hefur að öðrum ólöstuðum verið maður þessa leiks. Sport 13.10.2005 19:31
Tobias Rau til Bielefeld Tobias Rau, landsliðsmaður Þýskalands í knattspyrnu er genginn til liðs við Armenia Bielefeld frá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen. Rau er 23 ára gamall varnarmaður. Sport 13.10.2005 19:31
Tryggvi jafnar leikinn Tryggvi Guðmundsson hefur jafnað leikinn fyrir FH gegn Skagamönnum í 1-1 eftir góða sókn FH upp hægri kantinn þar sem Davíð Þór Viðarsson sendi boltann fyrir markið og Tryggvi átti ekki í vandræðum með að skora. Markið kemur á 73. mínútu og nokkuð gegn gangi leiksins í síðari hálfleik. Sport 13.10.2005 19:31
Bjarki ver í þrígang meistaralega FH-ingar eru að taka við sér og Bjarki Guðmundsson varði í þrígang meistaralega frá þeim Davíð Þór Viðarssyni, Guðmundi Sævarssyni og Tryggva Guðmundssyni úr aukaspyrnu. Skagamenn urðu nú rétt áðan fyrsta íslenska liðið til að komast yfir gegn FH í sumar. Staðan er enn 0-1 fyrir ÍA eftir 16 mínútur. Sport 13.10.2005 19:31
Ólafur Þórðarson rekinn af velli Ólafi Þórðarsyni, þjálfara Skagamanna hefur verið vísað af velli fyrir kröftug mótmæli sín á hliðarlínunni í Kaplakrika, en nú þegar um tíu mínútur eru eftir af leiknum er mikið fjör á vellinum og bæði lið hafa fengið góð færi. Það eru þó sem fyrr gestirnir sem eru mun líklegri til afreka og hafa fengið aragrúa af færum sem þeir hafa þó enn ekki náð að nýta. Sport 13.10.2005 19:31
Jón Þorgrímur kemur FH yfir Varamaðurinn Jón Þorgrímur Stefánsson er búinn að koma FH yfir í 2-1 eftir 5 mínútna leik í framlengingu. Markið skoraði Jón Þorgrímur með skalla í slánna og inn rétt utan markteigs eftir fyrirgjöf Tryggva Guðmundssona með hægri af hægri kantinum. Sport 13.10.2005 19:31
S.W.P. vill ræða við Chelsea Shaun Wright Phillips leikmaður, Manchester City hefur beðið um leyfi frá félaginu til að ræða við forráðamenn Chelsea um hugsanleg félagaskipti. Í gær hafnaði Manchester City tilboði Chelsea í Wright Phillips sem hljóðaði upp á 20 milljónir punda Sport 13.10.2005 19:31
Allan að gulltryggja sigurinn Allan Borgvardt er nánast búinn að gulltryggja sigur FH og sæti í undanúrslitum VISA-bikars karla eftir að hann kom FH í 3-1 á 108. mínútu með skalla úr markteig eftir frábæran undirbúning Guðmundar Sævarssonar. Sport 13.10.2005 19:31
Tvöföld skipting hjá FH og ÍA FHingar hafa gert tvær breytingar á liði sínu. Inná eru komnir Jónas Grani Garðarsson og Jón Þorgrímur Stefánsson og greinlegt að Ólafur Jóhannesson þjálfari ætlar sér að blása til sóknar til að freista þess að jafna leikinn, en það hafa verið Skagamenn sem hafa átt hvert dauðafærið á fætur öðru á síðustu mínútum. Sport 13.10.2005 19:31
Kominn hálfleikur í framlenginu FH-ingar hafa ágæt tök á leiknum gegn Skagamönnum eftir að Jón Þorgrímur Stefánsson kom þeim í 2-1 eftir aðeins 5 mínútna leik í framlenginunni. Það stefnir því í það að FH-ingar hafi sloppið með skrekkinn á heimavelli sínum í dag og séu komnir inn í undanúrslit VISA-bikars karla í knattspyrnu en gestirnir ofan af Skaga hafa 15 mínútur til að breyta því. Sport 13.10.2005 19:31