Innlent
85 86 87 88 89 90 91 92 93 … 334 ›
Hagnaður Glitnis 7 milljarðar króna Hagnaður Glitnis banka nam sjö milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er 2,1 milljarði króna minna en á sama tíma fyrir ári. Þetta er í takt við spár greiningardeilda viðskiptabankanna sem gerðu ráð fyrir allt frá 6,8 til 7,7 milljarða króna hagnaði á tímabilinu. Viðskipti innlent 30.4.2007 10:51
Mjög dregur úr vöruskiptahallanum Vöruskipti við útlönd voru óhagstæð um 9,1 milljarð króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er umtalsverð breyting frá sama tíma í fyrra en þá nam hallinn á vöruskiptum 36,2 milljörðum króna. Af þessum þremur mánuðum nam halli á vöruskiptum í mars 4,5 milljörðum króna. Til samanburðar voru vöruskiptin óhagstæð um 18,2 milljarða krónur fyrir ári, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Viðskipti innlent 30.4.2007 08:59
Skilgreining á kostnaðarverði lóða mismunandi Einbýlishúsalóð í Hafnarfirði kostar innan við sjö milljónir króna, en ellefu milljónir í Reykjavík. Ellefu milljónir er kostnaðarverð, segir formaður skipulagsráðs - það fer eftir skilgreiningu á kostnaðarverði, segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði. Innlent 29.4.2007 20:10
Ríkisborgararéttur tengdadóttur ráðherra er skandall Tengdadóttir umhverfisráðherra fékk ríkisborgararétt á undanþágu vegna þess að hún tengist framsóknarráðherrafjölskyldu og það er léttur skandall. Þetta er skoðun Össurar Skarphéðinssonar, þingflokksformanns Samfylkingarinnar, sem vill að málið verði skoðað. Innlent 29.4.2007 20:04
Hitamet slegin á Norðurlandi Hitamet var slegið í Ásbyrgi í dag þegar hitinn mældist tuttugu og tvær komma sex gráður. Aldrei áður hefur hiti mælst svo hár í þessum mánuði. Aprílmetið var tuttugu og ein komma átta gráður sem mældust á Sauðanesi í apríl 2003. Og það var heldur enginn kalsi á Akureyri en þar var rösklega þrítugt hitamet slegið þegar hitinn komst í tuttugu og eina komma fimm gráður. Innlent 29.4.2007 19:58
Samningur um dvöl vesturíslendinga hérlendis Þjóðræknisfélag Íslendinga og Landsbankinn hafa gert með sér samning sem næstu fimm árin gerir vesturíslenskum ungmennum kleift að koma hingað til dvalar. Undirritun samningsins fór fram í Winnipeg í Manitoba. Innlent 29.4.2007 19:50
Biðlistum í heilbrigðisþjónustu verði útrýmt Biðlistar eftir heilbrigðisþjónustu barna og aldraðra eru svartur blettur á velferðarkerfi Íslendinga. Þeir eru birtingarmynd vanrækslu og skorts á samfélagslegri ábyrgð. Þetta sagði formaður þingflokks Samfylkingarinnar á blaðamannafundi í dag þar sem stefnumál flokksins í heilbrigðismálum voru kynnt. Innlent 29.4.2007 19:29
Varað við lyfi gegn magakveisu ungbarna Lyfið Minifom, sem fjölmörgum hvítvoðungum er gefið við magakveisu, inniheldur rotvarnarefni sem geta haft hormónatruflandi áhrif. Norska lyfjastofnunin hefur því varað við notkun þess. Málið er til athugunar hjá Lyfjastofnun Íslands. Innlent 29.4.2007 19:18
Foreldrar bannaðir í unglingahóp Foreldrar eru stranglega bannaðir í nýjum unglingahóp sem hefur verið stofnaður innan Einstakra barna. Félagsskapurinn hélt upp á tíu ára afmæli sitt í dag með mikilli hátíð í Gerplusalnum í Salahverfi Kópavogs. Á hátíðinni í dag voru hoppukastalar andlitsmálun, happdrætti og ýmislegt góðgæti í tilefni dagsins. Innlent 29.4.2007 18:59
Skíðasvæði á Akureyri og Siglufirði opin Hlíðarfjall á Akureyri er opið í dag til klukkan þrjú. Þar er sannkallað sumarveður og skíðafæri eftir því, blautt og þungt. Sérstaklega neðarlega í fjallinu. Fólki er bent á að taka með sér sólaráburð því sólin er sérstaklega sterk í snjónum. Forráðamenn fjallsins gera ráð fyrir því að þetta sé síðasta opnunarhelgi vetrarins. Innlent 29.4.2007 09:59
Þjónusta við ópíumfíkla aukin Þjónusta vegna ópíumfíkla verður aukin í nýjum þjónustusamning heilbrigðis- og fjármálaráðuneytis við SÁÁ. Um er að ræða framlengingu á þjónustusamning við sjúkrasvið samtakanna til ársloka 2007. Fyrri samningur rann út í árslok 2005 en SÁÁ annaðist þjónustu í samræmi við hann til dagsins í dag og hefur fengið greitt samkvæmt ákvæðum samningsins. Innlent 29.4.2007 09:39
Samvinna og verkaskipting á flugslysaæfingu góð Flugslysaæfingin sem haldin var í dag á Sauðárkróki gekk í heildina mjög vel og samhæfing allra viðbragðsaðila á Sauðárkrókssvæðinu góð. Samvinna og verkaskipting var einstaklega góð segir í tilkynningu frá Flugstoðum. Sett var á svið flugslys þar sem 30 farþegar og tveir flugmenn slösuðust mismikið. Innlent 28.4.2007 19:33
Ólík sjónarmið um framtíð innanlandsflugvallar Formaður flugvallarnefndar vonast til að skýrsla um framtíð Reykjavíkurflugvallar verði kynnt í næstu viku. Ólík sjónarmið komu fram hjá forystumönnum stjórnmálaflokkanna í flugvallarmálinu á kosningafundi Stöðvar tvö í Reykjavíkurkjördæmi suður. Innlent 28.4.2007 19:02
Eik sjái um uppbyggingu miðbæjarhúsanna Fasteignafélagið Eik hefur óskað eftir að taka yfir samningaviðræður borgaryfirvalda við eigendur lóðarinnar að Austurstræti 22. Samkvæmt heimildum fréttastofu kemur það vel til greina af hálfu borgarinnar að eftirláta Eik samningana og framtíðaruppbyggingu, en borgaryfirvöld myndu skipuleggja reitinn í samvinnu við Fasteignafélagið. Innlent 28.4.2007 18:52
Efndir um lóðir eða kokgleyping kosningaloforða? Sjálfstæðismenn eru að kokgleypa kosningaloforð sitt um ódýrar lóðir fyrir alla, með því að bjóða einbýlishúsalóðir á ellefu milljónir króna, segir oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn. Aldeilis ekki, segir formaður skipulagsnefndar, þetta er kostnaðarverð og framboðið verður nægt til að svara eftirspurn: 1500 íbúðir á ári hið minnsta. Innlent 28.4.2007 18:32
List án landamæra speglaðist í tjörninni Þátttakendur í gjörningi á vegum listahátíðarinnar List án landamæra tóku höndum saman í dag og mynduðu hring umhverfis tjörnina í Reykjavík. Síðan gekk fólkið saman einn hring í kringum tjörnina og speglaði sig í henni í leiðinni. Hátíðin stuðlar að því að auka þátttöku fólks með fötlun eða þroskaskerðingu sem ekki er nógu áberandi í „almennu“ menningarumhverfi. Innlent 28.4.2007 16:00
Framboðslistum hafnað af yfirkjörstjórnum Framboðslistum Baráttusamtaka eldri borgara og öryrkja í Reykjavíkurkjördæmi suður og Suðurkjördæmi hefur verið hafnað. Listarnir bárust of seint fyrir komandi alþingiskosningar og var þess vegna hafnað af yfirkjörstjórnum. Baráttusamtökin skiluðu lista sínum í Reykjavíkurkjördæmi norður einnig of seint. Yfirkjörstjórn þar er enn að funda um málið. Innlent 28.4.2007 15:08
Flugslysaæfing á Sauðárkróki Rétt uppúr klukkan 13 hófst flugslysaæfing á Sauðárkróksflugvelli. Æfingin fer fram á vettvangi á Sauðárkróki og er líkt eftir flutningi slasaðra með loftbrú á sjúkrahús. Líkt er eftir slysi tuttugu og átta farþega og tveggja áhafnarmeðlima. Samhæfingarstöð Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð tekur einnig þátt í æfingunni. Innlent 28.4.2007 14:57
Vinstri grænir krefjast rannsóknar á Kárahnjúkum Þingflokkur vinstri grænna hefur sent frá sér tilkynningu þar sem segir að flokkurinn krefjist opinberrar rannsóknar á aðbúnaði verkamanna við Kárahnjúka. Fjöldi verkamanna á svæðinu hefur veikst vegna mengunar og matareitrunar. Rannsóknin skuli beinast að alvarlegum ásökunum í fréttum undanfarna daga um: „vítaverða vanrækslu af hálfu Impregilo á vinnusvæðinu við Kárahnjúkavirkjun.“ Innlent 28.4.2007 13:43
Novator að yfirgefa símamarkaðinn Erlendir fjölmiðlar herma að Novator, fjárfestingafélag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hafi selt 10,8 prósenta hlut sinn, um helmingseign sína, í gríska símafélaginu Forthnet til þarlendra stofnanafjárfesta og annarra aðila. Novator er sagt vera að hverfa af símamarkaði í A-Evrópu. Viðskipti innlent 28.4.2007 12:45
Landsbankinn með viðskiptaskrifstofu í Winnipeg Landsbankinn opnaði í gær viðskiptaskrifstofu í Winnipeg í Manitoba. Að mati stjórnenda bankans býður borgin upp á ýmis tækifæri en tengslin við frændsystkin okkar í Vesturheimi höfðu einnig sitt að segja við staðarákvörðunina. Innlent 28.4.2007 12:27
Leggja ekki meira fé í Bakkavík Bæjaryfirvöld í Bolungarvík munu ekki leggja meira hlutafé inn í fiskvinnslufyrirtækið Bakkavík, sem hefur sagt upp 48 starfsmönnum. Bolungarvíkurkaupstaður á talsverðan hlut í fyrirtækinu, en að sögn bæjarstjórans liggur lausnin ekki í auknu hlutafé, verðmætin í sjávarútvegi liggi í kvótanum og hann eigi fyrirtækið ekki. Innlent 28.4.2007 12:43
Geðfatlaðir fá húsnæði um allt land Hátt í 70 geðfatlaðir fá viðvarandi húsnæði um allt land á þessu ári og er áætlað að rúmlega helmingur þeirra fái það afhent í sumar. Þetta er liður átaks í þjónustu við geðfatlað fólk sem félagsmálaráðuneytið kynnti í lok síðasta árs. Innlent 28.4.2007 12:38
Skíðasvæði á Akureyri og Siglufirði opin Skíðasvæði á Akureyri og Siglufirði eru opin í dag. Færi á báðum stöðum ber merki vorsins. Það er blautt og þungt en veður gott. Í Hlíðarfjalli er sól og blíða og í tilkynningu segir að þótt færi sé þungt, sé hægt að njóta veðurblíðunnar og fuglasöngsins í fjallinu. Innlent 28.4.2007 12:04
Vorhreinsun Reykjavíkurborgar hófst í morgun Árleg vorhreinsun Reykjavíkurborgar hófst í morgun og stendur til 5. maí. Hverfstöðvar munu sjá um að fjarlægja garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðarmörk. Garðeigendur eru beðnir um að nýta tækifærið og klippa grópur sem vex út fyrir lóðamörk og hindrar umferð. Innlent 28.4.2007 11:09
Kveikt í óskráðum bifreiðum í Keflavík Grunur leikur á að kveikt hafi verið í óskráðum bíl rétt eftir miðnætti í nótt í Keflavík. Slökkvilið var kallað til og réði niðurlögum eldsins. Á síðustu tveimur vikum er grunur um íkveikju í fimm tilfellum þar sem eldur kom upp í óskráðum bifreiðum í Njarðvík og Keflavík. Innlent 28.4.2007 10:48
Eldur í heimahúsi í Hafnarfirði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk klukkan 21:10 í kvöld tilkynningu um eld í heimahúsi við Öldugötu í Hafnarfirði. Íbúum hafði tekist að slökkva eldinn þegar að slökkvlið og lögreglu bar að garði en það var aðeins fjórum mínútum síðar. Á meðan reykræstingu stóð þurfti að loka götunni. Talið er að um minniháttar tjón hafi verið að ræða. Engin slys urðu á fólki. Innlent 27.4.2007 21:26
Kostnaður við endurbætur margfaldast Kostnaður við endurbætur á Grímseyjarferju verður margfalt meiri en áætlun gerði ráð fyrir. Klúður segir þingmaður í samgöngunefnd alþingis sem telur að ódýrara hefði verið að kaupa nýtt skip. Innlent 27.4.2007 20:16
Fannst liggjandi í blóði sínu Í dag kl. 17:13 barst lögreglunni á Selfossi tilkynning um að maður á sextugsaldri lægi í blóði sínu í húsi í Hveragerði. Lögregla og sjúkraflutningamenn fóru þegar á vettvang . Maðurinn var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík og er þungt haldinn. Innlent 27.4.2007 20:08
Sorpa fékk sjö metanknúna bíla Sorpa bs. fékk í gær afhenta sjö metanknúna Volkswagen bíla frá Heklu. Þetta kom fram í fréttatilkynningu sem Hekla sendi frá sér í kvöld. Um er að ræða fjóra VW Caddy life EcoFuel og þrjá VW Caddy EcoFuel. Bílarnir eru með tvíbrennihreyfli, sem þýðir að þeir geta gengið bæði fyrir metani og bensíni. Innlent 27.4.2007 19:48
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent