Innlent
82 83 84 85 86 87 88 89 90 … 334 ›
Vélhjólamanni haldið sofandi Karlmaður á þrítugsaldri sem slasaðist alvarlega í vélhjólaslysi í Njarðvík í gærkvöldi er alvarlega slasaður. Að sögn vakthafandi læknis maðurinn á gjörgæsludeild þar sem honum er haldið sofandi í öndunarvél. Maðurinn undirgekkst bæklunarlækningaraðgerð í nótt þar sem gert var að beinbrotum hans. Innlent 7.5.2007 15:47
Listaháskólinn fær lóð í Vatnsmýrinni „Dagurinn í dag er bjartasti dagur í sögu Listaháskóla Íslands og skólinn hefur sannað sig á þeim sjö árum sem liðin eru frá stofnun hans.“ Þetta sagði Hjálmar H. Ragnarsson rektor eftir undirritun viljayfirlýsingar milli skólans, Reykjavíkurborgar og Menntamálaráðuneytisins um byggingu nýs húsnæðis fyrir skólann í Vatnsmýrinni. Innlent 7.5.2007 15:16
Nordisk Mobil bauð í nýja NMT kerfið Nordisk Mobil Ísland ehf var eina fyrirtækið sem bauð í starfrækslu CDMA 450 farsímanetsins sem verður arftaki NMTsímkerfisins. Tilboðsfrestur rann út klukkan 11 hjá Póst- og fjarskiptastofnun klukkan í dag. Fjarskiptafélagið Nova gerði alvarlegar athugasemdir við drög að útboðsskilmálunum. Í þeim var einungis gert ráð fyrir að eitt fyrirtæki fengi leyfið. Innlent 7.5.2007 13:40
Ný flugvél Gæslunnar algjör bylting Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir nýja flugvél Gæslunnar algera byltingu í flugflotanum og líkir breytingunni frá Fokker vélinni við að skipta úr ritvél yfir í tölvu. Nýja vélin kostar rúma tvo milljarða króna en skrifað var undir kaupsamninginn í morgun. Innlent 7.5.2007 12:44
Ungmenni gætu nálgast áfengi í matvöruverslunum Ungmenni undir tóbakskaupaaldri eiga auðvelt með að kaupa sér sígarettur samkvæmt könnun. Í ljósi þessa er varhugavert að leyfa sölu á áfengi í matvöruverslunum, segir prófessor í félagsfræði. Innlent 7.5.2007 12:27
Ummæli Sivjar um ríkisstjórn D og S röng Oddviti sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi segir rangt hjá Siv Friðleifsdóttur að hann hafi sagt á fundi að Samfylking og Sjálfstæðisflokkur eigi að mynda ríkisstjórn. Um óformlegt skens hafi verið að ræða. Innlent 7.5.2007 12:03
Alcoa yfirtekur Alcan Alcoa, einn umsvifamesti álframleiðandi í heimi, ætlar að gera yfirtökutilboð i álfélagið Alcan, sem meðal annars rekur álverið í Straumsvík. Tilboðið hljóðar upp á 33 milljarða bandaríkjadali, jafnvirði tæpra 2.100 milljarða íslenskra króna.Greitt verður með reiðufé og hlutabréfum í Alcan. Viðskipti innlent 7.5.2007 11:40
Reykjavíkurakademían tíu ára Í dag er tíu ára afmæli Reykjavíkurakademíunnar og verður blásið til fagnaðar í húsnæði þess í JL-húsinu við Hringbraut í dag. Akademían er samfélag sjálfstætt starfandi fræðimanna hér á landi. Opið hús verður frá klukkan 10-14 og eru gestir hvattir til að kynna sér starfsemi fræðimannanna. Innlent 7.5.2007 11:33
Ólafur Ragnar í rannsóknum fram eftir degi Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur undirgengist tvær rannsóknir á Landspítala – háskólasjúkrahúsi í Fossvogi í morgun. Hann var fluttur með þyrlu frá Snæfellsnesi í gær eftir að hafa fundið fyrir sterkum þreytueinkennum. Hann er nú í þriðju rannsókninni. Örnólfur Thorsson forsetaritari segir að hann verði í rannsóknum fram eftir degi. Þá hefur forsetanum borist fjöldi kveðja og heillaóska. Innlent 7.5.2007 10:52
Vaxtarhraða þorsks stjórnað með ljósum Vaxtarhraða þorsks í sjókvíaeldi er hægt að stjórna með notkun ljósa samkvæmt niðurstöðum Evrópuverkefnisins Codlight-Tech. Þannig er hægt að hvetja vöxt og hægja á kynþroska hjá þorski. Við kynþroska hættir fiskurinn að vaxa með tilheyrandi kostnaði fyrir eldisaðila. Með þessari aðferð er hægt að stytta eldistíma og bæta fóðurnýtingu þannig að þorskeldi geti orðið hagkvæmara. Innlent 7.5.2007 10:02
Iceland Express útskrifar 55 flugliða Iceland Express útskrifaði 45 nýja flugliða síðastliðinn laugardag, auk þeirra hafa 10 aðrir þegar verið úrskrifaðir. Ríflega sex hundruð umsóknir bárust um störfin. Með tilkomu fimm nýrra áfangastaða flugfélagsins í sumar var þörf á þessari viðbót við þá 75 sem nú þegar starfa hjá félaginu. Innlent 7.5.2007 09:42
Landsbankinn í kauphugleiðingum Talið er að Landsbankinn hyggist gera tilboð í írska fjármálafyrirtækið Irish Nationwide Building Society, sem er með höfuðstöðvar í Dublin. Írska blaðið Irish Times sagði um helgina, án þess þó að geta heimildar, að Landsbankinn telji írska fyrirtækið falla vel að starfsemi bankans. Viðskipti innlent 7.5.2007 09:21
Gagnrýna sölu sveitarfélaga í orkufyrirtækjum Andstæðingar sjálfstæðismanna í sveitarstjórnum á höfuðborgarsvæðinu gagnrýna þá harðlega fyrir sölu á hlut þeirra í orkufyrirtækjum. Mun meira hefði verið hægt að fá fyrir þessa hluti nú. Minnihluti borgarstjórnar var afar ósáttur við ákvörðun sjálfstæðismanna í haust um sölu á ráðandi hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Innlent 5.5.2007 18:58
Þúsundir gætu krafist ríkisborgararéttar Doktor í Evrópurétti spyr hvort allsherjarnefnd Alþingis hafi sett fordæmi með því að veita stúlku frá Guatemala ríkisborgararétt. Þúsundir útlendinga á Íslandi gætu sótt um á sama grundvelli, enda er mismunun ekki heimil samkvæmt íslenskum lögum. Innlent 5.5.2007 18:24
Auðveldar samskipti björgunaraðila Í dag var tekinn í notkun fyrsti áfangi af þremur á nýju neyðar og öryggisfjarskiptakerfi, TETRA. Kerfið á að auka til muna öryggi landsmanna í hættu og neyðartilfellum en það auðveldar öll samskipti milli lögreglu, björgunarsveita, slökkviliða og annarra viðbragðsaðila á landinu. Innlent 4.5.2007 18:56
Vitna leitað af hátíðinni „Aldrei fór ég suður“ Lögreglan á Vestfjörðum leitar eftir vitnum að ofbeldisbroti sem framið var á tónlistarhátíðinni „Aldrei fór ég suður.“ Um klukkan tvö að nóttu þann 8. apríl síðastliðinn mun karlmaður hafa brotið gegn ungri stúlku á færanlegu salerni á tónleikasvæði hátíðarinnar. Karlmaðurinn er talinn vera 170 til 180 cm á hæð og var klæddur íslenskri lopapeysu með bekk. Stúlkan var gestur á hátíðinni. Innlent 4.5.2007 15:20
Actavis kaupir markaðsleyfi sýklalyfs Actavis hefur keypt markaðsleyfi sýklalyfsins Floxapen af lyfjafyrirtækinu GlaxoSmithKline (GSK) í Evrópu. Dreifing og sala á lyfinu hefst á næstu vikum. Viðskipti innlent 4.5.2007 13:33
Hátt í 20 hús rifin við Þverholt Hafist var handa við að rífa hátt í tuttugu hús við Þverholt í Reykjavík í morgun og er í ráði að reisa fjölmenna stúdentagarða á rústum þeirra. Ráðgert er að verkið taki tvo til þrjá mánuði og má segja að öll hús við Þverholtið, allt frá gamla DV húsinu og að Háteigsvegi, verði bortin niður. Innlent 4.5.2007 12:47
Karlmaður fékk fimm ár fyrir ýmis brot Hæstiréttur staðfesti í gær fimm ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir rúmlega fertugum karlmanni fyrir margvísleg brot. Helstu brotin eru nytjastuldur, þjófnaður, skjalafals, fjársvik, umferðarlagabrot og brot á fíkniefnalöggjöfinni. Hann var einnig sviftur ökuréttindum ævilangt. Innlent 4.5.2007 12:43
Málefni Grímseyjarferju í uppnámi Meirihluti samgöngunefndar felldi í morgun tillögu minnihlutans um að Ríkisendurskoðandi verði látinn fara yfir fjárreiður er varða væntanlega Grímseyjarferju. Málefni ferjunnar eru því áfram í uppnámi. Asögn Kristjáns Möller alþingismanns og nefndarmanns, mættu fulltrúar Vegagerðarinnar á fundinn ásamt fulltrúum skipasmíðastöðvarinnar sem unnið hafa að viðgerð á ferjunni. Innlent 4.5.2007 12:31
Jónína: Kastljós baðst ekki afsökunar Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra vinnur nú að kæru til Siðanefndar Blaðamannafélagsins vegna umfjöllunar Kastljóss um ríkisborgararétt unnustu sonar síns. Hún segir eina af ástæðum kærunnar vera þá að Kastljósfólk hafi ekki séð sóma sinn í því að biðjast afsökunar. Innlent 4.5.2007 12:13
Samfylkingin næst stærst í könnun Samfylkingin er aftur orðin næst stærsti stjórnmálaflokkurinn, samkvæmt könnun Gallups fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Hún hefur náð talsverðu forskoti á Vinstri græna. Innlent 4.5.2007 11:57
Kári Stefánsson í hópi 100 mestu áhrifamanna Time Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er á lista yfir 100 áhrifamestu menn heimsins í lista bandaríska vikuritsins Time, sem birtur er í dag. Áhrifafólkinu er skipt í hópa yfir til dæmis listamenn, leiðtoga, hetjur og frumkvöðla og vísindamenn og hugsuði. Kári tilheyrir síðastnefnda hópnum. Innlent 4.5.2007 11:55
Lítill áhugi erlendis á Baugsmálinu Dómur héraðsdóms í Baugsmálinu í gær virðist hafa vakið litla athygli utan landsteinanna. Varla er minnst á dóminn í dönsku blöðunum í morgun, ekki einu sinni í Ekstra Bladet sem skrifaði mikinn greinaflokk um íslensku útrásina í fyrra. Bresku blöðin virðast sömuleiðis hafa lítinn áhuga á málinu, Financial Times rekur þó niðurstöðu dómsins og aðdraganda hans og í Guardian er stutt frétt um málið. Innlent 4.5.2007 11:50
Flugvallarskýrslan birt í dag Skýrsla um framtíð Reykjavíkurflugvallar sem beðið hefur verið með eftirvæntingu verður birt opinberlega í dag. Búist er við að niðurstöðurnar verði lagðar til grundvallar ákvörðun um framtíð Vatnsmýrar og innanlandsflugs. Samráðsnefnd um úttekt á flugvellinum kynnir skýrsluna á blaðamannafundi eftir hádegi. Innlent 4.5.2007 11:44
Rætt um yfirtöku á Mosaic Fashions Baugur, stærsti hluthafinn í Mosaic Fashions, hefur staðfest að það eigi í viðræðum um yfirtöku á félaginu. Gangi yfirtakan eftir mun það stofna félagið Newco ásamt öðrum fjárfestum. Viðræður eru á byrjunarstigi en rætt er um tilboð upp á 17,5 krónur á hlut sem er um sjö prósentum yfir núverandi verði. Viðskipti innlent 4.5.2007 11:43
Gistinóttum fjölgaði um 19 prósent Gistinóttum á hótelum í marsmánuði fjölgaði um tæplega 19 prósent frá marsmánuði í fyrra. Þær fóru úr tæplega 74 þúsundum í tæp 88 þúsund. Samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar fjölgaði gistinóttum í öllum landshlutum nema á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem þeim fækkaði um tvö prósent. Innlent 4.5.2007 11:30
Vilja að Núpsskóli verði meðferðarheimili fyrir börn og unglinga Bæjarstjórn Ísafjarðar samþykkti einróma í gær að bjóða Núpsskóla sem meðferðarheimili fyrir börn og ungmennni. Ákveðið var að ganga til viðræðna við stjórnvöld um þennan möguleika. Innlent 4.5.2007 11:02
Innritun í framhaldsskóla á netinu Opnað verður fyrir rafræna innritun í framhaldsskóla landsins á skólavef menntamálaráðuneytisins þann 14. maí næstkomandi. Þá verður hægt að innrita nemendur á vefnum menntagatt.is til 11. júní. Allar umsóknir í dagskóla verða með rafrænum hætti og berast beint til upplýsingakerfa framhaldsskólanna. Innlent 4.5.2007 10:27
Sægarðar lokaðir til 26. maí Sægarðar verða lokaðir við gatnamót Sæbrautar og Vatnagarða frá morgundeginum til 26. maí. Framkvæmdir verða á svæðinu og munu umferðarljós á gatnamótunum blikka á gulu ljósi. Aðeins ein akbraut verður í notkun á 50 metra kafla á Sæbraut til norðvesturs. Aðkoma að fyrirtækjum á hafnarsvæðinu verður um Holtaveg og Sundagarða. Innlent 4.5.2007 10:03
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent