Körfubolti
164 165 166 167 168 169 170 171 172 … 216 ›
Jordan skilinn við eiginkonu sína Michael Jordan, besti körfuboltamaður sem uppi hefur verið, er skilin við eiginkonu sína til 17 ára, Juanitu. Í sameiginlegri tilkynningu frá lögmönnum þeirra segir að skilnaðurinn fari fram í mestu vinsemd. Körfubolti 31.12.2006 11:43
58 stig Kobe dugðu ekki til Kobe Bryant átti stórleik og skoraði alls 58 stig fyrir LA Lakers í leik liðsins gegn Charlotte í NBA-deildinni í nótt. Frammistaðan var hins vegar ekki nóg til að skila Lakers sigri því að Charlotte sigraði eftir þrjár framlengingar, 133-124. Körfubolti 30.12.2006 11:00
Fratello rekinn frá Memphis Mike Fratello var á fimmtudag rekinn úr starfi sínu sem þjálfari Memphis Grizzlies í NBA-deildinni í körfubolta. Það var gamla kempan Jerry West, núverandi forseti Memphis, sem lét Fratello fjúka. Körfubolti 30.12.2006 00:04
Dallas vann stórleik næturinnar Dallas hafði betur gegn Pheonix í uppgjöri tveggja heitustu liða NBA-deildarinnar í nótt, 101-99, í æsispennandi og skemmtilegum leik. Dirk Nowitzki skoraði sigurkörfuna rúmri sekúndu fyrir leikslok en Dallas hefur nú unnið átta leiki í röð. Körfubolti 29.12.2006 17:34
Ming hefur fengið flest atkvæði Yao Ming hjá Houston og LeBron James hjá Cleveland hafa fengið langflest atkvæði fyrir hinn árlega stjörnuleik NBA-deildarinnar í körfubolta sem fram fer í febrúar. Það eru áhorfendur og áhugamenn um NBA út um alla veröld sem sjá um að velja byrjunarliðin í leiknum með því að senda sitt atkvæði með einföldu sms-skilaboði. Körfubolti 28.12.2006 23:39
Wade ómeiddur en Riley æfur Dwayne Wade, stjörnuleikmaður Miami í NBA-deildinni í körfubolta, er ekki alvarlega meiddur á hendi eftir að hafa lent í samstuði við Kirk Hinrich hjá Chicago í viðureign liðanna í fyrradag. Þetta leiddu niðurstöður röngtenmyndatöku í ljós. Pat Reily, þjálfari Miami, er þó allt annað en sáttur við framkomu Hinrich. Körfubolti 28.12.2006 23:35
New York sigraði í maraþon leik New York sigraði Detroit í þríframlengdum maraþon leik í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Lokatölur urðu 151-145 og dugðu 51 stig frá Richard Hamilton ekki til fyrir Detroit. Hjá New York skoraði Stephan Marbury 41 stig. Körfubolti 28.12.2006 15:27
Fyrsti sigur Iverson hjá Denver Allen Iverson fagnaði sigri í í treyju Denver í fyrsta sinn í nótt þegar liðið bar sigurorð af Boston, 116-105, í NBA-deildinni. Iverson skoraði 28 stig og gaf 13 stoðsendingar. Dallas sigraði Charlotte auðveldlega, 97-84, og hefur nú unnið sjö leiki í röð. Körfubolti 27.12.2006 10:01
Wade skyggði algjörlega á Kobe Einvígi Dwayne Wade og Kobe Bryant í viðureign Miami og LA Lakers í NBA-deildinni í nótt náði aldrei þeim hæðum sem vonast var eftir. Það er skemmst frá því að segja að Bryant kolféll á prófinu á meðan Wade blómstraði í sannfærandi 101-85 sigri Miami. Körfubolti 26.12.2006 15:01
Kristic með slitin krossbönd Lið New Jersey Nets í NBA-deildinni hefur orðið fyrir miklu áfalli því einn þeirra besti leikmaður, Nenad Kristic, er með slitin krossbönd og mun ekki spila meira með á þessu tímabili. Hinn 23 ára gamli Serbi hefur skorað rúm 16 stig og tekið sjö fráköst á tímabilinu. Körfubolti 25.12.2006 13:56
Mikið áfall fyrir Seattle Rashard Lewis, framherji og lykilmaður Seattle í NBA-deildinni í körfubolta, verður frá í að minnsta kosti tvo mánuði eftir að hafa gengist undir aðgerð á hendi á föstudag. Körfubolti 23.12.2006 12:27
Tap hjá Iverson í fyrsta leik 22 stig og tíu stoðsendingar frá Allen Iverson dugðu ekki fyrir Denver í nótt þegar liðið beið í lægri hlut fyrir Sacramento í NBA-deildinni, 101-96. Þetta var fyrsti leikur Iverson fyrir sitt nýja lið. 15 leikja sigurhrinu Pheonix lauk ennfremur í nótt. Körfubolti 23.12.2006 12:06
Logi skoraði 26 stig í sigri ToPo Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson var enn á ný stigahæstur hjá liði sínu ToPo í Helsinki þegar liðið lagði KTP 77-75 í finnsku úrvalsdeildinni í körfubolta í gærkvöld. ToPo er í fjórða sæti deildarinnar. Körfubolti 21.12.2006 15:04
Félagsmet hjá Phoenix Phoenix Suns vann í nótt 15. leikinn í röð í NBA deildinni þegar liðið vann auðveldan sigur á Toronto Raptors á heimavelli sínum 115-98. Chicago Bulls tók á móti LA Lakers og vann 94-89. Körfubolti 20.12.2006 13:01
Chicago - LA Lakers í beinni í nótt Leikur Chicago Bulls og LA Lakers verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan 1:30 í nótt. Þetta verður væntanlega hörkuleikur milli þessara gömlu stórliða, en bæði lið hafa verið á ágætu róli undanfarið. Körfubolti 19.12.2006 21:29
Allen Iverson fer til Denver Skorarinn Allen Iverson sem leikið hefur með Philadelphia 76ers síðasta áratug er á leið til Denver Nuggets í skiptum fyrir Andre Miller, Joe Smith og valrétti Denver liðsins í nýliðavalinu á næsta ári. Skiptin hafa ekki verið staðfest formlega en líklega verður gengið frá lausum endum síðar í kvöld. Körfubolti 19.12.2006 20:56
New York lagði Utah á flautukörfu Fámennt lið New York gerði sér lítið fyrir og lagði Utah Jazz í framlengdum leik á NBA TV í nótt þar sem Stephon Marbury tryggði New York 97-96 sigur með sniðskoti um leið og leiktíminn leið. Utah hafði feikna yfirburði í upphafi leiks og stefndi í stórtap New York, en gestirnir spiluðu sinn versta leik á tímabilinu eftir það og heimamenn gengu á lagið og höfðu sigur. Körfubolti 19.12.2006 13:27
New York - Utah í beinni á NBA TV í kvöld Lið New York Knicks mætir undirmannað til leiks klukkan hálf eitt í nótt þegar það tekur á móti Utah Jazz í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu. Þeir Mardy Collins, Nate Robinson og Jared Jeffries hjá New York verða allir í leikbanni í kvöld. Körfubolti 18.12.2006 19:53
Anthony fær 15 leikja bann Framherjinn Carmelo Anthony hjá Denver Nuggets í NBA deildinni var í dag settur í 15 leikja keppnisbann fyrir að vera í aðalhlutverki í slagsmálunum sem brutust út á leik New York Knicks og Denver á laugardagskvöldið. Alls þurfa leikmennirnir sem tóku þátt í látunum að sitja af sér 47 leikja bann. Körfubolti 18.12.2006 18:02
Gilbert Arenas skoraði 60 stig gegn Lakers Gilbert Arenas fór hamförum með liði Washington Wizards í nótt þegar liðið sigraði LA Lakers 147-141 í framlengdum leik í Staples Center í Los Angeles. Arenas skoraði 60 stig fyrir Washington og var lykilmaðurinn á bak við góðan sigur liðsins í frábærum leik sem sýndur var beint á NBA TV á Fjölvarpinu. Körfubolti 18.12.2006 13:21
Phoenix jafnaði félagsmet Phoenix Suns vann í nótt 14. leikinn í röð í NBA deildinni í körfubolta þegar liðið skellti Sacramento 105-98 á útivelli. Á sama tíma tapaði Philadelphia 11. leiknum í röð í tapi gegn San Antonio 103-98, en eins og áður kom fram hér á vísi logaði leikur New York og Denver í slagsmálum áður en gestirnir sigruðu 123-100. Körfubolti 17.12.2006 14:54
Madison Square Garden logaði í slagsmálum Leikur New York Knicks og Denver Nuggets í NBA deildinni í nótt breyttist úr körfuboltaleik í hnefaleikakeppni á lokamínútunum. Tíu leikmönnum var vísað úr húsi og á stigahæsti leikmaður deildarinnar Carmelo Anthony líklega yfir höfði sér langt keppnisbann fyrir lúalegt hnefahögg. Körfubolti 17.12.2006 04:09
Miami - Memphis í beinni í kvöld Meistarar Miami Heat taka á móti Memphis Grizzlies í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni í kvöld klukkan hálf eitt. Bæði lið hafa átt mjög erfitt uppdráttar það sem af er vetri, en Dwyane Wade hjá Miami og Pau Gasol hjá Memphis snúa aftur eftir meiðsli í kvöld og því má eiga von á skemmtilegum leik. Körfubolti 16.12.2006 20:19
13 sigrar í röð hjá Phoenix Phoenix Suns hélt áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í NBA deildinni í nótt þegar liðið lagði Golden State á heimavelli 105-101 og vann þar sinn 13. leik í röð. Amare Stoudemire skroaði 25 stig fyrir Phoenix og Boris Diaw náði fyrstu þrennu sinni í vetur með 21 stigi, 14 fráköstum og 10 stoðsendingum. Monta Ellis skoraði 24 stig fyrir Golden State. Körfubolti 16.12.2006 13:58
Kínverjar Asíumeistarar í körfubolta Kínverjar tryggðu sér í dag Asíumeistaratitilinn í körfubolta þegar lið þeirra lagði Katar 59-44 í úrslitaleik Asíuleikanna. Wang Zhizhi skoraði 28 stig fyrir kínverska liðið og varpaði skugga á ungstirnið Yi Jianlian sem skoraði 8 stig og hirti 15 fráköst, en sá gefur væntanlega kost á sér í nýliðaval NBA næsta sumar. Körfubolti 15.12.2006 19:14
Denver að landa Iverson? Þær fréttir berast nú frá Bandaríkjunum að Denver sé í þann mund að ná í gegn með leikmannaskipti sem myndu færa þeim leikstjórnandann Allen Iverson frá Philadelphia. Fimm lið eru sögð koma að skiptunum og því er haldið fram að málið verði jafnvel klárað í kvöld. Iverson er sem stendur búinn að fá flest atkvæði allra leikmanna í Austudeildinni í Stjörnuleikinn í febrúar nk. Körfubolti 15.12.2006 17:17
Cleveland - Seattle í beinni á Sýn í kvöld Leikur Cleveland Cavaliers og Seattle Supersonics verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan hálf eitt eftir miðnætti í kvöld. Cleveland hefur unnið fjóra heimaleiki í röð og tíu af tólf alls, sem er besti árangur í Austurdeildinni. Mikil meiðsli eru í herbúðum Seattle sem hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum á keppnisferðalagi á austurströndinni. Körfubolti 15.12.2006 16:45
Davis tryggði Golden State sigur á Houston Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Golden State lagði Houston 109-107 þar sem þriggja stiga karfa Baron Davis þegar 1,2 sekúndur voru eftir tryggði Golden State sigurinn. Davis skoraði 34 stig í leiknum en Yao Ming átti líka frábæran leik hjá Houston með 38 stigum og 18 fráköstum. Körfubolti 15.12.2006 13:57
New Orleans - San Antonio í beinni í kvöld Það verður skemmtilegur leikur í beinni útsendingu á NBA TV á Fjölvarpinu þegar New Orleans tekur á móti San Antonio Spurs klukkan 2:30 í nótt. Þá er rétt að minna um leið á leik Cleveland Cavaliers og Seattle Supersonics sem sýndur verður beint á Sýn annað kvöld klukkan 1:30 eftir miðnætti. Körfubolti 14.12.2006 20:28
Tólf sigrar í röð hjá Phoenix Phoenix Suns vann í nótt 12. sigurinn í röð í NBA deildinni þegar liðið vann sigur á meisturum Miami Heat á útivelli 99-89. Þetta er næst lengsta sigurhrina Phoenix í sögu félagsins og lauk það fimm leikja ferðalagi sínu um austurströndina með glæsibrag. Shaquille O´Neal og Dwyane Wade léku ekki með Miami í nótt. Körfubolti 14.12.2006 06:04