Innlent Ekki komið samkomulag um breytingu á matarskatti Matarskattur og aðgerðir til að lækka matarverð voru ekki til umræðu á ríkisstjórnarfundi í morgun. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa ekki enn komist að niðurstöðu um til hvaða aðgerða skuli grípa. Reiknað er þó með að niðurstaða liggi fyrir fljótlega. Líklegt má telja að hún verði kynnt í stefnuræðu forsætisráðherra í næstu viku. Innlent 26.9.2006 11:59 Álit um aðkomu stjórnvalda að íbúðalánum kynnt í dag Félagsmálaráðherra hefur boðað til blaðamannafundar í dag klukkan 15. Þar verður kynnt lokaálit stýrihóps um framtíðarstefnumótun um hlutverk og aðkomu stjórnvalda að íbúðalánamarkaðnum. Innlent 26.9.2006 11:56 67 teknir á meira en 190 í ágúst Tugir bíla mældust á yfir 190 kílómetra hraða í ágústmánuði. Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu segir hraðann aukast í takt við velsæld þjóðfélagsins. Innlent 26.9.2006 12:00 Gæti hagnast um 20 milljarða við sölu á Icelandair Eignarhaldsfélagið FL Group gæti hagnast um tuttugu milljarða króna með fyrirhugaðri sölu á Icelandair, eða Flugleiðum, að mati markaðssérfræðinga. Það yrði einhver mesti söluhagnaður á svo skömmum tíma sem um getur hér á landi. Innlent 26.9.2006 11:43 Fylling Hálslóns að hefjast Innlent 26.9.2006 11:40 Ísland færist upp um tvö sæti á lista WEF um samkeppnishæfni Ísland er fjórtánda samkeppnishæfasta land í heimi og færist upp um tvö sæti frá því í fyrra samkvæmt nýrri skýrslu samtakanna Wold Economic Forum. Sviss er samkepnnishæfasta hagkerfi heimsins en þar á eftir koma Finnland, Svíþjóð og Danmörk. Innlent 26.9.2006 11:31 Samkeppnishæfasta hagkerfið í Sviss Sviss, Finnland og Svíþjóð eru í þremur efstu sætum yfir samkeppnishæfustu hagkerfi heimsins, samkvæmt nýrri skýrslu World Economic Forum, sem kom út í dag. Bandaríkin voru í fyrsta sæti í fyrra en fellu niður í sjötta sæti. Ísland fer upp um tvö sæti á milli ára og vermir nú 14. sætið yfir samkeppnishæfustu hagkerfi heims. Viðskipti innlent 26.9.2006 11:15 Trúir ekki að Steingrímur hafi ekki spurt um leyniþjónustu Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að það væri með miklum ólíkindum ef embættismenn hefðu ekki upplýst Steingrím Hermannsson, fyrrverandi dóms- og kirkjumálaráðherra og forsætisráðherra um ráðstafanir lögreglunnar til að gæta öryggis ríkisins. Hafi Steingrími ekki verið sagt frá þessum grundvallaratriðum að fyrra bragði trúi hann ekki öðru en jafnathugull maður og Steingrímur hafi spurt. Innlent 26.9.2006 11:02 Yfirlýsing frá FL Group vegna fréttar Morgunblaðsins FL Group hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Morgunblaðsins í dag um áhuga að minnsta kosti tveggja banka á að kaupa Icelandair. Viðskipti innlent 26.9.2006 10:25 Kjötfjallið heyrir sögunni til Innlent 26.9.2006 10:17
230 231 232 233 234 235 236 237 238 … 334 ›
Ekki komið samkomulag um breytingu á matarskatti Matarskattur og aðgerðir til að lækka matarverð voru ekki til umræðu á ríkisstjórnarfundi í morgun. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa ekki enn komist að niðurstöðu um til hvaða aðgerða skuli grípa. Reiknað er þó með að niðurstaða liggi fyrir fljótlega. Líklegt má telja að hún verði kynnt í stefnuræðu forsætisráðherra í næstu viku. Innlent 26.9.2006 11:59
Álit um aðkomu stjórnvalda að íbúðalánum kynnt í dag Félagsmálaráðherra hefur boðað til blaðamannafundar í dag klukkan 15. Þar verður kynnt lokaálit stýrihóps um framtíðarstefnumótun um hlutverk og aðkomu stjórnvalda að íbúðalánamarkaðnum. Innlent 26.9.2006 11:56
67 teknir á meira en 190 í ágúst Tugir bíla mældust á yfir 190 kílómetra hraða í ágústmánuði. Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu segir hraðann aukast í takt við velsæld þjóðfélagsins. Innlent 26.9.2006 12:00
Gæti hagnast um 20 milljarða við sölu á Icelandair Eignarhaldsfélagið FL Group gæti hagnast um tuttugu milljarða króna með fyrirhugaðri sölu á Icelandair, eða Flugleiðum, að mati markaðssérfræðinga. Það yrði einhver mesti söluhagnaður á svo skömmum tíma sem um getur hér á landi. Innlent 26.9.2006 11:43
Ísland færist upp um tvö sæti á lista WEF um samkeppnishæfni Ísland er fjórtánda samkeppnishæfasta land í heimi og færist upp um tvö sæti frá því í fyrra samkvæmt nýrri skýrslu samtakanna Wold Economic Forum. Sviss er samkepnnishæfasta hagkerfi heimsins en þar á eftir koma Finnland, Svíþjóð og Danmörk. Innlent 26.9.2006 11:31
Samkeppnishæfasta hagkerfið í Sviss Sviss, Finnland og Svíþjóð eru í þremur efstu sætum yfir samkeppnishæfustu hagkerfi heimsins, samkvæmt nýrri skýrslu World Economic Forum, sem kom út í dag. Bandaríkin voru í fyrsta sæti í fyrra en fellu niður í sjötta sæti. Ísland fer upp um tvö sæti á milli ára og vermir nú 14. sætið yfir samkeppnishæfustu hagkerfi heims. Viðskipti innlent 26.9.2006 11:15
Trúir ekki að Steingrímur hafi ekki spurt um leyniþjónustu Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að það væri með miklum ólíkindum ef embættismenn hefðu ekki upplýst Steingrím Hermannsson, fyrrverandi dóms- og kirkjumálaráðherra og forsætisráðherra um ráðstafanir lögreglunnar til að gæta öryggis ríkisins. Hafi Steingrími ekki verið sagt frá þessum grundvallaratriðum að fyrra bragði trúi hann ekki öðru en jafnathugull maður og Steingrímur hafi spurt. Innlent 26.9.2006 11:02
Yfirlýsing frá FL Group vegna fréttar Morgunblaðsins FL Group hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Morgunblaðsins í dag um áhuga að minnsta kosti tveggja banka á að kaupa Icelandair. Viðskipti innlent 26.9.2006 10:25
Taka undir kröfur sjúkraliða á LSH um nýjan stofnanasamning Sjúkraliðar á sjúkrahúsi og heilsugæslu Akranes og sjúkraliðar á Heilbrigðisstofnun Austurlands hafa sent frá sér ályktanir þar sem tekið er undir kröfur sjúkraliða á Landspítalans um að gengið verði frá nýjum stofnanasamningi við sjúkraliða tafarlaust. Innlent 26.9.2006 10:00
Bryndís Ísfold stefnir á 6. sætið í Reykjavík Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir sækist eftir 6. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá henni. Bryndís situr nú í framkvæmdastjórn flokksins og hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum á vegum hans. Innlent 26.9.2006 09:50
Sextán manns vakta varnarsvæðið þegar herinn fer Búið er að ráða tólf öryggisverði til að starfa með fjórum lögreglumönnum við að vakta varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli eftir að síðustu varnarliðsmennirnir yfirgefa svæðið um helgina. Innlent 26.9.2006 09:35
Varað við hálku á Holtavörðuheiði Vegagerðin varar við hálku á Holtavörðuheiði, og er þetta líklega fyrsta hálkuviðvörunin í haust. Þá er varað við steinkasti á Hellisheiðinni frá Skíðaskálanum í Hveradölum að Kömbunum og eins efst í Þrengslunum vegna klæðningarvinnu. Innlent 26.9.2006 09:33
Halda upp á brottför hersins Íslenskir friðarsinnar ætla að halda til Suðurnesja og fagna brottför hersins á sunnudaginn næstkomandi. Innlent 26.9.2006 00:10
Nýr formaður Vinstri-grænna í Reykjavík Hermann Valsson var í kvöld kosinn nýr formaður Reykjavíkurfélags Vinstri-grænna. Hermann er kennari og varaborgarfulltrúi en hann tekur við af Þorleifi Gunnlaugssyni. Innlent 25.9.2006 23:56
Fundað um vetni Sjötti fundur stýrinefndar Alþjóðavetnissamstarfsins verður haldinn á Hótel Nordica í Reykjavík dagana 26. og 27. september. Innlent 25.9.2006 23:35
Íslenskur verkfræðinema í sigurliði í alþjóðlegri hönnunarkeppni Íslenskur verkfræðinemi úr Háskóla Íslands, Andri Heiðar Kristinsson, bar ásamt hópi verkfræðinema sigur úr bítum hönnunarkeppni sem fram fór í Barcelona í síðustu viku. Innlent 25.9.2006 23:26
Óvissa um byggingu menningarhúss í Skagafirði Algjör óvissa ríkir um byggingu menningarhúss í Skagafirði eftir deilur og aðdróttanir á síðasta sveitastjórnarfundi. Sóknarpresturinn í Glaumbæ krefst afsökunarbeiðni og stefnir í dómsmál. Innlent 25.9.2006 22:48
Ísfirðingar greiða sama verð og höfuðborgarbúar fyrir hægari nettengingu Ísfirðingar greiða sama verð og höfuðborgarbúar fyrir helmingi hægari nettengingu. Notandi með 4 MB/s tenging á Ísafirði greiðir sama verð og notandi á höfuðborgarsvæðinu með 8 MB/s tengingu. Innlent 25.9.2006 21:39
Tófan á ferð Illa leikin ær fannst á túni bóndans á Stað í Súgandafirði fyrir skömmu. Svo virðist sem tófan hafi verið að verki en ærin lifði þó árásina af. Innlent 25.9.2006 21:23
Vestfirsk Jökulsárganga Vestfirskt áhugafólk um verndun hálendisins ætlar á morgun að mótmæla yfirvofandi náttúruspjöllum á austfjarðarhálendinu með því að ganga. Innlent 25.9.2006 20:53
Þvertaka fyrir að hafa vitað af rekstri leyniþjónustu Tveir dómsmálaráðherrar Framsóknarflokksins á tímum kalda stríðsins, Steingrímur Hermannsson og Jón Helgason, þvertaka fyrir að hafa vitað af rekstri leyniþjónustu hjá undirstofnunum sem heyrðu undir ráðuneyti þeirra. Innlent 25.9.2006 19:29
Listaverk og skrímsli í Faxaskála Vinnuvélar, sem minna einna helst á skrímsli úr vísindaskáldsögu, rífa nú í sig leifarnar af Faxaskála við Reykjavíkurhöfn. Aðkoman á vinnusvæðinu líkist heimkynnum skrímslanna í slíkri sögu eða jafnvel vígvelli. Innlent 25.9.2006 17:34
Niðurgreitt flug til Eyja? Flug til Eyja verður niðurgreitt af ríkinu ef ekki finnst á næstu 6 mánuðum flugfélag sem treystir sér til að halda úti flugi milli Eyja og Reykjavíkur á viðskiptalegum forsendum. Innlent 25.9.2006 18:33
Val á prestum ekki undir jafnréttislög Kirkjuráð ætlar að leggja til við Kirkjuþing í október að prestar verði kosnir leynilegri kosningu, meðal annars til að tryggja að valið falli ekki undir jafnréttislög. Innlent 25.9.2006 17:43
Fær ekki aðstoð barnaverndaryfirvalda Móðir af erlendum uppruna fær ekki aðstoð barnaverndaryfirvalda á Álftanesi til að sækja barn sitt til forsjárlauss föður sem hefur haldið barninu í leyfisleysi frá því í ágúst. Drengurinn átti að byrja í skóla fyrir mánuði. Innlent 25.9.2006 17:35
Ráðherra seig úr þyrlu Öryggisvika sjómanna var sett í dag í rjómablíðu út við sundin blá. Í vikunni verða sjómenn hvattir til að þjálfa viðbrögð við slysum og sjávarháska. Innlent 25.9.2006 18:27
Eignir íslenskra heimila hækka Eignir íslenskra heimila hækkuðu að verðmæti í ágúst eftir nánast stöðugan samdrátt frá því í mars ef miðað er við eignaverðsvísitölu greiningardeildar KB banka. Vísitalan hækkaði um 4,3% í mánuðinum og fór vöxtur vísitölunnar síðustu tólf mánuðina þar með úr 2,3% í 5,6% að raunvirði. Innlent 25.9.2006 18:04
Leigusamningur vegna tækja líklega framlengdur Leigusamningur milli íslenskra og bandarískra stjónvalda vegna tækjabúnaðar á Keflavíkurflugvelli verður hugsanlega framlengdur um fjögur ár til viðbótar því ári sem samið verður um. Frá þessu er greint á vef Víkurfétta. Innlent 25.9.2006 17:57