Innlent
223 224 225 226 227 228 229 230 231 … 334 ›
Leituðu gangnamanna á Brekknaheiði í dag Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út í leit á Brekknaheiði á Austurlandi seinnipartinn í dag til að leita að stúlku sem var í leit að fé á heiðinni í göngum. Stúlkan fannst heil á húfi um hálfsjöleytið í kvöld. Fyrr í dag höfðu björgunarsveitir einnig verið kallaðar út vegna tveggja gangnamanna á sömu heiði en þeir fundust heilir á húfi fljótlega eftir að útkall barst. Innlent 1.10.2006 18:59
Björguðu manni í sjálfheldu í Ingólfsfjalli Björgunarsveitir fyrir austan fjall björguðu nú undir kvöld manni sem fastur var í sjálfheldu ofarlega í Ingólfsfjalli. Hætta var talin á að hann gæti fallið niður en að sögn lögreglu á Selfossi hafa björgunarsveitarmenn nú komið manninum til aðstoðar og eru á leið niður fjallið með hann heilan á húfi. Innlent 1.10.2006 18:58
Tólf stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í kringum Hvolsvöll Lögreglan á Hvolsvelli hefur haft í nógu að snúast það sem af er degi við að stöðva ökumenn sem hafa keyrt of hratt. Frá klukkan níu í morgun til fjögur í dag voru tólf ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur á Suðurlandsvegi. Innlent 1.10.2006 18:34
Alþingi sett á morgun Alþingi verður sett á morgun við hátíðlega athöfn sem hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan hálftvö. Sólveig Pétursdóttir, forseti alþingis, gefur áfram kost á sér í embætti forseta en hún hefur ákveðið að hverfa af vettvangi stjórnmálanna eftir þennan vetur. Innlent 1.10.2006 18:25
Mikilvægt að andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar verði í öndvegi Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, segir mikilvægt að andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar verði í öndvegi á framboðslistum flokksins fyrir kosningar vegna nýrrar umhverfisstefnu flokksins, Fagra Ísland. Hann hafi því ákveðið að gefa kost á sér í fjórða sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík Innlent 1.10.2006 18:03
Sjálfstæðismenn með prófkjör í Suðurkjördæmi 11. nóv. Kjördæmisráð sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi ákvað á fundi sínum í dag að halda prófkjör þann 11. nóvember til að velja á framboðslista flokksins í kjördæminu fyrir komandi þingkosningar. Tólf hafa lýsti yfir framboði í prófkjörinu og er ljóst að baráttan verður hörð. Innlent 1.10.2006 17:23
Guðfinna stefnir á þriðja sætið í Reykjavík Guðfinna Bjarnadóttir, rektor háskólans í Reykjavík, tilkynnti á fundi í Iðnó nú klukkan fjögur að hún hygðist gefa kost á sér í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í prófkjöri fyrir alþingiskosningar næsta vor. Guðfinna hyggst ljúka þessu skólaári og taka ákvarðanir í framhaldinu, út frá genginu í prófkjörinu og í samráði við stjórn skólans, hvort hún haldi áfram sem rektor. Innlent 1.10.2006 17:05
65 sinnum stungið af eftir ákeyrslu í september Sextíu og fimm sinnum hafa menn ekið á mannlausa kyrrstæða bíla í september og farið af vettvangi án þess að láta vita. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu í dag. Þetta þýða að jafnaði tvö tilvik á dag. Innlent 1.10.2006 16:27
Um sjötíu manns skoðuðu herstöðina á Miðnesheiði Um sjötíu manns á vegum Samtaka herstöðvaandstæðingar hafa í dag skoðað herstöðina á Miðnesheiði eftir að Bandaríkjaher fór þaðan í gær. Voru þeir fyrstir almennra borgara að gera það. Hópurinn fór um svæðið og skoðaði markverðustu staði í fylgd leiðsögumanns. Innlent 1.10.2006 15:35
Ný kennsluálma vígð í Menntaskólanum á Egilsstöðum Kennslurými í Menntaskólanum á Egilsstöðum hefur stækkað um áttatíu prósent með nýrri kennsluálmu sem tekin var í gagnið í haust. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra vígði húsið við hátíðlega athöfn í gær og færði um leið Helga Ómari Bragasyni, skólameistara lykil að húsinu. Innlent 1.10.2006 11:51
Porter sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við HÍ Michael E. Porter, sem af mörgum er talinn einn fremsti hugsuður heims á sviði stefnumótunar og stjórnunar, verður sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands á morgun. Innlent 1.10.2006 14:25
Prests- og djáknavígsla í Dómkirkjunni Tveir verða vígðir til prests og einn til djákna í Dómkirkjunni nú klukkan tvö. Innlent 1.10.2006 12:54
Ljóð í sjóð til styrktar MND-félaginu Ljóð í sjóð er heiti á bók og geisladiski sem MND-félagið gefur út með stuðningi helstu listamanna þjóðarinnar. Árlega greinast þrír til fimm einstaklingar með sjúkdóminn hér á landi, en hann dregur fólk til dauða á einu til fimm árum. Innlent 1.10.2006 11:47
Sótti slasaðan manna á Grundarfjörð eftir bílveltu Önnur þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í nótt til þess að sækja mann til Grundarfjarðar sem velt hafði bíl sínum nærri bænum. Bíllinn fór nokkrar veltur og var maðurinn fluttur fyrst á heilsugæslustöðina á Grundarfirði en síðar var ákveðið að kalla eftir þyrlu vegna meiðsla hans. Innlent 1.10.2006 12:49
Guðfinna á leið í pólitík Guðfinna Bjarnadóttir, rektor háskólans í Reykjavík hefur ákveðið að gefa kost á sér í eitt af efstu sætunum á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í prófkjöri fyrir Alþingiskosningar næsta vor. Hún mun tilkynna um ákvörðun sína opinberlega síðar í dag. Innlent 1.10.2006 12:41
Aldraður maður lést eftir að hafa fallið af hestbaki Bóndi á níræðisaldri lést eftir að hann datt af hestbaki við smalamennsku ofarlega í Laxárdal í Dalasýslu í gærdag. Svo virðist sem hestur hans hafi hnotið um þúfu með þeim afleiðingum að maðurinn féll af baki. Innlent 1.10.2006 12:33
Fyrstir almennra borgara til að skoða herstöð Herstöðvaandstæðingar verða fyrstir almennra borgara til að skoða herstöðina á Miðnesheiði eftir að Bandaríkjamenn yfirgáfu svæðið í gær. Stöðin telst ennþá vera varnarsvæði. Af þeim sökum gilda þar strangar reglur. Innlent 1.10.2006 11:53
Fjarskiptastöð í Grindavík mikilvæg í hernaðarlegum samskiptum Fjarskiptastöð bandaríska flotans í Grindavík gegnir engu beinu hlutverki í vörnum landsins. Samkvæmt heimildum NFS er hún hins vegar mikilvægur hlekkur í hernaðarlegum samskiptum herskipa og kafbáta Bandaríkjahers. Innlent 1.10.2006 12:13
Bera ekki ábyrgð á vatnsmengun við Keflavíkurflugvöll Bandaríkjamenn bera ekki ábyrgð á vatnsmengun á svæðinu við Keflavíkurflugvöll. Þeir firrtu sig ábyrgð með því að kosta nýja vatnsveitu fyrir Keflavík og Njarðvík fyrir sautján árum. Innlent 1.10.2006 11:35
Talverður erill hjá lögreglunni í Keflavík í nótt Talsverður erill var hjá lögreglunni í Keflavík á næturvaktinni vegna ölvunar, slagsmála og hávaðaútkalla. Tvær minniháttar líkamsárásir voru tilkynntar, önnur á skemmtistaðnum H-punktinum og hin á Njarðabraut í Njarðvík. Innlent 1.10.2006 10:20
Unnur Birna krýndi arftaka sinn í Póllandi Unnur Birna Vilhjálmsdóttir krýndi í gær arftaka sinn í keppninni ungfrú Heimur sem fram fór í Póllandi. Það var tékkneska stúlkan Tatana Kucharova sem bar sigur úr býtum en önnur var ungfrú Rúmenía og ungfrú Ástralía varð í þriðja sæti. Innlent 1.10.2006 10:06
Herstöðvaandstæðingar fagna brottför hersins Herstöðvaandstæðingar halda klukkan tólf til Suðurnesja þar sem þeir munu fagna því að Bandaríkjaher er farinn af landi brott. Farið verður á slóðir herstöðvarinnar og minnisvarðar um hersetuna skoðaðir. Innlent 1.10.2006 10:04
Á 137 kílómetra hraða á Sæbraut Lögregla í Reykjavík tók í nótt sex ökumenn grunaða um ölvun við akstur, þar af einn sem ók fram hjá lokunum lögreglu meðan verið var að vinna á vettvangi við banaslys á Miklubraut. Þá voru fimm teknir fyrir of hraðan akstur, einn á 139 kílómetra hraða á Kringlumýrarbraut þar sem hámarkshraði er 80 og annar á Sæbraut við Kleppsveg á 137 km hraða þar sem hámarkshraði var 60. Innlent 1.10.2006 09:58
Banaslys á Miklubraut í nótt Banaslys varð á Miklubraut um klukkan hálffjögur í nótt þegar ekið var á konu á sextugsaldri. Atvikið var með þeim hætti að bifreið var ekið austur Miklubraut að Háaleitisbraut og var konan á gangi á afrein sem liggur af Miklubraut inn á Háaleitisbraut til suðurs. Innlent 1.10.2006 09:52
Hróður Laufskálaréttar berst víða um heim Þúsundir manna og hrossa komu saman í einum stærstu stóðréttum landsins í Laufskálarétt í Hjaltadal í Skagafirði. Réttirnar eru fyrir löngu orðnar landsfrægar fyrir góða stemningu og hefur hróður þeirra nú borist út um víða veröld enda var fjöldi útlendinga sérstaklega kominn til að berja augum skagfirska gæðinga og söngmenn. Innlent 30.9.2006 18:38
Fara með Stafafellsdóm til Strassborgar Landeigendur í Stafafelli í Lóni hafa ákveðið að reyna að fara með nýlegan dóm Hæstaréttar fyrir Mannréttindadómstólinn í Strassborg. Hæstiréttur sneri við dómi héraðsdóms sem úrskurðaði að virða ætti þinglýst landamerki sunnan og norðan Jökulsár í Lóni frá árinu 1914. Innlent 30.9.2006 18:44
Herinn er farinn Bandaríski herinn er farinn eftir fimmtíu og fimm ára veru í landinu. Síðustu hermennirnir drógu niður bandaríska fánann í dag. Þeir halda af landi brott í kvöld. Íslenski fáninn blaktir nú við hún í herstöðinni í Keflavík. Innlent 30.9.2006 18:29
Sjónvarpið 40 ára Í dag eru fjörutíu ár síðan íslenskar sjónvarpsútsendingar hófust hér á landi. Innlent 30.9.2006 18:27
Borgar sækist eftir fjórða sæti í NV-kjördæmi Borgar Þór Einarsson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, gefur kost á sér í 4. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá honum. Innlent 30.9.2006 18:26
Flugmálayfirvöld ekki upplýst Flugmálastjórn kom af fjöllum þegar Bretar létu vita af tveimur rússneskum sprengjuflugvélum á sveimi 150 mílum undan ströndum landsins, aðfaranótt föstudags. Utanríkisráðherra segir stjórnvöld og ratsjárstofnun hafa vitað af málinu, en rússneski herinn var við æfingar norður í höfum. Innlent 30.9.2006 18:21